Morgunblaðið - 16.07.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 23
Guðmundsson, en hann hafði lokið
verslunarprófi vorið 1941.
Félagslíf þessara 8 drengja, sem
reyndar urðu ekki nema 7 frá næstu
jólum, var ekki fjölskrúðugt. Í því
efni áttu þeir ekki samleið með öðr-
um nemendum skólans og hefðir,
sem myndast höfðu í menntaskólun-
um um áratugaraðir, voru engar til.
Þarna hófust kynni okkar Karls,
sem við lok námstímans voru orðin
að vináttu. Á þá vináttu bar aldrei
skugga næstu 63 árin.
Karl var prýðisnámsmaður. Jafn-
vígur á allar greinar og átti sérstak-
lega létt með tungumál, sem kom sér
vel, því að námsefnið spannaði
þýsku, ensku, frönsku og latínu og
strangar kröfur gerðar í þeim tungu-
málum öllum.
Að loknu stúdentsprófi innrituðu
fjórir af fyrstu stúdentum Verslun-
arskólans sig í viðskiptadeild Há-
skólans. Karl var í þeim hópi. Kom
þá í ljós, að þeir stóðu nemendum
menntaskólanna fyllilega á sporði.
Á námstíma okkar í Verslunar-
skólanum gengu menn í og úr skóla.
Fyrir Karl var þetta þónokkur spöl-
ur, alla leið vestan af Seltjarnarnesi,
ríflega hálftíma gangur hvora leið og
meira í snjókomu og fannfergi, roki
og rigningu. Ekki kvartaði Karl og
engin sáust á honum þreytumerki
þegar kennsla hófst kl. 8 á morgn-
ana. Ef til vill urðu þessar daglegu
göngur Karls til þess að hann naut
góðrar heilsu og líkamlegs atgervis
allar götur þar til sjúkdómur tók
hann fangbrögðum og lagði hann
loks að velli.
Karl naut einnig andlegs atgervis.
Hann hafði meðal annars næmt
brageyra. Átti hann óvenju létt með
að læra ljóð og kunni heilu ljóðabálka
stórskáldanna. Hann hafði líka
næmt tóneyra og naut sígildrar tón-
listar alla ævi og átti fjölda hljóm-
platna og diska með tónverkum
meistaranna.
Hinir áberandi þættir í fari Karls
voru hinsvegar vandvirknin og ná-
kvæmnin. Þessara eðlisþátta sá víða
stað í öllu hans fari bæði á heimili
þeirra Höllu og í starfi. Ævistarf
Karls var að mestu unnið í þágu
Landsbanka Íslands, lengst sem
skipulagsstjóri bankans. Störf sín
fyrir bankann leysti hann af hendi
með þeim hætti, að hann vann sér
stöðugt aukið traust samstarfs-
manna sinna og yfirmanna.
Karl var í eðli sínu félagslyndur
maður. Tók hann virkan þátt í
hreppsnefnd og síðar stjórn bæjar-
félagsins á Seltjarnarnesi um ára
raðir. Hann var meðlimur Oddfellow
reglunnar og var kjörinn þar til
æðstu embætta og metorða. Sama
átti við um Rótary-hreyfinguna. Karl
B. Guðmundsson var gæfumaður í
starfi og einkalífi.
Mest var gæfa hans, þegar hann
gekk að eiga Höllu Jóhannsdóttur.
Þau voru einkar samhent í öllu lífi
sínu. Mikið hefur reynt á Höllu hin
síðari árin eftir að veikindi Karls
færðust í aukana.
Við Benta kveðjum nú vin okkar
Karl B. Guðmundsson með trega og
þakklæti fyrir vináttu og traust.
Höllu og börnum þeirra sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Valgarð Briem.
Samstarfsmaður og góður vinur til
margra ára, Karl Bergmann Guð-
mundsson, er til grafar borinn í dag.
