Morgunblaðið - 16.07.2008, Síða 25
hillu í lífinu og eins og búast mátti
við fór hann mikinn í kartöflurækt-
inni og var kominn út í umfangsmik-
inn verksmiðjurekstur og matvæla-
framleiðslu, þegar áfallið dundi yfir
og hann varð að draga sig út kart-
öflurækt og rekstri vegna veikinda
sinna.
Það var svo kapítuli út af fyrir sig
að fylgjast með því hvernig þau
hjónin Sighvatur og Una tókust á
við þennan illvæga sjúkdóm sem að
lokum hafði betur. Sá kjarkur og
það æðruleysi sem þau hafa sýnt
síðustu 4 ár er slíkur, að þar duga
engin orð.
Hin síðari ár hafði Sighvatur það
fyrir sið að koma við hjá okkur í
K.Þorsteinsson þegar hann var að
erindast í borginni eða leita sér
lækninga og það var ekki að sjá að
þar færi dauðveikur maður því alltaf
var stofnað til debats um aðskilj-
anleg málefni, pólitík, landbúnað
eða hvaðeina er hæst bar hverju
sinni, mikið fjör og mikið hlegið og
að sjálfsögðu lögð niður vinna með-
an bóndinn staldraði við. Um leið og
ég votta Unu, Sindra, Sölva, Sig-
urborgu og Sigurjóni og Smáratúns-
systkinunum öllum, mína dýpstu
samúð, þá er ekkert annað eftir að
leiðarlokum en að þakka fyrir sam-
veruna og takk fyrir vináttu þína,
kæri vinur.
Eyjólfur Reynisson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 25
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Íslenskur fjárhundur
Einstaklega ljúfur og skapgóður
íslenskur hvolpur til sölu. Heilbrigðis-
skoðaður og örmerktur, skráður hjá
HRFÍ. Sjá nánar á www.iseyjar.is
Uppl. s. 894-1871.
Ferðalög
Hjólhýsi til leigu
Með uppbúnum rúmum og tilheyr-
andi. Helgar- eða vikuleiga. Sendum -
sækjum. Til sýnis við Gistiheimilið
Njarðvík. Sniðugt að geyma auglýs-
inguna. Upplýsingar í símum
421 6053, 898 7467 og 691 6407.
www.gistiheimilid.is
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins
6 mánuðum
LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og
auðveldur. Engin örvandi efni. Uppl.
Dóra 869-2024, www.dietkur.is
Húsnæði í boði
Til leigu í Reykjavík
Glæsileg 3ja herbergja íbúð til af-
hendingar strax. Sérinngangur,
bílageymsla og lyfta í húsinu.
Langtímaleigusamningur, sjá
www.leigulidar.is eða 517-3440.
Til leigu á Akranesi
Glæsileg og rúmgóð 4ra herbergja
íbúð til leigu. Sérinngangur í íbúðina,
lyfta í húsinu. Langtímaleigusamn-
ingur. Sjá www.leigulidar.is eða
517-3440.
Gott einbýlishús á einum besta
stað Hafnarfjarðar
Til sölu mikið endurnýjað rúml. 200
fm einbýlishús m/bílskúr og góðum
garði á einum besta stað í Hafnar-
firði, Vesturvangi 8. Vel hannað um
150 fm hús á einni hæð, auk um 50
fm bílskúrs m/rúmgóðu þvottahúsi.
Sólpallur m/heitum potti, skjólsælum
garði o.fl. Barnvænt, rólegt hverfi.
Stutt í skóla. Glæsileg eign, einstakt
tækifæri v/búslóðaflutn. Sjá nánar á
fasteignavef mbl.is og www.as.is.
Húsnæði óskast
Leita að íbúð á Akureyri!
Tveir háskólakennarar leita að
leiguíbúð á Akureyri, helst í
miðbænum, til eins árs frá 1.sept. nk.
Skilvísum greiðslum heitið,
greiðslutrygging og meðmæli frá
fyrrv. leigusala.
Þóra 694 6440.
Sumarhús
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Vandaðar gjafavörur í miklu úrvali.
