Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er miðvikudagur
16. júlí, 198. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Sá sem trúir á mig, – frá
hjarta hans munu renna lækir lifandi
vatns, eins og ritningin segir. (Jh. 7, 38.)
Þegar grillvertíðin stendur semhæst getur nautakjöt verið
freistandi kostur. Víkverji hefur
hins vegar iðulega lent í því að þegar
leggja á sér girnilega steikina til
munns reynist hún ólseig. Oft hefur
Víkverji reyndar fengið gott kjöt í
hendur, en þar sem ekki hefur verið
hægt að ganga að því vísu hefur til-
hneigingin verið sú að velja öruggari
kost, fisk, kjúkling eða svín, sér-
staklega þegar gestir eru vænt-
anlegir. Það er ekki skemmtilegt að
bjóða matargestum upp á skósóla.
x x x
Víkverji er hins vegar þrjóskur ogí liðinni viku ákvað hann að
reyna nýjan kjötkaupmann. Við
Háaleitisbraut stendur Kjöthöllin.
Kjötborðið er ekki stórt, stendur úti
í horni og við fyrstu sýn virtist ekki
mikið í það lagt og búðin ekki standa
undir nafni. Nautalundirnar, sem
Víkverji keypti þar, reyndust hins
vegar bráðna í munni og allir bit-
arnir voru jafn góðir. Gestirnir lentu
ekki í óvæntum æfingabúðum fyrir
kjálkavöðvana eins og oft vill verða.
Þessi reynsla var ávísun á frekari
viðskipti.
x x x
Annars getur nánast allur maturátt erindi á grillið. Fiskur hefur
verið sérlega vinsæll hjá Víkverja.
Skötuselur getur verið sérlega ljúf-
fengur, ekki síst ef beikonstrimli
hefur verið vafið utan um bitann,
steinbíturinn kemur vel út og grill-
aður lax er lostæti. Nú gæti verið
von á nýjum grillfiski í búðir fyrst
svona mikið veiðist af makríl. Hann
mun vera feitur og fínn á grillið.
x x x
Smátuð að lokum: Feimni ís-lenskra ökumanna við stefnu-
ljósin er undarleg. Halda að þeir að
bíllinn verði rafmagnslaus við að
gefa stefnuljós, eða að bensíneyðslan
aukist um helming. Sú er ekki raun-
in. Það er óhætt að gefa stefnuljós
og gefa öðrum ökumönnum þannig
til kynna fyrirætlanir um breytingar
á akstursstefnu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 létta á fæti, 8
síðla, 9 refsa, 10 spil, 11
þvaðra, 13 stal, 15 karl-
fugl,18 veita ráðningu,
21 hátíð, 22 kvenguð, 23
sleifin, 24 beinbrýtur.
Lóðrétt | 2 snjókomunni,
3 sjúga, 4 kyns, 5 lágfót-
an, 6 hæðir, 7 opi, 12
duft,14 hátterni, 15
mann, 16 sjúkdómur, 17
sori, 18 æki, 19 gerði
hreint, 20 hafa undan.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bjarg, 4 sýnin, 7 rækta, 8 eiður, 9 sær, 11 aurs,
13 ásum, 14 andar,15 karl, 17 illt, 20 hrá, 22 pútur, 23
reglu, 24 raust, 25 senda.
Lóðrétt: 1 birta, 2 askur, 3 glas, 4 sver, 5 næðis, 6 nýr-
um, 10 ældir, 12 sal, 13 ári,15 kopar, 16 réttu, 18 lagin,
19 tauta, 20 hrút, 21 árás.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5.
b3 Rbd7 6. Bb2 b6 7. Bd3 Bb7 8. O–O
Bd6 9. Rbd2 O–O 10. Re5 De7 11. Df3
Hfd8 12. Dh3 h6 13. f4 Bb4 14. Rdf3
Re4 15. Rxd7 Hxd7 16. Re5 Hc7 17.
