Morgunblaðið - 16.07.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 29
!
!
"
#
$
%
!
&
&
'
"
!
!
#
!
"
$ (
!
!
)
!$
! !
&
& ( *
!
# &
!
&
)! &
+
! )
!"
!#$%&'(#")*+& !(,'"-'&
- kemur þér við
Sérblað um mat
fylgir blaðinu í dag
Borgarstjóri vill frían
strætó fyrir alla
Yfir hundrað fátæk
börn fá sumargjafir
Sveitamarkaðirnir
verða sífellt vinsælli
Fimm metra konan frá
Rússlandi
Nýjasti meðlimur
Merzedes með svarta
beltið í sviðsframkomu
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
G
uillermo del Toro er ekki
sami leikstjóri og þegar
hann leikstýrði fyrstu
myndinni um Hellboy.
Þá var hann efnilegur
og búinn að vera efnilegur lengi, en
það gerðist eitthvað þegar hann
gerði Völundarhús Fánsins, það opn-
uðust nýjar gáttir. Ekki var nóg með
að myndin slægi rækilega í gegn og
yrði vinsælli en nokkur önnur
spænsk mynd hefur orðið erlendis,
heldur brast einhver stífla hjá leik-
stjóranum. „Fram að Völundarhúsi
Fánsins hélt alltaf eitthvað aftur af
mér,“ sagði leikstjórinn í viðtali við
breska kvikmyndaritið Empire. En
þessi feimni er löngu horfin, nú er
Del Toro fullur sjálfstrausts með yf-
irfullt danskort af væntanlegum bíó-
myndum – og það sést, Hellboy II
hefur ákveðið öryggi og fágun sem
fyrri myndina skorti, en samt heldur
hún þessum einkennilega heim-
ilislega sjarma sem fyrsta myndin
átti og er svo sjaldgæf í ævintýra-
myndum annarra leikstjóra.
En hér er samt rétt að taka eitt
fram; Del Toro hefur hvorki áhuga á
ævintýramyndum né vísindaskáld-
skap – hann hefur fyrst og fremst
áhuga á skrímslum og þau eiga ein-
faldlega oftast heima í slíkum sögum.
Í Hellboy eru manneskjurnar ekki í
forgrunni, eðlilegustu manneskjunni
úr fyrstu myndinni er raunar búið að
sparka alla leið til suðurpólsins (af
því að Vítisstráksi hafði áhyggjur af
því að hann væri keppinautur um
hylli eldsnótarinnar Liz Sherman). Í
viðtali við vefritið Premiere rekur
Del Toro þetta til fóstranna sem allar
svæfðu hann með sögur af skrímslum
og óvættum – og í staðinn fyrir að
óttast þau virðist hann hafa lært að
elska þau.
Seint í annarri myndinni heyrist
einmitt Eels-lagið „Beautiful Freak“
(Youre such a beautiful freak / I wish
there were more just like you) og
maður hefur á tilfinningunni að þetta
sé lagið hans Guillermo. En það eru
fá skrímsli eftir, flest eru þau í út-
rýmingarhættu. Prinsinn Nuada er
töluvert sympatískari en skúrkar
fyrri Hellboy-myndarinnar, hann
grætur gamalt veldi álfanna sem þeir
sömdu frá sér í nafni friðar með þess-
um orðum: „Mennirnir hafa gleymt
guðunum, eyðilagt jörðina – fyrir
hvað? Bílastæði og verslunarmið-
stöðvar!“ Þegar Hellboy er svo um
það bil að fara að stúta enn einu
skrímslinu þá hvíslar hann í eyra
hans: „Líttu á það. Hið síðasta sinnar
tegundar. Rétt eins og við – ef þú
eyðir því mun jörðin aldrei sjá þess
líka aftur.“ En Guillermo Del Toro
mun þó halda í þeim lífinu á meðan
hann getur.
Kvikmyndin Hellboy verður frumsýnd á Íslandi í dag
Þessi fallegu skrímsli
Úr Hellboy II Leikstjórinn Guillermo del Toro hefur fyrst og fremst áhuga á skrímslum. Hér sjást nokkur slík.
FYRSTA Hellboy-myndin hefst í síðari heimsstyrjöldinni þegar titil-
persónan verður til við dularfullar tilraunir nasista, með hjálp hins rúss-
neska Raspútin, til þess að opna dyr inn í aðrar og myrkari víddir. En
bandamenn koma aðvífandi, heilla nýfæddan djöflasoninn með súkku-
laðistykki og ættleiða hann.
