Morgunblaðið - 16.07.2008, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BYGGÐ mun nánast leggjast af í
mörgum sveitarfélögum innan fárra
áratuga, haldi sama þróun áfram og
verið hefur undanfarin fimmtán ár.
Þetta kemur fram í skýrslu Byggða-
stofnunar um byggðarlög þar sem
fólksfækkun er viðvarandi. Fækkun
íbúa í 22 sveitarfélögum á fimmtán
ára tímabili, 1991-2006, var 20,9%.
Tíu þeirra eru dreifbýlissveitarfélög,
þrjú þéttbýlissveitarfélög og níu
falla í báða flokka.
Hugsanlega er það of mikil svartsýni
að segja að byggðin hreinlega legg-
ist af. Alla vega kom ekkert annað
en bjartsýni fram í samtölum blaða-
manns við sveitarstjóra. En það er
kannski of mikil bjartsýni. Halldór
Halldórsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga var raunsær í
svörum sínum. „Þarna spilar mjög
stórt inn í að gömlu atvinnuvegirnir,
frumvinnslugreinarnar, hafa verið
að gefa eftir og munu gera áfram.
Það hefur ekki nægilega margt nýtt
komið í staðinn.“
Sóknartækifæri sveitarfélaganna
virðast flest liggja í ferðaþjónustu,
en ferðamannatíminn á Íslandi er
stuttur. Sérstaklega á Vestfjörðum
þar sem samgöngur á stórum svæð-
um yfir vetrartímann eru vægast
sagt stopular. Því má segja að bætt-
ar samgöngur séu forsendur efl-
ingar.
55,8% fækkun í Árneshreppi
Sveitarfélög á Vestfjörðum hafa
orðið hvað verst úti á undanförnum
árum og fækkun þar er einna mest.
Þannig var mest fækkun í Árnes-
hreppi, eða 55,8%. Þar verður þó að
líta til að 49 einstaklingar eru með
lögheimili í hreppnum.
Í Vesturbyggð var ástandið ekki
mikið betra. Þar nam fækkun á
fimmtán ára tímabili tæpum 38%, og
var einna mest á Bíldudal eða yfir
fimmtíu prósent. Í Vesturbyggð
horfa íbúar til – og vona innilega – að
Olíuhreinsunarstöð rísi, enda hefur
fiskvinnsla og verslunarrekstur
gengið illa.
Í skýrslu Byggðastofnunar er
komið inn á nokkrar tillögur til að
sporna við þessari óheppilegu þróun.
Meðal annars er það talið mjög mik-
ilvægt að áform stjórnvalda um
bætta gagnaflutninga nái fram að
ganga. Á sumum svæðum er þannig
notast við ISDN-tengingu, en hún
hentar afar illa, t.d. í fjarnámi og
flestum atvinnurekstri þar sem
treyst er á fjarskipti yfir netið.
Fordómum þarf að eyða
Einnig telur stofnunin að skoða
þurfi með hvaða hætti hægt er að
bæta ímynd afskekktra og dreifbýlla
svæða. Í skýrslunni segir að kostir
búsetu í dreifbýli séu margir og það
gleymist. „Þarf ekki annað en nefna
friðsældina og náttúruna,“ segja
skýrsluhöfundar.
Höfundar telja að taka þurfi sam-
an og benda á kostina og koma þeim
á framfæri. Með því móti sé hægt að
efla sjálfstraust íbúanna og vinna á
fordómum sem eru uppi gagnvart
dreifbýlinu.
Byggðarlög leggjast í eyði
Fækkun íbúa í 22 sveitarfélögum á landsbyggðinni, á fimmtán ára tímabili, var yfir tuttugu prósent
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir of fátt nýtt koma í stað „gömlu“ atvinnuveganna
!" #
!" # $
%#"
&$
'
( )$
$
$
" ) $
) * $
+ $
$
)$
',
%
$
&#, -
.
# * , -"
$
+,#
-
%
$ ) ( $
&%'(
&#
0#
)
', #
$
#
1
$
.