Bxe4 dxe4 18. c5 bxc5 19. a3 Ba5 20.
dxc5 Dxc5 21. b4 Db5 22. Dg3 Bb6
Staðan kom upp á ofurmótinu í
Dortmund í Þýskalandi sem lauk fyrir
skömmu. Rússinn Vladimir Kramnik
(2788) hafði hvítt gegn Hollend-
ingnum Loek Van Wely (2677). 23.
Rd7! g6 24. Rf6+ Kf8 25. Be5! Hcc8
26. Dh4 h5 27. Rh7+ Ke8 28. Bd6
Hc7 29. Hfd1! og svartur gafst upp
enda fátt til varnar. Kramnik gekk
illa á mótinu en hann lenti í sjöunda
og næstsíðasta sæti með þrjá vinn-
inga af 7 mögulegum. Hollendingnum
gekk enn verr en hann fékk einn
vinning á mótinu.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þjóðsaga.
Norður
♠KD10987
♥D
♦92
♣KG964
Vestur Austur
♠4 ♠32
♥G76542 ♥K83
♦K863 ♦D10754
♣Á5 ♣872
Suður
♠ÁG965
♥Á109
♦ÁG
♣D103
Suður spilar 6♠.
Sú þjóðsaga er lífseig að aldrei eigi
að spila út frá kóng gegn slemmu.
Vissulega á það stundum við, en hitt er
algengara að útspil frá kóng sé hið eina
rétta. Það ræðst af sögnum. Ef skipt-
ing sóknarinnar virðist marflöt, getur
verið skynsamlegt að bíða átekta og
spila rólega út, en hafi sagnir upplýst
um hliðarlit verður vörnin að hafa snör
handtök. Í spili dagsins sagði norður
2♣ við spaðaopnun suðurs og síðan lá
leiðin í spaðaslemmu. Hinn ógnandi
lauflitur í borði kallar á hvasst útspil –
tígul frá kóngnum í von um drottn-
inguna hjá austri. Útspilið heppnast,
en sagnhafi hefur síðasta orðið. Hann
drepur drottningu austurs, tekur
trompin og spilar ♥D úr borði með
þeirri áætlun að láta hana fara hring-
inn. Ef austur leggur á, er trompsvínað
fyrir ♥G vesturs.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gleymdu vonlausum málefnum
heimsins og gerðu eitthvað sem þú getur
klárað í dag. Sjálfsöryggið eykst við allt
sem þú framkvæmir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Í ákvarðanatöku ber frekar að
hlusta á hjartað en röksemdir. Í stað
þess að telja upp allt sem er með og á
móti, er gott að einbeita sér að því já-
kvæða og sjá hversu spenntur þú verður.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ímyndunaraflið er í góðum gír
þessa dagana, og þú getur ekki skilið
hvernig einhver getur ekki átt sér
draum. Dragðu upp bjarta framtíð-
armynd fyrir þann sem hefur misst
trúna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það sem var einskis nýtt í gær er
verðmætt í dag, en bara fyrir þá sem við-
urkenna verðmætagildið. Farðu yfir allt
sem þú ert að henda frá þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Viltu að meiri ást umvefji þig og
einkalíf þitt? Hér er gott ráð sem virkar
alltaf: breiddu út faðminn og gefðu svo
sjálfum þér risaknús.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú virðist ýkt svalur, eins og þú
vitir út á hvað allt gengur. Þú einn þekkir
truflandi hugsanir þínar. Hlustaðu ekki á
þær, og þú nærð mun betri árangri.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vinir vara mann við. Ættingjar búa
yfir gáfulegum ráðum. Kennarar kenna.
En ekki hlusta á neitt af þessu – eigin
leiðbeiningar eru þessu öllu æðri.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér kemur alveg ótrúlega vel
saman við aðra – það er eins og fólk skilji
fullkomlega allt sem þú segir. Jafnvel dýr
og byggingar skilja þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einhver verður að vera á milli
tannanna á fólki, hver vegna ekki þú?
