Morgunblaðið - 16.07.2008, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Karl BergmannGuðmundsson
fæddist í Víðinesi í
Hjaltadal 12. nóv-
ember 1919. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Eiri
4. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Anna Pálína Lofts-
dóttir, f. 7.5. 1900,
d. 5.6. 2000 og Guð-
mundur Björnsson,
vélsmiður á Siglu-
firði, f. 24.5. 1876, d.
16.11. 1957.
Karl kvæntist 9.7. 1949 Höllu
Jóhannsdóttur, f. í Reykjavík
20.11. 1923. Foreldrar hennar
voru hjónin Jóhann Ármann Jón-
asson úrsmiður í Reykjavík, f. 2.1.
1877, d. 31.5. 1965 og Ólöf Jóns-
dóttir, f. 1.10. 1883, d. 2.11. 1964.
Börn Höllu og Karls eru; 1) Anna
skrifstofumaður, f. 20.7. 1950,
gift Ómari Hannessyni rafverk-
taka í Reykjavík, f. 4.9. 1948.
Börn þeirra eru: a) Hildur for-
stöðumaður hjá Flugleiðahót-
elum, f. 10.7. 1968, gift Pétri Pét-
urssyni framkvæmdastjóra hjá
365 miðlum, f. 3.12. 1967. Þau
eiga tvo syni, Ara Karl, f. 29.8.
2001 og Davíð, f. 27.7. 2007. Son-
ur Péturs, er Arnar Már, f. 21.6.
1993. b) Rúnar framkvæmdastjóri
inu. Hann útskrifaðist stúdent frá
Verslunarskóla Íslands 1945, og
var það fyrsti stúdentaárgangur
skólans, 7 strákar sem alla tíð síð-
an héldu vinskap, síðan Cand Oe-
con frá Háskóla Íslands 1950.
Karl var skrifstofustjóri hjá Jóni
Loftssyni hf. í Reykjavík 1941-
1943 og 1951-1953. Hann fór í
starfsnám hjá Deutsche Bank AG
í Þýskalandi 1954-55 og hóf störf
hjá Landsbanka Íslands 1955, þar
sem hann starfaði til starfsloka
1990, lengst af sem skipulags-
stjóri bankans. Karl lét sig miklu
skipta sveitarstjórnarmál á Sel-
tjarnarnesi og var oddviti hrepps-
nefndar 1962-74. Í sýslunefnd
Kjósarsýslu og endurskoðandi
sýslunefndar 1962-74. Í skipulags-
nefnd höfuðborgarsvæðisins
1964-78. Í bæjarstjórn Seltjarn-
arnesbæjar 1974-78, forseti bæj-
arstjórnar 1974-77. Í sjórn
Reykjanesfólkvangs frá stofnun
1975-82 og í stjórn Bláfjallafólkv-
angs frá stofnun 1973-90. For-
maður byggingarnefndar kirkj-
unnar á Seltjarnarnesi og í
byggingarnefnd Háskólabíós
1985-92. Karl var einn af 27
stofnendum Rótarýklúbbs á Sel-
tjarnarnesi 1971. Þá tók hann
einnig virkan þátt í starfi Odd-
fellow-reglunnar, fyrst í stúkunni
Hallveigu nr. 3 og var síðar einn
af stofnendum stúkunnar Þor-
geirs nr. 11, 28.11. 1964, þar sem
hann gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum.
Útför Karls fer fram frá Sel-
tjarnarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Nikita ehf., f. 30.7.
1970, í sambúð með
Aðalheiði Birg-
isdóttur yfirhönnuði
Nikita ehf., f. 14.10.
1969, sonur þeirra
er Frosti, f. 11.12.
2005. Dóttir Rúnars
er Vera Sif, f. 5.6.
1993. c) Karl Berg-
mann myndlist-
armaður, f. 6.6.
1975, kvæntur Hye
Joung Park mynd-
listarmanni, f. 8.12.
1975. Sonur þeirra
er f. 28.6. 2008. 2) Þormóður
myndlistarmaður, f. 28.12. 1958,
d. 2.3. 2000. 3) Auður leikskóla-
kennari í Vestmannaeyjum, f. 4.1.
1963, gift Sigurði Þór Hafsteins-
syni stýrimanni í Vestmanna-
eyjum, f. 30.10. 1963. Dætur
þeirra eru Ólöf Halla, f. 2.4. 1995
og Jóhanna Helga, f. 17.2. 1998.
