Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 15
MENNING
EF Frökkum verður ekkert ágengt
í forvörslustarfi í hellunum í Las-
caux mun UNESCO setja þá á lista
yfir menningarminjar í bráðri
hættu. Nefndin krefst þess að sjálf-
stæðum matsmönnum verði hleypt
inn í hellana til þess að meta ástand
þeirra.
Sveppagróður hefur ógnað
myndverkunum frægu frá því 2001
og ekki hefur enn tekist að uppræta
hann. Vilja sumir sérfræðingar
meina að mistök við val á loftræsti-
kerfi hellanna, auk of tíðra heim-
sókna hafi búið í haginn fyrir inn-
rás sveppanna, en hellarnir hafa
verið lokaðir almenningi frá 1963.
Ef hellarnir verða skráðir á
listann þykir það jafngilda yfirlýs-
ingu um að frönsk stjórnvöld séu
ófær um að leysa vandann. Meðal
menningarverðmæta á listanum
eru Búdda-líkneskin í Bamyan-
dalnum í Afganistan sem talibanar
eyðilögðu að hluta. Aðeins einn
staður í Vestur-Evrópu er á listan-
um, Dresden-dalurinn í Þýskalandi
sem þykir merkilegur í byggingar-
listasögulegu tilliti, en þar er ráð-
gert að leggja hraðbraut.
gunnhildur@mbl.is
Lascaux
í hættu
Hestur Mynd úr Lascaux-hellunum.
RISAR er heitið
á fimm listaverk-
um sem ætlunin
er að reisa á
norðaustur-
Englandi á næstu
tíu árum. Ris-
arnir eru sköp-
unarverk lista-
mannsins Anish
Kapoor og bera
nafn með rentu.
Þeir eru samsettir úr málm-
hringjum og vírum og eiga að
minna á iðnaðarsögu svæðisins. Sá
fyrsti, Temenos að nafni, rís í Midd-
lehaven í Middlesborough næsta
sumar og verður hann um fimmtíu
metrar á hæð og rúmir hundrað
metrar á lengd. Síðan rísa risarnir
hver á fætur öðrum í Stockton,
Hartlepool, Darlington og Redcar.
Í The Independent um helgina
eru vinsældir gríðarstórra lista-
verka í opinberu rými á Bretlandi
raktar til listamannsins Antony
Gromley sem gerði stóra manns-
mynd með flugvélavængi sem hann
kallaði „Engil norðursins“ í Gates-
head fyrir áratug.
gunnhildur@mbl.is
Risar að
fæðast
Anish Kapoor
Á TÓNLEIKUM í Dóm-
kirkjunni kl. 12.15 á morgun
koma fram mezzosópran-
söngkonan Sólveig Sam-
úelsdóttir og Lenka Mátéová
orgelleikari. Hádegistón-
leikaröðin er haldin í sam-
vinnu Félags íslenskra org-
anleikara og Alþjóðlegs
orgelsumars.
Sólveig lauk BA-námi í
tónlist frá Listaháskóla Ís-
lands árið 2005 og Lenka hefur starfað hér á Ís-
landi frá 1990, en hún er nú organisti við Kópa-
vogskirkju. Efnisskrá þeirra Sólveigar og Lenku
er tékknesk/íslensk og flytja þær m.a. verk eftir
Pál Ísólfsson og Sigvalda Kaldalóns.
Tónlist
Tékknesk og
íslensk blanda
Lenka Mátéová og
Sólveig Samúelsdóttir
FRANSKI kórinn Chorale
Eranthis, sem er blandaður
kór frá Barr í Elsass, heldur
tvenna tónleika á Íslandi í
vikunni.
Kórinn syngur blandaða
kirkjutónlist frá Evrópu,
ættjarðarlög, þjóðlög og
margt fleira. Sungin verða
lög eftir Frönsku tónskáldin
Josquin Desprez, Guillaume
Costeley, J. Escobar, Jac-
ques Offenbach og Bobby Lapointe.
Fyrri tónleikarnir verða í Digraneskirkju,
Kópavogi annað kvöld kl. 20, en síðari tónleikarnir
verða í Skálholtsdómkirkju á föstudaginn kl. 20.
Stjórnandi kórsins er Chloé Frantz.