Slóvak kristall, Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4331.
opið sunnud. kl. 13-18.
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Léttir og lághælaðir.
Vandaðir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir.
Verð frá. 8.685. til 8.890.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Ýmislegt
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Tískuverslunin Smart
GRÍMSBÆ / Bústaðarvegi
Opið miðvikudag - föstudag
frá kl. 12-16
50% afsláttur
Skór, stök pör. Gerið góð kaup.
Sími 588 8488
Bátar
Skemmtibátur óskast
Óska eftir að kaupa skemmtibát.
Verð allt að 8.0 m. Vinsamlega
sendið tilboð á omarsig@simnet.is
Bílar
Toyota Avensis '97, verð 550.000
Nýskoðaður. Vel með farinn, í topp-
standi, óryðgaður. CD, álfelgur, krókur
o.fl. Skipti á heitum potti (skel), góður
stgr. afsl. Uppl. 822 4710.
Til sölu Nissan Terrano 2004,
ekinn aðeins 32000, Fallegt eintak.
Sími 866 9266.
Jeep árg. '96 ek. 190 þús. km
Jeep Grand Cherokee Laredo, ´96
árgerð, ekinn 190.000 km. Í ágætis
standi. Verð aðeins 200 þús. kr., langt
undir listaverði. Sími 694 7777.
GMC árg. '02 ek. 80.000 km
Gullfallegur, lítið ekinn dekurbíll,
280 hö. Áhvílandi 2 milljónir, fæst á
yfirtöku, sjón er sögu ríkari.
S: 892 2180
Chevrolet captiva árg. '07
Ek. 9000 km, selst vegna flutninga,
7 manna dísil jeppi, eyðir 9-12l er
með leðri, dráttarkrók, bakkskynjur-
um. Einn með öllu, drauma fjölskyldu-
bíll, verð 3.850 þús., áhvílandi 2,2m.
S: 862 7180, Atli.
Bílaþjónusta
Ódýr bílaþvottur!
Er bíllinn skítugur? Bjóðum betra verð
en nokkur annar og klárum bílinn
samdægurs. Háþrýstiþvottur, sápun,
bón og þrif að innan. Pantið í s.
865-1514 eða 848-3008.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Fellihýsi
Fleetwood Highlander sequoia
árg ‘04, 14”. Flott fyrir stóra fjölsk.
Sv.pláss f. 9. Ýmis aukab. V.1300 þús.
Sk. á minni. S: 693 7311/ 894 1772.
Tjaldvagnar
Til sölu Combi Camp tjaldvagn
Til sölu Combi Camp árg. 2004 með
svefntjaldi (kálfi) og kassa á beisli, 6
manna vagn. Uppl. í síma 893 7050.
Mótorhjól
Til hamingju HYOSUNG!
Mótorhjólaframleiðandinn HYOS-
UNG í Suður-Kóreu fagnar 30 ára
framleiðsluafmæli um þessar mundir.
Í tilefni þess sendi hann frá sér gull-
fallega afmælisútgáfu af GV650
hjólinu. Nánar á www.renta.is
Einkamál
Stefnumót.is
Nýr stefnumótavefur og tengslanet:
"Þar sem íslendingar kynnast".
Líttu við og tryggðu þér gott notanda-
nafn til frambúðar.
Stefnumót.is
Nýr samskiptavefur: "Þar sem
Íslendingar kynnast". Líttu við og
tryggðu þér gott notandanafn til
frambúðar.
INDVERSKI heimsmeistarinn
Wisvanathan Anand er efstur á ný-
birtum júlí-stigalista FIDE. Nokkur
eftirvænting var vegna þessa lista
þar sem áhöld voru um hvort glæsi-
legur sigur Magnúsar Carlssonar á
Aerosvit-mótinu í Úkraínu næði inn.
Venjan hefur verið sú að reyna að
reikna öll nýjustu móti í tæka tíð en
hinn glæsilegi sigur Magnúar kemur
ekki til útreikninga fyrr en næsta
lista en FIDE birtir stigin ársfjórð-
ungslega. Hefði þetta mót verið tek-
ið til útreikninga væri Magnús í 2.
sæti á eftir Anand. Á heimasíðu
FIDE kemur fram að Magnús á inni
16 stig.