Þegar hann vex úr grasi verður hann einn af lykilstarfsmönnum ríkis-
stofnunar um hið yfirnáttúrulega, BPRD (Bureau of Paranormal Research
& Defense), ásamt hafmanninum Abe Sapien og eldgyðjunni Liz Sherman
(Selmu Blair). Þá gerir möppudýrið og vindlasérfræðingurinn Tom Mann-
ing (Jeffrey Tambor) sitt til þess að gera þeim erfitt fyrir, aðallega af því
hann hefur lítinn skilning á óhefðbundnum aðferðum Hellboy. Auk þess
fær Hellboy nýja barnapíu í hverri mynd, fyrst var það hinn mennski John
Myers (Rupert Evans) en í nýju myndinni er röðin komin að austuríska
krukkukarlinum Johanni Krauss.
Saman berjast þau svo við alls kyns illþýði. Í fyrstu myndinni voru það
Raspútín og hans kónar (og sögur herma að rússneska óbermið gæti snúið
aftur í þriðju myndinni) og í mynd tvö er það álfaprinsinn Nuada sem ógn-
ar mannheimum.
Hellboy hóf líf sitt sem teiknimyndasaga eftir Mike Mignolia. Hann hefur
unnið náið með del Toro við hugmyndavinnu fyrir myndirnar, en handritið
sjálft er þó alfarið í höndum leikstjórans.
Sagan
GUILLERMO del Toro er fæddur árið 1964 í Guadalaj-
ara í Mexíkó og er ásamt þeim Alfonso Cuarón og Alej-
andro González Iñárritu í fararbroddi nýrrar kyn-
slóðar mexíkóskra leikstjóra á
tímabili sem líklega verður líklega
minnst í sögubókum sem gullaldar
mexíkóskrar kvikmyndagerðar.
Fyrsta mynd hans í fullri lengd
var Cronos sem fjallaði um fornar
tilraunir gullgerðarmanna til þess að
finna leiðina til eilífs lífs. Frumraun
hans í Hollywood var svo Mimic, um
risakakkalakka sem geta tekið á sig
mennskt form, en það var með ann-
arri myndinni um vampírublending-
inn Blade sem hann stimplaði sig rækilega inn í Holly-
wood. Í millitíðinni skrapp hann raunar til Spánar og
gerði Hryggjarstykki djöfulsins (El Espinazo del
diablo), en hún er nokkurs konar tvíburamynd Völund-
arhús Fánsins enda báðar ævintýramyndir úr spænska
borgarastríðinu – og líklega enn tvær bestu myndir
leikstjórans. Eftir velgengni Völundarhúss Fánsins og
Hellboy-myndanna hefur del Toro verið orðaður við
fjölda mynda, en þær einu sem eru komnar á hreint eru
myndirnar tvær um Hobbitann. Hins vegar eru myndir
á borð við Doctor Strange, Tarzan, The Witches,Dead-
man, At the Mountains of Madness og Frankenstein í
vinnslu þótt varla komist þær allar af teikniborðinu.
Leikstjórinn
Guillermo del Toro
ÞAÐ er kúnstug sérhæfing að einbeita sér að því að
leika undir þykku lagi af latexi og öðrum uppfinn-
ingum förðunarmeistara. Ýmislegt þarf til, bæði þarf
oft að leika
meira með lík-
amanum heldur
en andlitinu (og í
því er slíkur leik-
ur jafnvel skyld-
ari leikhúsleik en
öðrum bíó-
myndaleik) og þá
þarf leikarinn að
vera vel á sig
kominn líkam-
lega, enda meira en að segja það að vera þakinn gervi-
efnum íklæddur þungum búningum allan daginn.
Raunar eru ekki allir með húð sem þolir slíkt álag, sök-
um ofnæmis og annars.
Þeir Ron Perlman og Doug Jones eru þó báðir meðal
þeirra fremstu á þessu sviði. Perlman hefur leikið öllu
mannlegri skrímsli (útlitslega) á borð við Hellboy og
dýrið í frægum sjónvarpsþáttum um Fríðu og dýrið.
Doug Jones hefur hins vegar einfaldlega leikið þær
furðuverur sem del Toro dettur í hug, hann lék bæði
Fáninn og manninn með augun í höndunum í Völund-
arhúsi Fánsins og í Hellboy 2 leikur hann fiskmanninn
Abe Sapien sem og sjálfan engil dauðans.
Latexleikarar
Doug Jones Ron Perlman