Dætur Sigurðar eru Ásta Rut, f.
1.10. 1985, og Vala Dögg, f. 10.2.
1988. 4) Jóhann Ármann lögfræð-
ingur, f. 18.6. 1964, í sambúð með
Mariu Jose Juan Valero lækni, f.
29.4. 1967. Börn þeirra eru Car-
los, f. 9.6. 2004 og Yasmin, f. 2.2.
2006.
Karl ólst upp á Vegamótum,
Seltjarnarnesi, frá 5 ára aldri og
var alla tíð síðan búsettur á Nes-
Látinn er tengdafaðir minn, Karl
B. Guðmundsson, 88 ára að aldri eft-
ir langvarandi veikindi. Í mínum
huga sýndi Karl mikla karlmennsku í
veikindum sínum. Aldrei kvartaði
hann undan hlutskipti sínu, en ávallt
var stutt í húmorinn og trúna um
lengra líf. Kynni okkar Karls hófust
fyrir rúmum 40 árum þegar við Anna
trúlofuðum okkur ung að árum og
stofnuðum heimili á Sæbraut 5 í lítilli
íbúð í kjallara hússins. Það kom oft í
minn hlut að aðstoða Karl við fram-
kvæmdir í húsinu, sem var innréttað
á mörgum árum. Það var mér mjög
lærdómsríkt að vinna með Karli, ég
sjálfur vildi vera snöggur og drífa
hlutina af, en Karl var einstaklega
hægur og vandvirkur. Hann naut
þess að bjástra eins og hann kallaði
það og sagði gjarnan, „vel skal vanda
það sem lengi á að standa“.
Karl var mjög fróður og skemmti-
legur maður og hafði ákveðnar skoð-
anir á hlutunum. Hann naut þess að
miðla af þekkingu sinni, en var jafn-
framt góður hlustandi og tilbúinn að
aðstoða við lausnir vandamála. Hann
hafði gaman af lestri góðra bóka og
ljóð Einars Benediktssonar voru
honum sérstaklega hugleikin. Með
söknuði og hlýju kveð ég Karl
tengdaföður minn með einu erindi úr
Einræðum Starkaðar eftir Einar
Benediktsson;
Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem
brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
Ómar Hannesson.
Mig langar að minnast frænda
míns Karls Bergmanns sem látinn er
eftir langvinn og erfið veikindi. Faðir
minn, Jón Loftsson, og Anna, móðir
Karls, voru í sex systkina hópi, þau
bjuggu öll í Reykjavík og á Seltjarn-
arnesi þegar við börn þeirra vorum
að alast upp. Karl varð snemma einn
af þessum sterku heilsteyptu per-
sónum sem setja svip á umhverfið,
traustur, atorkusamur, skemmtileg-
ur en hógvær, einn af þeim sem mað-
ur lítur upp til með virðingu og að-
dáun. Þrátt fyrir talsverðan
aldursmun á okkur fann ég alltaf til
sterkra tengsla við Karl.
Mjög eru minnisstæðar sumar-
ferðir fjölskyldna okkar út í náttúr-
una á góðvirðisdögum með hvítt tjald
og ullarteppi, kaffi á hitabrúsum og
smurt brauð og kökur í skrautbox-
um. Tjaldið var reist á fallegum stað
við læk og berjabrekku, teppið breitt
undir mömmurnar í pilsunum en
pabbarnir settust á steina í jakkaföt-
unum eða pokabuxunum. Við litlu
börnin lékum okkur og njósnuðum
um unga fólkið sem fór í göngutúra.
Að loknu stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands og viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands starfaði hann í
nokkur ár á skrifstofu föður míns,
Heildverslun Jóns Loftssonar, sem
verslaði þá aðallega með byggingar-
vörur og flutningatæki. Á þeim árum
var hann í mínum huga hinn frábæri
frændi, menntaður og myndarlegur,
sem gaf sér tíma til að spjalla við
mig, krakkann, þegar ég kom í heim-
sókn á skrifstofu pabba í Austur-
stræti 14.
Sterk tengsl héldust milli fjöl-
skyldna okkar eftir að Karl stofnaði
heimili með sinni frábæru eiginkonu
Höllu. Anna, móðir Karls, átti alltaf
öruggt athvarf á heimili þeirra og
ógleymanlegar eru afmælisveislurn-
ar sem þau Halla og Karl héldu
henni allt fram að andláti hennar, en
hún náði að verða 100 ára gömul.