Topp 10 listinn lítur þannig út:
1. Wisvanathan Anand (Indland) .......... 2798
2.-3. Alexander Morosevich (Rússland) 2788
2.-3. Vladimir Kramnik (Rússland) ....... 2788
4. Vasilí Ivantsjúk (Úkraína) ................. 2781
5. Venselin Topalov (Búlgaría) .............. 2777
6. Magnús Carlssen (Noregur) .............. 2775
7. Teimour Radjabov (Aserbaídsjan) .... 2744
8. Shakriyar Mamedyarov (Aserbaídsjan)
2742
9.-10. Alexei Shirov (Spánn) ................... 2741
9.-10. Peter Leko (Ungverjaland) ......... 2741
Ef horft er á listann í sögulegu
samhengi þá hafa efstu skákmenn-
irnir á listanum hækkað um meira en
100 Elo-stig frá því sem var fyrir 25-
30 árum, 29 skákmenn eru nú með
2700 stig eða meira. Kasparov datt
út af listanum fyrir nokkru en hann
rauf 2800 stiga múrinn hvað eftir
annað. Á íslenska listanum ber það
helst til tíðinda að Jóhann Hjartar-
son er kominn á lista yfir þá óvirku.
Tíu efstu eru:
1. Hannes Hlífar Stefánsson ................. 2566
2. Héðinn Steingrímsson ........................ 2540
3. Henrik Danielssen .............................. 2526
4. Helgi Ólafsson ..................................... 2522
5. Stefán Kristjánsson ............................ 2477
6. Þröstur Þórhallsson ............................ 2499
7. Arnar Gunnarsson .............................. 2442
8. Friðrik Ólafsson .................................. 2440
9. Jón Viktor Gunnarsson ...................... 2437
10. Björn Þorfinnsson ............................. 2422
Guðmundur vann í 9. umferð
Tveir íslenskir skákmenn taka
þessa dagana þátt í hinu þekkta
First Saturday-móti í Búdapest í
Ungverjalandi. Mótið dregur nafn
sitt af upphafsdegi þess, en fyrsta
laugardag í hverjum mánuði hefst al-
þjóðlegt mót sem Lazlo Nagy hefur
staðið fyrir í mörg ár. Í 9. umferð
stórmeistaraflokksins sigraði Guð-
mundur Kjartansson kínversku
stúlkuna Yifan Hou. Stórmeistara-
flokkurinn er vel skipaður og hefur
Guðmundur átt við ramman reip að
draga enda næststigalægsti kepp-
andinn og er sem stendur í 12.-13.
sæti með 2 ½ vinning. Guðni Stefán
Pétursson hefur hlotið 3 ½ vinning í
flokki alþjóðlegra meistara og er í
10. sæti. Íslenskir skákmenn hafa oft
tekið þátt í þessu móti og staðið sig
vel.
Alþjóðlegt mót Hellis
hefst í dag
Tíu skákmeistarar taka þátt í al-
þjóðlegu móti Hellis sem hefst í dag í
húsakynnum Skákskóla Íslands í
Faxafeni. Dregið var um töfluröð á
mánudag:
1. Heikki Westerinen (Finnland)
2. Róbert Lagerman 3. Hjörvar
Steinn Grétarsson 4. Magnús Örn
Úlfarsson 5. Sigurður Daði Sigfús-
son 6. Vladimir Lazarev (Frakkland)
7. Omar Salama 8. Atli Freyr Krist-
jánsson 9. Andrzej Misiuga (Pólland)
10. Björn Þorfinnsson.
Á mótinu gefst keppendum kost á
að keppa að áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli. Til þess þarf 6 ½ vinn-
ing úr níu skákum.
Anand efstur en mikilvægt mót vantar
Morgunblaðið/SÍ
Efstir í reynd Anand og Magnús Carlssen á hraðskákmóti Glitnis 2006
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Júlí-stigalisti
FIDE – Hannes
efstur íslenskra
skákmanna
SKÁK