Morgunblaðið - 16.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 13
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
DEILDAR meiningar eru um að-
gerðir saksóknara stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag, sem á mánudag sak-
aði Omar Hassan al-Bashir, forseta
Súdans, um þjóðarmorð, stríðsglæpi
og glæpi gegn mannkyni og fór fram
á handtöku hans. „Ég get ekki leng-
ur horft undan,“ sagði Luis Moreno-
Ocampo er hann skýrði frá ákvörðun
sinni. Al-Bashir hefur neitað ásök-
ununum og sagt þær lygi. Fulltrúi
Súdans á þingi
Sameinuðu þjóð-
anna sagði fram-
göngu saksóknar-
ans ólöglega og
runna af pólitísk-
um rótum. Opin-
ber talsmaður
stjórnarinnar í
Súdan brást við
ákærunum með
ákafa og sagði Súdan myndi „breyta
Darfúr í grafreit.“
Aukinn öryggisviðbúnaður
Vegna aukins öryggisviðbúnaðar
hófu SÞ í gær að flytja starfsmenn
friðargæslunnar um set og einhverj-
ir þeirra munu yfirgefa landið.
Óttast er að ákæra saksóknarans
muni flækja eða jafnvel eyðileggja
tilraunir til að auka mátt og umsvif
alþjóðlegra friðargæsluliða í Súdan.
Einnig er óttast um að tilraunir til
sáttaumleitana á milli stjórnarinnar í
Súdan og uppreisnarhópa í Darfúr-
héraði verði stefnt í hættu.
Viðbrögð öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna þykja mikilvæg. Dómstóll-
inn hóf rannsóknir á ástandinu í
Darfúr árið 2005 að beiðni ráðsins.
Súdan er eitt þeirra landa sem ekki
hafa viðurkennt stríðsdómstólinn og
því verður málsmeðferð að fara í
gegnum öryggisráðið. Þetta er í
fyrsta sinn sem saksóknari stríðs-
glæpadómstólsins ber fram ákæru
um þjóðarmorð og setur fram slíka
ákæru gagnvart ríkjandi leiðtoga frá
stofnun dómstólsins árið 2002.
Ákæra gæti leitt til ofbeldisöldu
SÞ hófu í gær að flytja starfsmenn friðargæslunnar í Súdan um set vegna aukins öryggisviðbúnaðar
Opinber talsmaður stjórnarinnar í Súdan sagði að Darfúr yrði breytt í grafreit í kjölfar ákærunnar
Al -Bashir
BÁLFÖR leiðtoga konunglegu ættarinnar Ubud og
fleiri meðlima hennar var haldin á Balí í Indónesíu í
gær. Leiðtoginn hét Tjokorda Gde Agung Suyasa og dó
28. mars síðastliðinn. Rík hefð er fyrir því á Balí að fjöl-
skyldur kveðja látna ættingja á mikilfenglegan hátt. Á
myndinni sjást leifar goðsagnadrekans Naga brenna.
AP
Starað inn í logandi gin eilífðarinnar
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins ætlar að hefja herferð
gegn háum gjöldum símafyrirtækja
fyrir smáskilaboð í farsímum, öðru
nafni sms. Segja embættismenn í
Brussel að lagðar verði fram tillögur
þess efnis í október.
Ætlunin er að þvinga fram breyt-
ingar á innbyrðis reikisamningum
fyrirtækjanna en alls eru sendir um
2,5 milljarðar smáskilaboða ár hvert í
ríkjum ESB. „Borgarar ESB ættu að
geta sent smáskilaboð yfir landamæri
án þess að láta okra á sér,“ sagði Viv-
iane Reding sem fer með fjarskipta-
mál í framkvæmdastjórninni.
kjon@mbl.is
Boða aðgerðir
gegn sms-okri
74 ÁRA Indverji, Shiv Charan, hef-
ur helgað líf sitt því að ná tíunda árs
prófum í grunnskóla. Hann komst að
því í síðustu viku að hann hefði fallið
í öllum fögunum nema einu. Þetta
var 38. tilraun hans.
