Morgunblaðið - 16.07.2008, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Atvinnuauglýsingar
Blaðberi óskast í
Birkiteigshverfið
sem fyrst
Upplýsingar
gefur Elínborg í
síma 421 3463
Blaðbera
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Efnistaka í Lambafelli
í landi Sveitarfélagsins
Ölfuss
Mat á umhverfisáhrifum - athugun
Skipulagsstofnunar
Jarðefnaiðnaður ehf. hefur tilkynnt til
athugunar Skipulagsstofnunar frummats-
skýrslu um Efnistöku í Lambafelli í landi
Sveitarfélagsins Ölfuss.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 16. júlí til 28. ágúst
2008 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu
Sveitarfélagsins Ölfuss, Bókasafni Þorláks-
hafnar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags-
stofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á
heimasíðu Jarðefnaiðnaðar: www.jei.is
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
28. ágúst 2008 til Skipulagsstofnunar, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn fremur
nánari upplýsingar um mat á umhverfis-
áhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing um skipulags-
mál í uppsveitum
Árnessýslu og Flóahreppi
Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-
og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er aug-
lýst niðurstaða sveitarstjórnar varðandi
eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu.
Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og
Gnúpverjahrepps 2004-2016 varðandi
Hvamms- og Holtavirkjun.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps
samþykkti þann 23. júní 2008 tillögu að breyt-
ingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps 2004-2016 varðandi Hvamms- og Holta-
virkjun.Tillagan var í kynningu frá 18. janúar til
15. febrúar 2007 með athugasemdafresti til
1. mars s.á. Athugasemdir bárust frá 279 ein-
staklingum og 8 lögaðilum í 92 bréfum.
Aðalskipulagsbreytingin var samþykkt með
þeirri breytingu að veglína við Haga færist til
auk minniháttar breytingar á umfjöllun um
Hagaey. Þeim sem gerðu athugasemdir við
tillöguna hefur verið send umsögn sveitar-
stjórnar og er aðalskipulagsbreytingin nú til
meðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 5. mgr.
18. gr. skipulags- og byggingarlaga. Þeir sem
óska nánari upplýsinga um aðalskipulags-
breytinguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta
snúið sér til skrifstofu Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps eða til skipulagsfulltrúa uppsveita
Árnessýslu og Flóahrepps, petur@sudurland.is
Pétur Ingi Haraldsson,
skipulagsfulltrúi uppsveita
Árnessýslu og Flóahrepps.
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
✝ Sighvatur Borg-ar Hafsteinsson
fæddist í Miðkoti í
Þykkvabæ 8. júlí
1953. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans að
morgni 8. júlí síðast-
liðins. Foreldrar
hans voru Hafsteinn
Sigurðsson kart-
öflubóndi, f. 6. sept.
1931, d. 27. nóv.
1987 og Sigurjóna
Sigurjónsdóttir hús-
móðir, f. 28. ágúst
1930, d. 15. mars 2008. Systkini
Sighvatar eru Heimir, f. 1951,
kvæntur Særúnu Sæmundsdóttur;
Friðsemd, f. 1952, gift Jóni Thor-
arensen; Kristborg, f. 1955, gift
Nóa Sigurðssyni; Sigrún Linda, f.
1959, sambýlismaður Steinar Sig-
urgeirsson; og Bryndís Ásta f.
1965.
Sighvatur kvæntist 26. desem-
ber 1981 Unu Aðalbjörgu Sölva-
kartöflubóndi. Hann var einn af
stofnendum og hluthafi í Kart-
öfluverksmiðju Þykkvabæjar hf.
1981 og sat í stjórn þess 1991-1998.
