Morgunblaðið - 16.07.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 11
FRÉTTIR
Ratleikir
Myndlist
Tónlist
Fjölskylduhátíð á Bifröst
Útimarkaður
Bifrastarlagið frumflutt
Leikrænminningabrot úr fortíðinni
Óvæntir gjörningar
Listasmiðja fyrir börn
Leiklist
Allir velkomnir á fjölskylduhátíðina á Bifröst föstudaginn 18. júlí
Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna
kl. 11 - 16 undir stjórn Eddu Björgvinsdóttur,
leikara og meistaranema.
MIKIÐ meira sást nú en í fyrra af
sandsíli á svæðinu frá Vík og til
Vestmannaeyja í sandsílaleiðangri
Hafrannsóknastofnunar. Valur
Bogason, útibússtjóri Hafrann-
sóknastofnunar í Vestmannaeyjum,
sagði að munurinn væri „eins og
dagur og nótt“. Í fyrra sást nánast
ekkert af síli á þessu svæði en nú
fannst talsvert af eins árs gömlu síli.
Sandsíli geta orðið a.m.k. 8-9 ára
gömul. Ekki hefur fundist mikið af
sílum frá því í vor og er ómögulegt
að kveða upp úr um nýliðun þessa
árs, að sögn Vals. Þau seiði eru nú
rétt að byrja að taka botn.
Fjögur svæði vöktuð
Sandsílaleiðangurinn er hálfnaður
en sandsíli eru vöktuð á fjórum
svæðum, það er við Ingólfshöfða, frá
Vík til Vestmannaeyja, á Faxaflóa
og á Breiðafirði. Búið er að kanna
við Ingólfshöfða og eins frá Vík til
Vestmannaeyja. Í dag verður leið-
angrinum haldið áfram á Faxaflóa
en honum lýkur í Breiðafirði um eða
eftir næstu helgi. Þetta er þriðja
sumarið sem Hafrannsóknastofnun
efnir til sandsílaleiðangurs.
Sílanna er leitað með plógi sem
nær sílunum úr sandbotni þar sem
þau grafa sig niður. Einnig er notuð
seiðavarpa til að ná sílum við botn-
inn og uppi í sjó.
Nýklakin seiði hrekjast með
straumum og halda sig oft nálægt
yfirborði sjávar. Á því stigi eru þau
mikilvæg fæða margra sjófugla, m.a.
fyrir lundapysjur. Þegar sílunum
vex fiskur um hrygg leita þau til
baka inn á búsvæðin og grafa sig í
sandinn. Þaðan leita þau svo upp í
sjó eftir fæðu.
Valur sagði að í fyrra hafi aðeins
fundist gamalt síli við Ingólfshöfða.
Nú er ársgamalt síli að koma þar
upp og eins frá Vík til Vest-
mannaeyja. Hins vegar vantar að
mestu eldri síli úr þeim árgöngum
sem nýliðun brast, það er frá ár-
unum 2005 og 2006.
gudni@mbl.is
„Eins og dagur og nótt“
Mun meira sást nú en í fyrra af ársgömlu sandsíli við Vestmannaeyjar og
Ingólfshöfða Sílaleiðangurinn heldur nú í Faxaflóa og Breiðafjörð til sílaleitar
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sandsíli Viðkomubrestur varð í sandsílastofninum við Suðurland 2005 og 2006. Klakið í fyrra tókst mun betur.
MALBIKUNARFRAMKVÆMDIR
standa nú yfir víða í Reykjavík.
Gnoðarvogur verður lokaður í dag
frá kl. 7.30 frá Skeiðarvogi að
Langholtsvegi. Lokað verður fram
yfir hádegi.
Hólaberg verður lokað frá Suð-
urhólum að Hraunbergi. Lokað
verður kl. 7.30 og verður lokað
fram yfir hádegi. Lokunin veldur
óþægindum fyrir íbúa í götunum
Klapparbergi, Lágabergi og
Neðstabergi þar sem botnlangarnir
lokast.
Umferðartafir
í Reykjavík
BÆJARSTJÓRN Seyðisfjarðar
skorar á ríkisstjórn Íslands að
leggja nú þegar fram áætlanir um
hvernig hún hyggst bregðast við
þeirri alvarlegu stöðu sem blasir
við sjávarútvegsfyrirtækjum eftir
síendurtekinn niðurskurð á afla-
heimildun. Þær mótvægisaðgerðir
sem boðaðar voru hafi engu skilað
til þeirra sem niðurskurðurinn hef-
ur bitnað verst á. Þá sé ljóst að
grípa verði til róttækra aðgerða til
að mæta síhækkandi olíuverði sem
bitni gríðarlega þungt á útgerðinni.
Vilja róttæk-
ari aðgerðir
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir á
Flugvallarvegi, frá Loftleiðahóteli
og niður í Nauthólsvík og hefur
gamli vegarkaflinn verið grafinn í
sundur þar sem malbika á nýjan.
Þetta er þriðji áfangi af fjórum í
deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir
að tengja lóðirnar þar sem Háskól-
inn í Reykjavík mun rísa undir
Öskjuhlíðinni við Loftleiðahótelið.
Sólbaðsdýrkendur þurfa þó ekki
að hafa áhyggjur, því leiðin út í
Nauthólsvík er ekki lokuð þrátt fyr-
ir framkvæmdirnar. Bráðabirgða-
vegur hefur verið lagður til hliðar
við vinnusvæðið og ættu því engar
umferðartafir að verða. Flugvall-
arvegur er aðkomuleið Landhelg-
isgæslunnar fyrir neyðarflug og því
grundvallaratriði að þar sé ávallt
greið leið fyrir umferð.
Áætlað er að vegurinn verði frá-
genginn um miðjan október. Þá
tekur fjórði áfangi við, en það er
bygging bílastæða á háskólalóðinni
sem nýtast eiga háskólanemum á
veturna og gestum Nauthólsvíkur á
sumrin. Háskólinn í Reykjavík mun
opna í Öskjuhlíð haustið 2009.
una@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Djúpt á því Það verður heilmikið jarðvegsrask þegar grafið er fyrir nýjum vegi.
Flugvallar-
vegur grafinn
í tvennt
Eftir Helga Ólafsson
Ólafsvík | Lítið sést til hrafna þetta ár-
ið. Enginn hrafn þáði matarúrgang
við kindakofann í vetur og ekkert
varp var í Snagabökkunum í vor.
Á vorin fá þeir hildirnar úr ánum á
vísan stað og dauð lömb ef svo ber
undir. Krummanna er saknað. Þeir
virðast vita allt. Það er bara verst að
skilja þá ekki.
Dag einn í vor sást hrafn vappa
græðgislega kringum kind sem var
að kara lamb. Var slegið föstu að nú
hefði hann skaðað annaðhvort lambið.
Allt var þó í lagi. Lambið var bara eitt
og var óskaddað. En viti menn.
Klukkutíma síðar bar ærin öðru
lambi. Það var dautt. Krumma hafði
ekki brugðist að skynja feigð og
dauða. Hann fékk án refja þessa krás
sem hans var samkvæmt samningi.
Krummi
fékk lambið
Morgunblaðið/Ómar