Morgunblaðið - 16.07.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Stórútsala
Glæsilegur sumarfatnaður
Útsalan er hafin
Stærðir 40-60
30-50% afsláttur af útsöluvörum
www.belladonna.is
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • 517 6460
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„OKKUR fannst þetta góð hugmynd
og ákváðum að kynna hana fyrir borg-
inni. Menn tóku vel í þetta en það varð
eitthvað lítið úr framkvæmdum, þang-
að til við tókum okkur bara til og
hönnuðum sjálfir svona hús, íslensku
útgáfuna,“ segir Sigurður Kr. Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Fé-
lagsbústaða hf.
Fyrirtækið átti frumkvæði að inn-
leiðingu svokallaðra smáhýsa sem
hugmyndin er að geti verið heimili fyr-
ir útigangsfólk, með samvinnu við vel-
ferðarráð Reykjavíkur. Eins og greint
hefur verið frá í Morgunblaðinu síð-
ustu daga gengur hægt að bregðast
við þörfinni á húsaskjóli fyrir heim-
ilislausa í borginni. Smáhýsin fjögur
voru viðleitni til þess, en tæpt ár er nú
liðið en ekkert hús hefur verið tekið í
notkun.
Húsin eru byggð eftir danskri fyr-
irmynd, svokölluðum fíklahúsum, sem
gefið hafa góða raun í nokkur ár í Dan-
mörku. „Við vorum úti í Kaupmanna-
höfn fyrir nokkrum árum í heimsókn
hjá fyrirtæki með svipaða starfsemi og
sáum þá svona hús sem voru tíma-
bundið á lóðum á Amager. Þá kviknaði
hugmyndin því okkur fannst þetta
smellpassa hérna,“ segir Sigurður.
Eiga að þola óvenjulegt álag
Húsin hafa verið löguð að íslenskum
aðstæðum, þannig að þau þoli meiri
veður en gengur og gerist í Kaup-
mannahöfn. Eins eru þau hönnuð með
það í huga að innbúið sé sterkt og geti
þolað meiri ágang en allajafna, enda
eru þau ætluð pörum eða ein-
staklingum sem eiga mjög erfitt með
að vera í sambýli við aðra. Öryggisgler
er í gluggum, hreinlætistæki eru úr
stáli og sérvalinn sjúkrahúsdúkur á
gólfum, sem á m.a. að þola að drepið sé
í sígarettum í gólfinu. Sigurður segir
að smáhýsin séu tilraun en takist hún
vel sé vonandi að fleiri hús verði reist
í kjölfarið.
Hugmyndin er sú að húsin geti
staðið tímabundið á ónotuðum lóðum
og færð úr stað þegar lóðirnar eru
teknar í notkun, eins og gert hefur
verið í Danmörku. Samkvæmt upp-
lýsingum frá velferðarráði Reykja-
víkurborgar eru það erfiðleikar við að
finna hentuga lóð sem valda því að
húsin hafa enn ekki verið tekin í notk-
un.
Óvenjusterk hús
Smáhýsin sem tafist hefur að reisa í Reykjavík eru hönnuð af
Íslendingum með þarfir útigangsfólks sérstaklega í huga
Ljósmynd/Félagsbústaðir
Kot Smáhýsin eru aðeins 25 fermetrar að stærð en þar rúmast þó helstu nauðsynjar með huggulegu fyrirkomulagi.
METAÐSÓKN er í íbúðir Stúdenta-
garða Félagsstofnunar stúdenta
(FS) sem leigir nemendum við Há-
skóla Íslands íbúðir. Umsóknar-
frestur rann út fyrir skemmstu og
liggja nú fyrir yfir 1.100 umsóknir.
Áætlað er að á bilinu 150–200 leigu-
einingum, þ.e.a.s. herbergjum eða
íbúðum, verði úthlutað en 721 leigu-
eining er í eigu FS.
Hjá FS fengust þær upplýsingar
að ljóst væri að lægra hlutfall um-
sækjenda fengi húsnæði nú en und-
anfarin ár. Fjöldi nema við HÍ hefði
aukist jafnt og þétt undanfarin ár en
þó sérstaklega mikið nú í ár þegar
Kennaraháskóli Íslands (KHÍ) sam-
einaðist HÍ.
Íbúar dvelja lengur en áður
Þá hefur þróunin undanfarin ár
verið sú að sífellt fleiri háskólanemar
fara beint í meistaranám að loknu
grunnnámi. Íbúar Stúdentagarða
dveljast því lengur á görðunum en
áður og verður þannig veltan hægari
og biðlistarnir lengri. Einnig má
gera ráð fyrir að erfiður húsnæðis-
markaður og ótryggir atvinnumögu-
leikar hafi áhrif á ákvarðanir íbúa
þegar kemur að því að velja milli
áframhaldandi náms eða fara út á al-
mennan húsnæðismarkað og vinnu-
markaðinn.
Að sögn Hákonar Arnar Arnþórs-
sonar, rekstrarstjóra Stúdentagarða
FS, eru nú í forvali íbúðir sem FS
fékk úthlutað hjá borginni á Skóga-
vegi 18–22, sem er við Sléttuveg,
nærri LSH í Fossvogi. Þar verða
byggðar 80 íbúðir ætlaðar fjöl-
skyldufólki og verða þær 2–3 her-
bergja. Vonast er til að þær verði til-
búnar til útleigu vorið 2010.