Hann var stjórnarformaður í
Þykkvabæjarkartöflum hf. 1987-
1988 og framkvæmdastjóri 1988-
1989. Hann var stofnandi, aðaleig-
andi og framkvæmdastjóri Kart-
öflusölu Þykkvabæjar ehf. frá
1989. Einn af stofnendum og hlut-
hafi í kartöfluverksmiðjunni Beint
í pottinn ehf. 1997. Fyrirtækið
Garðávexti ehf. rak hann síðustu
ár þar til hann lét af störfum vegna
veikinda sinna árið 2006. Hann sat
í fulltrúaráði Landssambands kart-
öflubænda 1987-1995 og var for-
maður 1995-2005. Í stjórn Sam-
bands garðyrkjubænda sat hann
frá 2001 þar til hann lét af þeim
störfum vegna veikinda sinna. Þá
gegndi hann margvíslegum trún-
aðarstörfum fyrir Djúpárhrepp.
Útför Sighvatar fer fram frá
Þykkvabæjarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
dóttur kennara frá
Egilsstöðum, f. 17.
maí 1952. Foreldrar
hennar eru Sölvi Vík-
ingur Aðalbjarn-
arson, f. 4. feb. 1929
og Sigurborg Sig-
urbjörnsdóttir, f. 5.
ágúst 1929.
Börn þeirra eru: 1)
Sindri Snær við-
skiptafræðingur, f.
15. sept. 1974, 2) Sölvi
Borgar háskólanemi,
f. 4. feb. 1981, dóttir
hans er Valdís Katla,
f. 9. okt. 2005, 3) Sigurborg Sif há-
skólanemi, f. 21. júní 1986, sam-
býlismaður Jósep Hallur Haralds-
son, f. 19. okt. 1987, 4) Sigurjón
Fjalar grunnskólanemi, f. 13. ágúst
1993.
Sighvatur ólst upp í Smáratúni í
Þykkvabæ. Hann lauk versl-
unarprófi frá VÍ 1973 og gegndi
ýmsum störfum til lands og sjávar
þar til árið 1981 er hann gerðist
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Já, sumarið leið alltof fljótt, kæri
bróðir.
Ekki er alltaf hægt að skilja til-
gang lífsins.
Mamma bráðkvödd 15. mars síð-
astliðinn og nú ert þú tekinn frá
okkur, aðeins 55 ára, eftir hetjulega
baráttu við krabbamein, rétt eins og
pabbi fyrir 21 ári síðan. Þú varst fal-
legur að utan sem innan, vel gefinn
og afburða skemmtilegur.
Minningarnar eru perlur sem við
geymum í hjörtum okkar. Ég mun
alltaf hugsa til þín, elsku bróðir og
vinur. Megi englarnir vaka yfir þér.
Elsku Una, Sindri Snær, Sölvi
Borgar, Sigurborg Sif, Sigurjón
Fjalar og Valdís Katla, megi góður
guð gefa okkur öllum styrk.
Kristborg og fjölskylda.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
Kæri yndislegi bróðir minn. Þig
hefur langað að halda upp á afmælið
með pompi og prakt, í heilbrigðum
líkama, laus við öll mein og verki,
það gerðir þú svo með stæl, kvaddir
þetta jarðlíf í bítið á sjálfan afmæl-
isdaginn. Skrítinn dagur, tómur, þú
varst mikið veikur en fórst samt
óvænt og snöggt. Ég var búin að
undirbúa afmæliskveðjuna fyrir þig.
Vegna fjarlægðar á milli okkar ætl-
aði ég að syngja afmælissönginn
fyrir þig í símann, en æðra vald
breytti þessu öllu. Þú hefur eytt
deginum í faðmi mömmu og pabba.
Það hafa verið fagnaðarfundir.
Elsku Sighvatur minn, það er svo
sárt að kveðja. Þú ert einhver ynd-
islegasta manneskja sem ég þekki,
alltaf svo ljúfur og góður, gerðir
gott úr öllu, talaðir alltaf fallega um
allt og alla. Við höfum oft talað um
Guð nú í seinni tíð og þú alltaf hvatt
mig til að missa aldrei trúna. Þú ert
búinn að þola mikið mótlæti í veik-
indum þínum en ávallt varst þú
bjartsýnn og barst þig vel og oftast
var stutt í glens og grín hjá þér.
