Morgunblaðið - 16.07.2008, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
EKKI ætti að hafa farið framhjá
neinum að fjármögnun bankanna er
mun erfiðari nú um stundir en hún
var fyrir löngu. Ein þeirra fjármögn-
unarleiða sem ef til vill hefur orðið
meira áberandi hjá bönkum er út-
gáfa víxla, sem yfirleitt eru óverð-
tryggðir og vaxtalausir. Því fer þó
fjarri að útgáfa víxla sé endilega allt-
af ódýrasti fjármögnunarkosturinn
eða ódýrari en venjuleg skuldabréfa-
útgáfa. Fjárfestar gera kröfu um
vissa ávöxtun þegar þeir kaupa víxla
líkt og aðra skuldapappíra. Þess
vegna kaupa þeir víxlana undir nafn-
virði, sem er sú upphæð sem seljandi
víxilsins þarf að greiða á gjalddaga.
Ávöxtunin fer því eftir því hversu
mikil afföllin af víxlunum eru í upp-
hafi og að sama skapi kostnaður út-
gefanda víxilsins.
Mikilvæg fyrir hina smærri
Í Morgunblaðinu í gær má sjá
þrjár auglýsingar banka um að taka
eigi víxlaflokka til viðskipta í kaup-
höll Nasdaq OMX á Íslandi. Eins og
áður segir er útgáfa víxla orðin
meira áberandi, en viðmælendur
Morgunblaðsins eru þó á því að út-
gáfan sé ekki að aukast. Samdráttur
í útgáfu skuldabréfa gæti því verið
ástæða þess að meira ber á víxlaút-
gáfu, en því fer fjarri að bankarnir
hafi allt í einu uppgötvað nýja leið til
fjármögnunar. Að sama skapi reiða
stóru bankarnir sig ekki á víxlaút-
gáfu sem fjármögnunarleið, hún er
mun mikilvægari fyrir smærri aðila
á markaði.
Eins og fram kemur af þeim aug-
lýsingum sem birtust í Morg-
unblaðinu geta bankarnir þó aflað
töluverðs fjár með útgáfunni,
heildarheimild í öllum flokkunum
sem Glitnir auglýsti var 10 millj-
arðar króna og heildarheimildin hjá
Landsbankanum var 20 milljarðar í
hverjum flokki. Þessar heimildir eru
þó sjaldan fullnýttar, sbr. að Lands-
bankinn tekur samanlagt til við-
skipta 300 milljónir, en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hafa
bankarnir flokkana rúma til þess að
geta brugðist við, verði eftirspurn
eftir víxlunum mikil.
Víxlar hafa orðið meira
áberandi sem fjármögnun
Ekki endilega ódýrasti kosturinn fyrir bankana þótt víxlarnir beri ekki vexti
Í HNOTSKURN
» Þegar víxlarnir koma ágjalddaga má gera ráð
fyrir að útgefendurnir hafi
gefið út nýja víxla til þess að
fjármagna greiðslurnar.
» Aðstæður á fjármála-mörkuðum hafa verið
erfiðar og því vilja fjárfestar
síður binda fé sitt til lengri
tíma, m.a. vegna verðbólgu-
áhættu.
» Víxlar eru skamm-tímapappírar og geta því
talist hentugur fjárfesting-
arkostur miðað við að-
stæður.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
1,5% í gær og endaði í 4.126 stig-
um, en hún er nú 54% lægri en hún
var í sínu hæsta gildi fyrir um ári síð-
an, 9.016 stigum. Exista lækkaði
um 5,30%, HB Grandi um 4,76% og
Atorka um 4,74%. Atlantic Petrol-
eum hækkaði um 0,67%.
Gengi krónunnar veiktist um
0,73% í gær. halldora@mbl.is
Áfram lækkanir
í Kauphöllinni
● ROSKILDE
Bank hefur ráðið
fyrirtækjasvið
Danske Bank til
að aðstoða við að
selja þann fyrr-
nefnda. Þetta er
gert að kröfu
danska seðla-
bankans sem
veitti Roskilde 12 milljarða króna
neyðarlán. Samkvæmt tilkynningu
frá Roskilde skal bankinn seldur inn-
an sex mánaða og helst fyrr.