Kynni okkar Karls hófust þegar við,
ásamt mörgum öðrum, stofnuðu
Sjálfstæðisfélag Seltjarnarness 1959
sem telja má að hafi verið upphaf
þess að sjálfstæðismenn tóku við for-
ystu í hreppnum sem þá var og er
síðan Seltjarnarnesbær. Karl hafði
alist upp í hreppsfélaginu frá 5 ára
aldri og var ómetanlegt að geta leitað
til hans um þekkingu á mönnum og
málefnum frá fyrri tíma. Það var
1962 sem Sjálfstæðisfélagið bauð
fram í fyrsta sinn á Seltjarnarnesi og
þar voru á lista bæði heimamenn og
aðfluttir. Jón Guðmundsson Nýjabæ
var í fyrsta sæti, Karl í öðru og und-
irritaður í því þriðja.
Til að gera langa sögu stutta náð-
um við þremur mönnum inn og feng-
um meirihluta sem hefur haldið síð-
an. Jón lét fljótlega af störfum af
heilsufarsástæðum og var Karl kjör-
inn oddviti á hans stað. Karl var odd-
viti til 1974 þegar Seltjarnarnes
gerðist bæjarfélag og varð Karl
fyrsti forseti bæjarstjórnar Seltjarn-
arness. Karl hafði mikinn áhuga á
skóla og menningarmálum sem voru
mjög fyrirferðarmikil á þessum ár-
um og eru raunar enn. Karl sat um
skeið í sýslunefnd Kjósarsýslu fyrir
Seltjarnarneshrepp meðan hreppur-
inn var enn þá hreppsfélag.
Karl var maður sem gott var að
starfa með. Hann var ekki maður
fljótfærnislegra ákvarðana heldur
vildi hann sjá fyrir afleiðingar þess
sem gert var. Ég kveð Karl Berg-
mann Guðmundsson með virðingu og
þakka fyrir þann tíma sem við störf-
uðum saman. Það hefur ekki verið öf-
undsvert að starfa með unglingum
sem komu inn í hreppsmál og þóttust
vita allt og geta allt. Karl hélt okkur
við efnið.
Halla og fjölskylda þið kveðjið eig-
inmann og góðan fjölskylduföður.
Sigurgeir Sigurðsson,
fv. bæjarstjóri Seltjarnarnesi.
Í annað skipti á skömmum tíma
sjáum við félagar í Rótarýklúbbi Sel-
tjarnarness á bak einum af okkar
elstu félögum. Karl B. Guðmundsson
var meðal stofnfélaga klúbbsins okk-
ar árið 1971 og varð forseti klúbbsins
á tíu ára afmæli hans, starfsárið
1981-1982. Karl var alla tíð virkur í
starfi klúbbsins ef undan eru skilin
allra síðustu árin er hann gat ekki
lengur mætt vegna veikinda sinna.
Árið 1996 var hann sæmdur Paul
Harris-viðurkenningu Rótarýhreyf-
ingarinnar fyrir mikil og góð störf í
þágu klúbbsins. Hann var svo gerður
heiðursfélagi árið 2001.
Áhugi hans á starfi Rótarý kom
vel fram í Prag-ferð klúbbsins árið
2001 er félagar fögnuðu þrjátíu ára
afmæli klúbbsins. Þá gladdi það
ferðalanga að Karl skyldi þrátt fyrir
veikindi sjá sér fært að taka þátt í
þeirri ferð ásamt eiginkonu sinni og
syni. Ferðin sú reyndist í alla staði
afar vel heppnuð og var Karli til mik-
illar ánægju.
Karl var sannur Rótarýmaður.
Hann var vanur félagsmálamaður,
ekki síst á vettvangi málefna Sel-
tjarnarneshrepps – og síðar bæjar.
Aðrir verða til að greina frá starfi
hans þar sem eins af forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins, en Rótarý-
klúbburinn naut sannarlega góðs af
reynslu hans af félagsmálastarfi.