Kynni okkar Karls endurnýjuðust
þegar Ásgeir, maðurinn minn, gekk í
Oddfellowstúkuna Þorgeir árið 1983.
Þar var Karl fyrir, einn af stofnend-
um stúkunnar, og milli þeirra Ás-
geirs mynduðust fljótlega sterk
bræðrabönd og vinátta milli fjöl-
skyldna okkar.
Karl og Halla voru miklir höfð-
ingjar heim að sækja og minnumst
við Ásgeir með gleði og þakklæti
margra góðra stunda á glæsilegu
heimili þeirra á Seltjarnarnesi.
Eftir að Karl veiktist komu mann-
kostir þeirra hjóna vel í ljós. Æðru-
leysi, sterk kímnigáfa og elskuleg-
heit einkenndu Karl í erfiðum
veikindum og umönnun Höllu var
einstök þar til yfir lauk.
Við hjónin og fjölskylda okkar
sendum Höllu og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ingin um góðan dreng.
Sigríður Jónsdóttir.
Verslunarskóli Íslands fékk árið
1943 leyfi til þess að útskrifa stúd-
enta til jafns við menntaskólana fyrir
sunnan og norðan. Ekki hugnaðist
öllum þessi nýbreytni og henni var
jafnvel ekki tekið með neinum fögn-
uði af nemendum Verslunarskólans.
Stríðið var í algleymingi og næga
vinnu að fá og aðeins 8 nemendur
sóttu um inngöngu í hina nýju Lær-
dómsdeild haustið 1943. Í hópi um-
sækjenda um 5. bekk var Karl B.
Karl Bergmann
Guðmundsson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
UNNUR HERMANNSDÓTTIR,
andaðist á Droplaugarstöðum miðvikudaginn
9. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
17. júlí kl. 13.00.
Ásthildur Ólafsdóttir, Guðjón Bjarnason,
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Guðfinna Ólafsdóttir, Guðmundur H. Eiríksson,
Erla Ólafsdóttir,
Páll Ólafsson, Þuríður K. Heiðarsdóttir
og ömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EGILL JÓNSSON
bóndi og
fyrrverandi alþingismaður,
Seljavöllum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands laugar-
daginn 12. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Bjarnaneskirkju
föstudaginn 18. júlí kl. 14.00.
Halldóra Hjaltadóttir,
Anna Egilsdóttir, Ari G. Hannesson,
Valgerður Egilsdóttir, Ásgeir N. Ágústsson,
Hjalti Egilsson, Birna Jensdóttir,
Eiríkur Egilsson, Elín Oddleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
MAGNÞÓRA J. ÞÓRARINSDÓTTIR,
Didda,
Kirkjuvegi 1,
Keflavík,
áður Húsatóftum Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
11. júlí.
Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju fimmtudag-
inn 17. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Þórarinn S. Guðbergsson, Ingunn Pálsdóttir,
Bergþóra Guðbergsdóttir, Ólafur Sigurjónsson,
Jens Sævar Guðbergsson, Ólöf Hallsdóttir,
Theodór Guðbergsson, Jóna Halla Hallsdóttir,
Rafn Guðbergsson, Rósbjörg Karlsdóttir Olsen,
Reynir Guðbergsson, Salvör Gunnarsdóttir,
Anna Guðbergsdóttir, Kristján Gestsson,
Ævar Ingi Guðbergsson, Svava G. Sigurðardóttir,
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN FRIÐRIK JÓNSSON
málarameistari,
Ofanleiti 25,
áður Njálsgötu 8b,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Lind Jónsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Arnfríður Jónsdóttir, Karl Þór Ásmundsson,
Soffía Rut Jónsdóttir, Einar O. Björnsson,
Jón Þór Benónýsson, Ásdís Helga Hallgrímsdóttir,
Ingólfur Arnar Guðmundsson,
Helgi Guðmundsson, Tinna M. Ólafsdóttir,
Thelma Lind Guðmundsdóttir,
Dagbjört Þórey Einarsdóttir,
Ásmundur Hjörtur Einarsson,
Jón Hermann Jóhannesson,
Þórdís Lind og Sara Dís Jónsdætur.
✝
Faðir okkar,
SÉRA KRISTJÁN RÓBERTSSON,
er látinn.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey.
Börn og aðrir aðstandendur.