Charan hefur heitið því að kvæn-
ast ekki fyrr en hann útskrifaðist, en
hann tekur ekki í mál að giftast
stúlku yfir þrítugu. Nágrannar hans
styðja hann þótt hann sé að þeirra
mati „líklega versti námsmaður
heims“. sigrunhlin@mbl.is
„Versti náms-
maður heims“
MEÐ síhækkandi verði á gulli hefur
ólögleg gullvinnsla aukist, sérlega
þar sem efnahags- og stjórnmála-
ástand er viðkvæmt. Fátækt fólk í
Gana, Kongó, Perú og víðar leggur
líf sitt í hættu við gullvinnslu, en
hún getur fært þeim tvisvar til
þrisvar sinnum meira í aðra hönd
en hefðbundinn búskapur.
Dæmi eru um að alþjóðleg stór-
fyrirtæki hertaki gullgraftarsvæði
og troði þar um tær einstaklingum
sem hafa grafið þar upp gull með
handafli árum saman. Á hinn bóg-
inn er líka algengt að fólk flykkist
að námum stórfyrirtækja og grafi
þar í óleyfi. Þessu fylgja oft átök.
Þá eru ekki allir gullgrafarar fá-
tækir bændur. Svokallaðir „kúrek-
ar“ koma til Gana frá Búrkína
Fasó, Tógó og Benín og grafa ólög-
lega, jafnvel með ýtum. Gullverð
hefur þrefaldast á fimm árum og
því gætir óróa vegna ólöglegrar
gullvinnslu þar sem það þekktist
ekki fyrr. sigrunhlin@mbl.is
!
"
#
$$
$
"
"
%!
$
!"#$%
&'
(
(
" )$%
"
*
)*+,-.))/$*)-0/$
1,//2.))3444
&
&
5-0/-677)*+,-.))/$
!"
#
!!
'
$
%
( $
%
#
) * $
%
& !
' ! !!
!
%
+
+
'
(!
'
#
) !
"
!!
(!
*
8633$3$2$&
$29-.9$./2&.
$
+ "
",
(!
%!!
! !!
&
&
* $
*! -* %
( . '
/ $
." '
! ) !
'" $" 0#1%,/
$
0
*63/$:,&2;</7.-.:)*+,-.))/,*)-0/$
1 !!
&
+,!
!
+-%,.-%
#
#
/
,#
/#
%#
-
!,-
.
+
*8633,&)*+,-.))/,*)-0/$
2
!
(!
3
*
!"
!
!,
#4
%
/& !
+0
!
10
56
Blóðugt gull og grátt silfur
Um hvað snýst ákæran?
Settar voru fram 10 ákærur á hendur
Bashir, þrjár vegna þjóðarmorðs,
fimm vegna glæpa gegn mannkyni
og tvær fyrir stríðsglæpi. Luis Mo-
reno-Ocampo, saksóknari, segist
hafa óyggjandi sannanir fyrir því að
Bashir hafi stjórnað markvissum að-
gerðum frá 2003-2008 í þeim til-
gangi að bæla uppreisnir í Darfur-
héraði.
SÞ telja að 300.000 manns hafi látið
lífið og tæplega þrjár milljónir hafi
verið hraktar frá heimilum sínum.
Grimmilegum aðferðum hafi verið
beitt, eins og hópnauðgunum, og
stórir hópar fólks sveltir til bana.
Verður Bashir handtekinn?
Ólíklegt þykir að beiðni saksóknar-
ans um að réttað verði yfir Bashir
leiði til handtöku hans á næstunni.
Stríðsglæpadómstóllinn hefur ekki
eigin lögreglu og reiðir sig því á sam-
starf viðkomandi ríkja við úrlausn
mála. Saksóknari dómstólsins segir
að ef Súdan sýni ekki samstarfsvilja
verði öryggisráðið að finna leiðir til
úrlausna. Kína og Rússland hafa
neitunarvald í öryggisráðinu sem
þau eru talin líkleg til að beita.
S&S