Auglýstu velgengni þína. Það hafa ekki
allir skilning á því, klára fólkið gerir það.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú tekur hversdagslega
ákvarðanir – um fataval og matvælakaup
– með stæl. Þegar alvarlegri ákvarðanir
banka upp á, ertu meira en tilbúinn fyrir
þær.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sumar hugmyndir þínar sem
hafa fengið að dúsa í rykugu horni heila-
búsins, eru enn góðar og gildar. Flikkaðu
upp á þér og láttu á þær reyna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Tilfinningar þínar eru svo sterkar
og vilji þinn til að fela þær svo lítill að þú
ert eiginlega opin bók. Einhver tekur eft-
ir merkjasendingum þínum á undan þér.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
16. júlí 1627
Sjóræningjar frá Alsír komu
til Vestmannaeyja á þremur
skipum. Þeir drápu 34 Eyja-
búa og tóku 242 karla og kon-
ur með sér. Tæpum áratug
síðar voru nokkrir þeirra
keyptir lausir, m.a. Guðríður
Símonardóttir, sem síðar varð
kona Hallgríms Péturssonar
sálmaskálds. Tyrkjaránið stóð
frá 20. júní til 19. júlí 1627.
16. júlí 1917
Tundurskeyti frá þýskum kaf-
báti hæfði flutningaskipið
Vestu sem var á leið til Eng-
lands. Skipið sökk á einni mín-
útu. Fimm manns fórust en
tuttugu komust í skipsbát og
náðu landi í Færeyjum.
16. júlí 2007
Þyrlan TF-SIF nauðlenti á
sjónum við Straumsvík, þar
sem hún var við æfingar.
Mannbjörg varð.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
ÞESSAR systur og vinkonur,
Agnes Edda og Auður Lára Bjarn-
freðsdætur og Salka Arney og
Kolka Máney Magnúsdætur, héldu
tombólu í Húsahverfinu í Graf-
arvogi og færðu Rauða krossinum
ágóðann 8.851 kr.
Hlutavelta
Sigyn Jara
Björgvinsdóttir
úr Mosfellsbæ
afhenti Rauða
krossi Íslands
3.754 kr. sem
hún safnaði til
styrktar börnum
í Afríku.
STEFÁN Friðbjarnarson, fyrrverandi blaðamaður
Morgunblaðsins og bæjarstjóri á Siglufirði, fagnar í
dag áttræðisafmæli sínu. Stefán er fæddur og upp-
alinn á Siglufirði. Hann lauk verslunarprófi frá
Verzlunarskóla Íslands árið 1948. Frá 1966 til 1974
var hann bæjarstjóri á Siglufirði, og þar var hann
líka fréttaritari Morgunblaðsins frá 1950 til 1974.
Árið 1974 flutti hann síðan til Reykjavíkur og hóf
störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu, þar sem
hann var lengi þingfréttaritari.
Stefán starfaði á Morgunblaðinu til ársins 1998.
Árið 1996 var Stefán sæmdur riddarakrossi ís-
lensku fálkaorðunnar fyrir störf að félagsmálum, en hann var meðal
annars bæjarfulltrúi á Siglufirði fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1958 til
1974, sat í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitafélaga frá 1967 til
1970 og í stjórnarnefnd Ríkisspítala 1978 til 1981, og síðar var hann
varaformaður nefndarinnar um tíma.
Stefán býr nú í Gullsmára í Kópavogi og tekur enn þátt í félags-
störfum, en hann er virkur í starfi bókmenntaklúbbs og stundar íþrótt-
ir. Hann dvelur einnig gjarnan í sumarhúsi fjölskyldunnar í Kjósinni,
þar sem hann leggur stund á trjárækt.
Á afmælisdaginn ætla börn Stefáns og tengdabörn að fara með hon-
um og konu hans, Þorgerði Sigurgeirsdóttur, í óvissuferð út í íslenska
náttúru. sigrunhlin@mbl.is
Stefán Friðbjarnarson er áttræður í dag
Blaðamaður og bæjarstjóri
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is