„Þetta er smá-dropi í hafið, smá-
viðleitni. Þetta er einn fyrsti áfang-
inn sem við erum að fara í gang með
eftir samkomulag sem undirritað var
við borgarstjóra í mars. Samningur-
inn hljóðaði upp á 600 íbúðir á næstu
4 árum,“ segir Hákon. ylfa@mbl.is
Metaðsókn í
stúdentaíbúðir
Yfir 1.100 sóttu um 150–200 íbúðir FS
Morgunblaðið/ Jim Smart
Íbúðir Stúdentagarðar á Lindargötu.
NÆSTKOMANDI föstudag munu
veitinga- og skemmtistaðirnir Ölstof-
an og Vegamót skila inn greinargerð
til lögreglustjórans í Reykjavík. Um
er að ræða andsvar við bréfi borgar-
yfirvalda þess efnis að staðirnir eigi
að loka eigi síðar en kl. 3 um helgar.
Fáar hávaðakvartanir
Að sögn Kormáks Geirharðssonar,
verts á Ölstofunni, hafa allar dagbók-
arfærslur lögreglunnar tengdar stöð-
unum tveimur verið yfirfarnar. „Þeg-
ar við vorum búin að lesa um 50
skýrslur þá voru kannski fjórar til
fimm sem lutu að hávaða hjá okkur.
Ég hef ekki lesið Vegamótaskýrsl-
urnar en yfirleitt var um að ræða okk-
ur að biðja lögreglu um aðstoð vegna
of drukkins fólks sem var að reyna að
komast inn á staðinn og var með
óspektir eða íbúa að kvarta yfir bílum
sem var ólöglega lagt í götunni. 90%
af skýrslunum voru um annað en há-
vaða frá Ölstofunni.“
Kvartanir frá síðasta sumri
Kormákur segir að þær fáu
skýrslur, sem vörðuðu hávaða frá
staðnum, hafi verið lagðar fram síð-
asta sumar, „þegar allt var meira og
minna í ólestri í öllum bænum. Það
var bara anarkí í miðbænum og lög-
reglan vissi ekki hvað hún átti að
gera. Svo þegar línur voru lagðar fór-
um við auðvitað eftir þeim og það tók
okkur kannski tvær helgar. Einmitt
þá voru kvartanirnar lagðar fram.“
Aðspurður segist Kormákur búast
við að fá svör frá borginni eftir 2-3
mánuði, miðað við afgreiðslu fyrri
mála. ylfa@mbl.is
Veitingamenn í miðborginni andmæla styttum afgreiðslutíma
Fæstar kvartanirnar
vegna of mikils hávaða
Morgunblaðið/Golli
Ölstofan Eigendur svara bréfi yf-
irvalda um styttri afgreiðslutíma.
Smáhýsin eru 25 fermetrar að
stærð og er áætlaður kostnaður
við gerð þeirra um 6 milljónir á
hvert hús, að frágangi á lóð með-
töldum. Í fyrstu tilraun er ætlunin
að taka fjögur hús í notkun, og
yrði heildarkostnaður því í kring-
um 24 milljónir króna.
Að sögn Sigurðar Kr. Friðriks-
sonar má áætla að kostnaðurinn
væri a.m.k. þrefalt meiri ef útvega
ætti jafnmörgum einstaklingum
íbúðir í hefðbundnu húsnæði í
stað smáhýsanna, en þau eru fyrst
og fremst ætluð pörum og munu
því líklega þjóna 8 manns allt í allt.
Útlit húsanna er hannað af Ask
verktökum, en Guðni Jóhannesson
hannaði burðarþol og lagnir. Húsin
eru byggð á stálgrind og klædd
bárujárni. Þau eru auðveld í bygg-
ingu og mjög traust, enda sérvalin
fyrir þennan hóp fólks, með
óvenjulegt álag í huga.
Þrefalt ódýrari en hefðbundnar íbúðir
VEÐURSPÁIN er mjög góð og allt
útlit fyrir að Benedikt Hjartarson
sundkappi reyni að synda áleiðis yf-
ir Ermarsundið í dag. Ákvörðunin
verður þó endanlegan tekin rétt
fyrir klukkan 7 í dag á höfninni, og
er það skipstjórinn Andy King sem
á lokaorðið.
Bendikt ætlar að reyna sundið
frá Dover í Englandi og yfir til
Frakklands. Bein lína yfir Erm-
arsundið er 32 km, en vegna
strauma syndir meðalsundmaður
sem klárar sundið um 40–45 km.
Meðaltími sundmanna er rúmar
þrettán klukkstundir en allt eins er
búist við að ferðin geti tekið Bene-
dikt um sextán klukkustundir.
Takist honum að klára sundið,
verður hann
fyrsti Íslending-
urinn til að synda
yfir Ermarsund.
Benedikt reyndi í
fyrra en varð þá
að gefast upp.
Lítill bátur
fylgir Benedikt
alla leið og um
borð í bátnum
verður Gréta
Ingþórsdóttir, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra.
Hægt verður að fylgjast með
framgangi Benedikts á vefsvæðinu
www.ermarsund.com. Þar er teng-
ill inn á vefsvæði, þar sem jafnan
má sjá staðsetningu hans.
Líklegt að Benedikt reyni
við Ermarsundið í dag
Benedikt
Hjartarson
Veikasta fólkið í borginni
mbl.is | Sjónvarp