Hann var afar nákvæmur í vinnu-
brögðum og snjall ræðumaður. Í
Rótarý barst hann þó aldrei á, en tók
fúslega að sér þau störf sem honum
voru falin.
Hann var einkar ljúfur í allri við-
kynningu, fór ekki í manngreinarálit
og fyrir nýja félaga var notalegt að
sitja á fundum hjá þessum hægláta
en viðræðugóða heiðursmanni.
Framganga hans öll var í anda Rót-
arý, þar sem stuðlað er að kynnum
milli ólíkra starfsgreina og menn
vilja láta gott af sér leiða með það að
markmiði að setja þjónustu ofar eig-
in hag.
Félagar í Rótarýklúbbi Seltjarn-
arness þakka Karli B. Guðmunds-
syni langa samfylgd og mikið og gott
starf í þágu klúbbsins.
Höllu, ekkju hans, og öðrum ást-
vinum vottum við samúð okkar. Guð
blessi minningu Karls B. Guðmunds-
sonar.
Fyrir hönd Rótarýklúbbs Sel-
tjarnarness,
Ingibjörg Hjartardóttir.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
✝
Ástkær frænka okkar,
KATRÍN JÓNSDÓTTIR,
sem lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík
miðvikudaginn 2. júlí, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 17. júlí kl. 13.00.
Sigmar Bent Hauksson,
Guðrún Björk Hauksdóttir,
Jón Víðir Hauksson.
✝
Minningarathöfn um systurnar
ÁSU GUÐMUNDSDÓTTUR DEGROOT,
fædd 1918, dáin 2000
og
ÞÓRUNNI GUÐMUNDSDÓTTUR JENSEN
myndlistarmann,
fædd 1920, dáin 2008,
verður haldin í Fossvogskapellu föstudaginn 18. júlí
kl. 15.00.
Að ósk hinna látnu verður duftkerum komið fyrir í legstað foreldra
þeirra, Ingibjargar Björnsdóttur og Guðmundar Sveinssonar
skipstjóra, í Fossvogskirkjugarði.
Fjölskyldan.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
HELGU GUÐMUNDU HARALDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3B á Hrafnistu
Hafnarfirði.
Lúther Þorgeirsson, Bryndís Svavarsdóttir,
Ragnhildur Jóna Þorgeirsdóttir,
Ragnar Rúnar Þorgeirsson, Penkhae Phiubaikham,
Haraldur Þorgeirsson, Helga Haraldsdóttir,
Hafsteinn Þorgeirsson, Áslaug Jakobsdóttir,
Sverrir Þorgeirsson, Birna Rut Þorbjörnsdóttir,
Grétar Þorgeirsson, Díana Von Anken,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
INDRIÐI INDRIÐASON
ættfræðingur og rithöfundur
frá Fjalli,
sem lést föstudaginn 4. júlí, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. júlí
kl. 11.00.
Indriði Indriðason,
Ljótunn Indriðadóttir,
Sólveig Indriðadóttir, Björn Sverrisson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHILDUR SMITH,
Furugerði 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
21. júlí kl. 13.00.
Birgir Breiðdal,
Sif Ragnhildardóttir,
Guðmundur Breiðdal, Elín María Ingólfsdóttir,
Laufey Ásta Breiðdal,
Birgir Breiðdal, Ása Heiður Rúnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, föstudaginn
11. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
18. júlí kl. 15.00.
Hans Ragnar Sigurjónsson,
Anna Scheving Hansdóttir, Tryggvi Tómas Tryggvason,
Ása Björk Hansdóttir, John Steven Berry,
Ágústa Hansdóttir, Halldór Pétursson,
Unnur Björg Hansdóttir, Pjetur Einar Árnason,
Sigurjón Hansson, Kristín Guðbrandsdóttir Jezorski,
barnabörn og barnabarnabörn.