Ég flutti til Hafnar fyrir áramót
og þú varst sá eini af systkinunum
sem hafðir ekki komið í heimsókn.
Þú komst svo beint af spítalanum til
mín og fórst beint á spítalann aftur.
Það verður tómlegt núna en mikið
er gott að eiga allar góðu minning-
arnar um þig.
Við vorum vön að tala saman í
síma, stundum þrisvar á dag og yf-
irleitt enduðu símtölin með hlátra-
sköllum hjá okkur báðum. Ég og þú
höfum alltaf verið náin og átt gott
skap saman. Við vorum ekki í vand-
ræðum með að skella upp smá
djammi hér í den og gerðum það oft
og þá var „vinillinn“ spilaður tals-
vert hátt. Þú varst svo flottur, þú
náðir líka í glæsilega og góða konu,
hana Unu þína.
Það er búið að vera erfitt hjá
henni og börnum ykkar í veikindum
þínum en það er aðdáunarvert hvað
þau eru sterk. Þið eigið fjögur ynd-
isleg og vel gerð börn og eina litla
fallega ömmu- og afastelpu. Elsku
bróðir minn, vona að þér líði vel í
nýjum heimkynnum, sakna þín
sárar en orð fá lýst.
Elsku Una, Sindri, Sölvi, Sigur-
borg og Sigurjón, guð veri með ykk-
ur og styrki ykkur og huggi. Inni-
legar samúðarkveðjur frá okkur
Steinari og börnunum.
Þín litla systir,
Linda.
Það hefur líklega verið árið 1974
að ég sat í mötuneytinu við Sigöldu
og ætlaði að fara að byggja virkjun,
júkkakássa á borðum ef ég man
rétt. Þá er það að amerísk glæsi-
kerra birtist í rykmekki þarna í
eyðimörkinni miðri og út stíga tveir
menn og var bílstjórinn eitthvert
mesta glæsimenni, sem borið hafði
fyrir mín augu, hávaxinn með axla-
sítt hár og gekk ekki með veggjum.
Gengilbeinur og skammtarar kven-
kyns gripu andann á lofti, löguðu
svuntur og ýttu fram barmi þegar
maðurinn snaraðist í salinn, enda
kom í ljós þegar ég spurði hver sá
hinn mikli maður væri, að þar fór
annar þeirra bræðra er mestir bóg-
ar þóttu í Rangárþingi á þessum
tíma, ættaðir frá Smáratúni í
Þykkvabæ og hét þessi Sighvatur.
Það fylgdi sögunni, að betra væri
að hafa þá bræður með sér en móti,
því þeir væru litlir veifiskatar ef í
odda skærist.
Þarna urðu fyrstu kynni mín af
Sighvati Hafsteinssyni og kom fljót-
lega í ljós þegar kynni okkar urðu
meiri, að varnaðarorð um harð-
drægni þeirra bræðra voru óþörf,
því þar fóru mikil ljúfmenni þó ekki
hefðu þeir alltaf lágt, eða bæðust af-
sökunar á tilveru sinni.
Síðar bjuggum við Sighvatur um
stund undir sama þaki og enn síðar
tengdumst við fjölskylduböndum, og
tókst þá með okkur vinátta, sem ég
minnist ekki að nokkurn tíma hafi
borið skugga á.
Það var enda ekki erfitt að þiggja
vináttu Sighvats, stæði hún til boða,
jafn skemmtilegur maður og hann
var. Alltaf var stutt í þennan eft-
irminnilega dillandi hlátur og þó að
hann stæði fastur á sínu og gæti
verið þrjóskari en allt sem þrjóskt
er, meinstríðinn reyndar stundum,
þá hlustaði hann á rök annarra og
var maður réttsýnn.
Þessir eiginleikar hans komu hon-
um að gagni, þegar hann valdist til
forystu í flokki kartöflubænda, eftir
að hann fetaði í fótspor forfeðrana
og hóf búskap í sínum heittelskaða
Þykkvabæ. Þar fann Sighvatur sína
Sighvatur B. Hafsteinsson