Morgunblaðið - 16.07.2008, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í BorgarbíóSími 462 3500
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
Hancock kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Meet Dave kl. 6:10 - 8:30 - 10:40 B.i. 7 ára
Big Stan kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
The Incredible Hulk kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Hellboy 2 kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12ára
Mamma Mia kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Hellboy 2 kl. 6 - 8:30 - 10:50 B.i. 12 ára
Mamma Mia kl. 6 - 8:30 - 10:50 LEYFÐ
Hancock kl. 10 B.i. 12 ára
Kung Fu panda enskt tal kl. 6 - 8 LEYFÐ
Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
650kr.
Eddie Murphy er inn í
Eddie Murphy
í frábærri gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna!
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum
sem heldur honum gangandi
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
TILBOÐ
Í
BÍÓ
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
650kr.
Það er kominn nýr
hrotti í fangelsið...
af minni gerðinni!
SÝND SMÁRABÍÓI
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi
Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy
í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna!
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
TILBOÐ
Í
BÍÓ
650kr.
eeee
Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk
gaman-, söng- og dansræma byggð á
svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug,
fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull.
- Ó.H.T, Rás 2
eee
“Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur
og meiriháttar tónlist!”
- T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
SÝND SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
Úff, djöfull voru þeir geðveik-ir. Ég varð eiginlegasmeykur á tímabili. Þessir
menn voru að spila eins og um líf og
dauða væri að tefla. Það var hreint
og beint hættulegt að standa nálægt
sviðinu. Ég fékk gæsahúð. Mér rann
kalt vatn á milli skinns og hörunds.
Hvað eru þessir menn að spá!?“.
Það hefur verið býsna algengt aðsæluhrollur hafi farið um
mann á íslenskum tónleikum síðast-
liðin ár og það hefur gerst að tár
renni niður hvarma. En þessar til-
finningar sem lýst er í opnunarsetn-
ingunni, að maður skynji raunveru-
lega hættu og fái spennuhlaðinn en
undarlega þægilegan hnút í mag-
ann, hafa hins vegar verið óalgeng-
ar.
Ég hef hreinlega saknað þessarar
hættu, eða „sense of danger“ eins
og rætt er um í erlendum rokk-
fagritum, þegar ég hef séð íslensk-
ar rokksveitir uppi á sviði und-
anfarin ár. Ýmis teikn eru þó uppi
um að þetta sé að breytast; bylgja
ungsveita (Swords of Chaos, Skítur,
Slugs og Fist Fokkers t.a.m.) ryðj-
ast nú upp á svið með brjálæðis-
glampa í augum – og er það vel.
Þessir „lífshættulegu“ straumarléku um sveitir eins og Doors,
MC5, Stooges og Sex Pistols, svo
eitthvað sé nefnt, en eitt rosaleg-
asta afbrigðið er kennt við banda-
rísk níunda áratugs útgáfumerki
eins og Amphetamine Reptile og
Touch and Go.
Þar réð drullugt, sjúkt, eiginlega
hálf kærulaust rokk ríkjum, hljóm-
styrkur í algjörum botni og söngv-
arar sem gítarleikarar gengu ber-
serksgang uppi á sviði.
David Yow, söngvari Jesus Liz-
ard, náði einu sinni að sparka gat - í
loftið – á tónleikastað í London.
Hérlendis tók hinn goðsagna-
kennda SSSpan upp svipaða háttu,
að fara á tónleika með henni var
ávallt upplifun af þessu tagi.
Nöfn eins og Slugs og Fist Fok-kers segja ýmislegt um það
sem fram fer á sviðinu. Keyrslan er
slík að allt bandið er úr að ofan und-
ir rest. Skítur verður þó að teljast
tilkomumesta bandið í þessum geira
í dag. Á liðnu Eistnaflugi tóku þeir
þessa speki á annað stig og eig-
inlega með ólíkindum að söngv-
arinn hafi haldið út í gegnum settið.
Ég stóð sperrtur, með hendur læst-
ar saman, tennur kirfilega sam-
anbitnar og fylgdist dáleiddur með.
Í hæfilegri fjarlægð. Úff...
Ekki það að hófstilltari sviðs-framkoma eigi ekki rétt á sér.
Það er engu að síður eitthvað
heillandi við það að sjá hljómsveitir
finna svona „hættulega“ mikið fyrir
lífinu upp á sviði. Koma svo! Meiri
heilbrigða geðveiki! arnart@mbl.is
Hættulegar hljómsveitir
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
»Ég hef hreinlegasaknað þessarar
hættu eða „sense of
danger“, eins og rætt er
um í erlendum rokk-
fagritum, þegar ég hef
séð íslenskar rokk-
sveitir uppi á sviði und-
anfarin ár.
Brjálæði Slugs láta allt vaða í hamslausri gleði.