Tónlist
Franskur kór í
íslenskum kirkjum
Chorale Eranthis
LISTAVEISLA verður haldin
í Þykkvabæ annað kvöld sem
samanstendur af myndlist-
arsýningu og tónleikum.
Klukkan 18 verður opnuð
sýning í skólahúsinu þar sem
þrír listamenn sýna verk sín,
þau Georg Guðni, Arngunnur
Ýr og Gunnhildur Þórunn
Jónsdóttir. Sýningin stendur
yfir til 27. júlí.
Síðar um kvöldið fara tón-
leikar fram í Hábæjarkirkju og það eru þau Páll
Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth sem
koma fram þar.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30, aðgang-
eyrir er 1.500 krónur og allir velkomnir.
Listir
Listaveisla í
Þykkvabæ
Georg Guðni
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„ÞAÐ er alltaf skemmtilegast að
syngja heima og algjör lúxus að geta
farið heim í mat milli æfinga,“ segir
Garðar Thór Cortes glettinn um til-
hlökkunina að syngja í voróperu Ís-
lensku óperunnar.
Garðar og Dísella Lárusdóttir
fara með aðahlutverkin í Ástar-
drykknum eftir Donizetti en síðustu
misseri hafa þau bæði verið með
annan fótinn eða báða erlendis í
spennandi verkefnum.
Skemmtilegt verkefni
„Það er algjör draumur að syngja
Donizetti. Hann á vel við mína rödd
og Nemorino er æðislegt hlutverk
að fást við,“ segir Garðar.
Dísella tekur í sama streng:
„Þetta er ofboðslega skemmtileg
rulla, mikið gaman og grín og verð-
ur örugglega mjög skemmtilegur
tími meðan við æfum og flytjum
verkið.“
Í hlutverki kisu sex ára
Síðasta óperuhlutverk Garðars
var í Öskubusku sem sett var upp
fyrir um tveimur árum. „Mér líður
best á óperusviðinu. Og það er gam-
an að það skuli vera á Íslandi að ég
tek aftur þátt í óperuuppfærslu,“
segir Garðar sem einnig hefur sung-
ið hjá Íslensku óperunni hlutverk í
verkinu Dokaðu við og söngleiknum
Carmen Negra.
Dísella hefur einnig tekið þátt í
uppfærslu við Íslensku óperuna:
„En það var þegar ég var sex ára og
lék kisu í Nóaflóðinu,“ segir hún og
hlær.
Garðar og Dísella hafa einu sinni
sungið saman, á jólatónleikum sem
haldnir voru í Grafarvogskirkju og
hlakkar Garðar til samstarfsins:
„Okkur kom vel saman þá og mér
líst mjög vel á þetta,“ segir hann.
Dísella er á sama máli: „Hann er
yndislegur strákur og við höfum
mjög fínan samhljóm,“ segir hún.
Þarf að forðast lestarnar
Dísella hefur undanfarna mánuði
starfað við Metropolitan-óperuna í
New York en hún er búsett í New
Jersey með manni sínum. „Leigan
þar er örlítið ódýrari en á Manhatt-
an. Svo ek ég bara í vinnuna,“ segir
hún, svo blaðamaður stenst ekki að
spyrja hvers vegna hún taki ekki
lestina: „Ég myndi helst vilja taka
lestina því það er umhverfisvænna,
en í hvert skipti sem ég fer með lest-
inni er einhver hóstandi í kringum
mig og ég hef bara ekki mátt við því
að veikjast,“ útskýrir Dísella.
Vinirnir þekkja ekki
stjörnurnar
Hjá Metropolitan var Dísella
varasöngvari í miklu óperuverki
sem byggir á lífi Mahatma Gandhi.
„En stelpan veiktist aldrei svo ég
steig aldrei á svið,“ segir Dísella.
„En þetta var rosaleg upplifun, og
mér leið alltaf eins og algjörum nörd
þegar ég talaði af ákefð við vini mína
heima um að hafa rekist á allskyns
óperustjörnur,“ útskýrir Dísella en
bætir við að vinirnir hafi yfirleitt
hváð þegar hún sagði þeim frá
stjörnufansinum. „Óperustjörn-
urnar virðast ekki jafnvel þekktar
og Britney Spears.“
Dísella reiknar með að flytjast til
Washington D.C. á næstunni en
framundan eru ýmis verkefni hér og
þar en um jólin syngur hún á Vínar-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands.