#
# .
2
# ' $
&
" ,, ,, +, # 3 ,, +
/
,, !" /
,, &
/
4 ,, ' ,, ,,
/
,, - /
*#5 ! ,, 6
,, % /
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SIGMAR Eðvarðsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í Grindavík, segir að
ágreiningur milli sín og Jónu Krist-
ínar Þorvaldsdóttur um hvar ávaxta
skyldi peninga vegna sölu á hlut
Grindavíkur í Hitaveitu Suðurnesja
hafi valdið því að hún hafi slitið meiri-
hlutasamstarfinu.
Að sögn Sigmars taldi nefnd, sem
skipuð var eftir sölu hitaveitunnar, að
geyma bæri fjármuni sveitarfélags-
ins, um 4 milljarða, hjá Landsbank-
anum. Jóna Kristín hefði hins vegar
lofað Sparisjóðnum í Keflavík að
helmingur fjárins yrði ávaxtaður þar.
„Þetta er hin raunverulega ástæða
fyrir slitunum,“ segir hann.
Fráfarandi bæjarstjóri var ráðinn
út kjörtímabilið, til fjögurra ára og
með sex mánaða uppsagnarfresti.
Sigmar segir að þessi háttur hafi við-
gengist frá því utanaðkomandi bæj-
arstjóri var ráðinn í fyrsta sinn fyrir
26 árum og allir flokkar hafi komið að
slíkum ráðningum. Kostnaður við
bæjarstjóraskiptin er 19,5 milljónir
króna, fyrir utan launatengd gjöld,
samkvæmt upplýsingum á vef
Grindavíkurbæjar, en áður hafði
komið fram að kostnaðurinn vegna
uppgjörs við fyrrverandi bæjarstjóra
væri um 45 milljónir króna.
Jóna Kristín bendir á að hún fái
985 þúsund kr. á mánuði í laun eða
tæplega 300 þús. kr. minna en fráfar-
andi bæjarstjóri. Uppsagnarfrestur
sinn sé þrír mánuðir og hún fái ekki
greitt fyrir að búa í eigin húsnæði
eins og fv. bæjarstjóri (um 249 þús.
kr. á mánuði). Ennfremur sparist
peningar, þar sem hún afsali sér laun-
um sem bæjarfulltrúi í bæjarráði og
bæjarstjórn, alls um 2,4 milljónir.
Sigmar segir þessa útreikninga
ekki standast. Miðað við 985 þúsund
kr. laun í 22 mánuði sé launatala nýs
bæjarstjóra um 21,7 milljónir. Miðað
við 20% launatengd gjöld bætist við
um 4,3 milljónir. Einnig sé verið að
tala um að ráða aðstoðarmann bæj-
arstjóra og bærinn sé með 18,5%
vexti á innistæður sínar en vextirnir
lækki vegna aukinna útgjalda. „Þetta
er sóun á fjármunum,“ segir hann.
Ágreiningur um ávöxtun fjár
Oddviti sjálfstæðismanna segir ágreining um ávöxtun fjár vegna sölu á HS hafa
valdið slitunum í Grindavík Samfylkingin hafi lofað SPKEF helmingi fjárins
Sigmar
Eðvarðsson
Í HNOTSKURN
» Samstarfi Sjálfstæðis-flokks og Samfylkingar í
bæjarstjórn Grindavíkur lauk
8. júlí, en það hófst á fyrra
kjörtímabili. Samfylking og
Framsóknarflokkur mynduðu
nýjan meirihluta.
Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir
„HÉRNA vantar einfaldlega atvinnutæki-
færi. Þó svo að fólk vilji koma hingað og
stunda sauðfjárbúskap, þá er það of dýrt
fyrir ungt fólk að byrja búskap,“ segir
Oddný Snjólaug Þórðardóttir, sveitarstjóri
í Árneshreppi. Þar hefur fólki fækkað um
55,8% á undanförnum fimmtán árum.