Frank Aaen, talsmaður hins
vinstrisinnaða stjórnmálaflokks En-
hedslisten, vill að ríkið taki yfir bank-
ann eigi að nýta fé almennings til að
koma bankageiranum til aðstoðar
með þessum hætti.
halldora@mbl.is
Danske Bank sjái um
sölu Roskilde Bank
● ÞRÁTT fyrir að bandarískir bankar
séu langt frá því að vera í jafn
slæmum málum og þeir voru undir
lok níunda áratugar síðustu aldar,
hafa menn þar í landi áhyggjur af
því að allt að 150 bankar gætu orð-
ið gjaldþrota, eða farið í greiðslu-
stöðvun á næstu 12-18 mánuðum,
að því er segir í frétt New York Tim-
es.
Í vikunni tók alríkisstjórnin yfir
rekstur IndieMac bankans, sem er
afsprengi íbúðalánafyrirtækisins
Countrywide, og er hann stærsti
bankinn í meira en tuttugu ár til að
leggja upp laupana. Eignir IndieMac
námu 32 milljörðum dala.
bjarni@mbl.is
Þrengingar
bandarískra banka
● SVEIFLUR und-
anfarinna vikna á
heimsmarkaðs-
verði á olíu héldu
áfram í gær, en
Brent-Norðursjáv-
arolía lækkaði
um 4,92% í við-
skiptum gær-
dagsins og stóð
við lokun markaða í 138,60 dölum
samkvæmt upplýsingum frá Bloom-
berg.
Lækkun olíuverðs nægði þó ekki
til að lyfta geði fjárfesta á hlutabréfa-
mörkuðum, en samkvæmt frétt Fin-
ancial Times er svartsýni mjög
ríkjandi meðal fjárfesta. Lækkandi
gengi dollara gagnvart evru gerði lítið
til að bæta þar úr.
bjarni@mbl.is
Svartsýni einkennir
hlutabréfamarkaði
SKULDATRYGGINGARÁLAG á
skuldabréf íslensku bankanna hef-
ur hækkað mikið undanfarna daga,
eða um 10-16% það sem af er júl-
ímánuði, og stefnir í svipuð gildi og
þegar hæst lét í lok mars. Álag á
bréf Kaupþings er nú 9,25% og
Glitnis litlu lægra. Álag á bréf
Landsbankans er hins vegar um
6,0%, samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum. Athygli vekur að
á sama tíma hefur álag á bréf ís-
lenska ríkisins lækkað um 7%.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að markaður
með skuldatryggingar íslensku
bankanna sé fremur ógagnsær og
viðskipti strjál þannig að erfitt sé
að átta sig á ástæðum fyrir breyt-
ingum á skuldatryggingarálagi
þeirra. Líklegt megi þó telja að
hækkunin á álaginu undanfarið
tengist áfram lítilli trú markaðs-
aðila á fjármálageiranum í heild
sinni.
Hlutabréf banka hafi lækkað um
allan heim og neikvæðar fréttir og
óvissa um framtíð lánasjóðanna
Freddie Mac og Fannie Mae við-
haldi mikilli óvissu. Við slíkar að-
stæður forðist fjárfestar banka, ís-
lenska sem erlenda. bjarni@mbl.is
Hækkandi álag
Skuldatryggingarálag bankanna nálg-
ast þær hæðir sem náðust í mars í ár
NÚ stendur yfir ein stærsta ráð-
stefna tölvuleikjaframleiðenda í
heimi, E3, en á henni kynna fram-
leiðendurinir nýja og væntanlega
leiki auk þess sem framleiðendur
leikjatölva kynna nýja þjónustu fyrir
eigendur leikjatölva eins og Nin-
tendo Wii, Playstation 3 og Xbox 360.
Athyglisvert er að sjá hve mikla
áherslu tölvuframleiðendurnir
leggja á að auðvelda notendum að
tengjast hver við annan, skemmta
sér saman, skiptast á ljós- og hreyfi-
myndum og byggja þar með upp
samfélag spilara í stað þess að þar
sitji hver í sínu horni og skemmti sér
einir.