Af Garðari er það að frétta að
hann hefur í nógu að snúast og
syngur m.a. í ágúst á tónleikum með
Kiri Te Kanawa á eyjunum Mön og
Jersey.
Draumur að syngja Donizetti
Garðar Thór Cortes og Dísella Lárusdóttir syngja aðalhlutverkin í voróperu
Íslensku óperunnar, Ástardrykknum eftir Donizetti Frumsýning 6. febrúar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Góð saman „Hann er yndislegur strákur,“ segir Dísella um kynni sín af
Garðari. Bæði hlakka mjög til samstarfsins sem framundan er.
Morgunblaðið/Golli
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur.mbl.is
UNDIRBÚNINGUR er nú hafinn að Nátt-
úrufræðasetri á Húsabakka í Svarfaðardal og
hefur Hjörleifur Hjartarson verið ráðinn verk-
efnisstjóri til eins árs. Hann hefur formlega
störf 1. ágúst og vonast er til að starfsemi hefj-
ist í vetur. „Ýmiss konar starf hefur verið unn-
ið þar síðan skólahald lagðist af, en hugmyndin
um Náttúrufræðasetur hefur strandað á fjár-
magni,“ segir Hjörleifur. „Síðan gerðist það
núna að það fengust fjórar milljónir úr mót-
vægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar til þess að
byrja á þessu.“
Hugmyndin er að náttúrufræðasetrið sam-
anstandi af náttúruskóla þar sem nemendur af
öllum skólastigum geti sótt námskeið af ýms-
um toga, aðstöðu fyrir fræðimenn og miðstöð
fyrir ferðamennsku. „Grunnurinn að þessu er
friðland Svarfdæla sem var stofnað 1972.
Húsabakki er í jaðrinum á því og það gengur
yfir allan dalbotninn í neðri hluta Svarfaðar-
dals. Þetta er votlendi með miklu fuglalífi og
hugmyndin er að nýta þá auðlind.“
Sýning verður sett upp í náttúrufræðisetr-
inu sem að grunni til mun byggjast á gripum
frá byggðasafninu Hvoli á Dalvík. Þar er til
stórt safn af uppstoppuðum votlendisfuglum
og fleiru sem fært verður að hluta á Húsa-
bakka. Því menningarstarfi sem verið hefur á
staðnum að undanförnu verður ekki raskað
með til komu Náttúrufræðisetursins. „Skólinn
er vel í sveit settur og hefur verið þungamiðja
sveitarinnar. Við viljum hafa sem flestar stoðir
undir starfseminni þarna. Þarna eru tvö eld-
hús, íþróttahús og allt til alls, svo það liggja
þarna miklir möguleikar.“
Náttúran í Svarfaðardal virkjuð
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Í náttúrunni Hjörleifur Hjartarson.
Skólahald, fræði- og ferðamennska á væntanlegu Náttúrufræðasetri
Í HNOTSKURN
»Setrið hefur verið í bígerð frá árinu2005 þegar skólahald var lagt af á
Húsabakka.
»Ýmis starfsemi hefur verið í húsinusíðan, t.d. leiklistarskóli Bandalags
íslenskra leikfélaga, jógasetur, nudd-
stofa og aðstaða fyrir ferðafólk
Hverjir syngja í uppfærslunni?
Auk Garðars Thórs og Dísellu syngja
Bjarni Thor Kristinsson og Ágúst
Ólafsson stærri hlutverk í óperunni
Um hvað er verkið?
Óperan segir af bóndanum Nemor-
ino sem er ástfanginn af Adínu sem
er auðugur landeigandi. Herforinginn
sjálfumglaði Belcore biður Adínu að
giftast sér. Í örvæntingu sinni kaupir
Neomrino ástarelexír af fúskaranum
Dulcamara, en hann veit ekki sem er
að elexírinn er bara venjulegt vín.
Hversu vinsæl er óperan?
Ástardrykkurinn er í 20. sæti yfir
mest fluttu óperur í Norður-Ameríku.
S&S