Spurð hvort ekki sé hægt að byggja á
ferðamennsku á þessum fallega stað, segir
Oddný tímabilið einfaldlega of stutt. „Sam-
göngur eru ekki nægilega góðar til að hægt
sé að treysta á ferðamennsku yfir veturna.
Útlendingar eru oftast bundnir flugi og mega því vart við að
vera veðurtepptir í marga daga. Samgöngurnar koma því í
veg fyrir það“
Aldurskiptingin er einnig fremur skökk í sveitarfélaginu
og mikið um að ungmenni mennti sig og flytjist burt.
Dýrt að byrja búskap
Oddný Snjólaug
Þórðardóttir
„ÞEIR sem eru hérna eftir, þeim finnst
voða gott að búa hérna,“ segir Björn Haf-
þór Guðmundsson, sveitarstjóri í Djúpa-
vogshreppi, í léttum tón þegar blaðamaður
spyr hvort ekki sé gott að búa í sveitarfé-
laginu. Þar hefur fækkað um rúm 22% á
fimmtán ára tímabili. Björn Hafþór segist
ekki hafa kannað það til hlítar en tilfinning
manna sé að fækkunin sé nær eingöngu í
sveitunum. Ekkert hús stendur autt á
Djúpavogi og mikið um barnsfæðingar.
„Ég held að við höfum haldið okkar hlut
betur en mörg önnur sveitarfélög, og við höfum ekki verið að
upplifa, að það hafi verið einhverjar holskeflur.“
Björn Hafþór segir einnig mikla bjartsýni ríkja í byggðar-
laginu, ferðamennskan í miklum blóma og sterk fiskvinnslu-
fyrirtæki eru á Djúpavogi.
Aðallega í sveitunum
Björn Hafþór
Guðmundsson
„ÞETTA er ekkert nýtt fyrir okkur. Það hef-
ur verið árviss fólksfækkun undanfarin 20
ár. Og tæplega fimmtíu prósent bara á
Bíldudal,“ segir Ragnar Jörundarson, sveit-
arstjóri í Vesturbyggð. Ríflega 900 manns
búa í sveitarfélaginu og áfram fækkar ef
ekkert verður að gert. „Við sjáum það, að
þessir þróun heldur áfram, nema auðvitað
að við fáum olíuhreinsunarstöðina. Og við
höfum enga ástæðu til að ætla annað en að
það gangi eftir.“
Ragnar telur að margt muni breytast ef
stöðin rís og að þróun síðustu tuttugu ára verði snúið við. „Það
er ekki spurning um að fólki muni fjölga. Þá erum við komin
með kjölfestufyrirtæki, með fasta starfsmenn, líklega yfir fimm
hundruð manns, og annað eins í afleiðustörf.“ En fyrir utan allt
annað, þá segir Ragnar yndislegt að búa í Vesturbyggð.
„Þetta er ekkert nýtt“
Ragnar
Jörundarson
Íbúar í sveitarfélögunum 22
17.034
Fækkun frá árinu 1991
4.862
Meðalfjarlægð frá Reykjavík
420 km
Meira á mbl.is/ítarefni
LANGIR samningafundir hafa
verið haldnir að undanförnu á
milli samninganefndar Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH)
og samninganefndar Reykjavík-
urborgar um endurnýjun kjara-
samninga. Rúmlega 30 hjúkr-
unarfræðingar starfa hjá
Reykjavíkurborg, flestir á Drop-
laugarstöðum.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður FÍH, sagði í gær að á
samningafundi sem þá stóð yfir
yrði reynt að koma málum eins
langt í átt til samkomulags og
unnt væri. Spurð hvort það sem
tekist er á um við samninga-
borðið væri ólíkt nýgerðum
samningi FÍH og ríkisins sagði
hún svo ekki vera. Samningar
við ríkið væru iðulega forskrift
að samningum sem á eftir koma
en ýmislegt væri þó frábrugðið,
m.a. launatöflur og sú starfsemi
sem taka þyrfti tillit til.
omfr@mbl.is
Nálgast
samkomulag