Þá munu eigendur Playstation 3
geta hlaðið niður í tölvur sínar kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum yfir
netið og horft á í sjónvarpi, en þetta
hafa eigendur Xbox 360 getað um
nokkurt skeið. Þá afhjúpaði Micro-
soft, sem er framleiðandi Xbox 360,
samstarfssamning við fyrirtækið
Netflix, sem er eins konar mynd-
bandsleiga yfir netið. Munu eigendur
Xbox geta leigt mynd frá Netflix,
boðið öðrum Xbox eigendum í sýnd-
arherbergi þar sem þeir geta horft á
myndina saman. bjarni@mbl.is
Meira en bara leikjatölvur
Reuters
Spore Will Wright, stofnandi leikjafyrirtækisins Maxis, kynnti leikinn Spore, en þar stýra spilarar þróun lífveru frá
einfrumungi til hámenningar, en eins og sjá má er útlit lífveranna aðeins takmarkað af hugmyndaflugi spilaranna.
Nýjungar kynntar
á E3-ráðstefnunni
ROBERT Wade,
prófessor í hag-
fræði við London
School of Econ-
omics, segir þá
mynd sem pró-
fessorarnir Frið-
rik Már Bald-
ursson og
Richard Portes
draga upp af
ástandi mála í ís-
lensku efnahags-
lífi of bjarta. Í Financial Times birt-
ist grein eftir Wade þar sem hann
svarar grein þeirra Friðriks og
Portes, þar sem þeir gagnrýna
skrif hans um Ísland og segja hann
of svartsýnan fyrir Íslands hönd.
Wade bendir á að í nýlegri
skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
segi að staða efnahagsreikninga ís-
lenskra fyrirtækja sé varhugaverð,
mikið ójafnvægi sé í hagkerfinu í
heild, sem sé auk þess mjög háð er-
lendri fjármögnun. Gert sé ráð fyr-
ir því að hagvöxtur stöðvist árið
2008 og að hagkerfið dragist saman
árið 2009 um 2-3%. Þá muni verð-
bólga verða of há fram yfir árslok
2008. bjarni@mbl.is
Dragi upp of
bjarta mynd
Robert
Wade
Wade segir horfur
dökkar hér á landi
8
*
1 /
8=
>=
?'@+AB C!4'D(E
- 3$3 $ ! "#!$
%&'&()#!$
*+&'&()#!$
,-%#!$
' -% -&. -#!$
/!$- -)!0 12
3" -&'&()#!$
4()5- 1 #!$
6 . -2 #!$
& #!$
78
%&( (&9(&:&;<;&!$.$#!$
= -#!$
>(&#!$
:3
3"31
?@#!$
% %-"-& =
% %-"7 %& ( 7A
- B&=
C# &<-#!$
&=11- 1 -:%+:- #!$
D- (%+:- #!$
- 3*# 3"32 E %(&= ( - ( E$
/'& -#!$
/ )-:< #!$
& , /
3
D-:-)%-
1-
- .:F 1G
4()
$H@$ @$?$@ II$@$?
?$?$ @?$?@$H
$?@
H$I
HI$@I$??
H@$I?H$@ @$HH$?
$$?@
H$$ $$?I
I$$?
9
$ @$ $@$ 9
9
9
$I$ H$@ 9
@JH
J@
@J J@
J?
@J
IJ?
?J HJ?H
J@@
I@J 9
H ?J 9
9
9
9
@JH@
JI
JI
@J?
J J
@J J@
IIJ ?J HJ
J@I
I HIJ IJ 9
IJ I 9
<+ -
*-:-)%
@
@
9
9
?
9
9
9
9
1 % - 1
*-:$* &:
H$ $ ?$@$ @$ ?$@$ $?$
● NÆRRI þrjú af hverjum fjórum að-
ildarfyrirtækja SA hafa ráðist í hag-
ræðingaraðgerðir á árinu eða hyggj-
ast gera það, að því er kemur fram í
nýrri könnun SA.
Mikill meirihluti fyrirtækja hefur
ekki þurft að glíma við lánsfjárskort
en hjá þeim fyrirtækjum sem hafa
gert það birtist hann helst í vanda við
öflun lánsfjár til dagslegs rekstrar en
einnig í erfiðleikum við fjármögnun
nýrra verkefna. Vanskil viðskiptavina
valda þessum fyrirtækjum erf-
iðleikum, að því er kemur fram í
könnuninni. bjarni@mbl.is
Fyrirtæki ráðast í
hagræðingaraðgerðir