Morgunblaðið - 16.07.2008, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
HANCOCK kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
WANTED kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
THE CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5 B.i.12 ára
/ KRINGLUNNI
DECEPTION kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
MAMMA MÍA kl. 3:40 -5:40D - 8D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ LÚXUS VIP
KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 3:40D - 6 LEYFÐ DIGITAL
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
DECEPTION kl. 8:10 - 10:30 B.i. 14 ára
MEET DAVE kl. 6 B.i. 7 ára
WANTED kl. 8D - 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6D LEYFÐ DIGITAL
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5:15 B.i. 7 ára
INDIANA JONES 4 kl. 8 B.i. 12 ára
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeee
Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk
gaman-, söng- og dansræma byggð á
svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug,
fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull.
- Ó.H.T, Rás 2
eee
“Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur
og meiriháttar tónlist!”
- T.V. - Kvikmyndir.is
Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi
SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
STÓRLEIKARARNIR HUGH JACKMAN OG EWAN MCGREGOR
FARA HAMFÖRUM Í BESTA BESTA ÞRILLER SUMARSINS.
HINN hraðvirki
James Patterson
sendir frá sér
hverja metsölubók-
ina á fætur annarri
og velur sér stund-
um meðhöfunda,
sennilega til að
flýta fyrir sér. Með-
höfundur hans í
Step on a Crack er Michael Led-
widge. Bókin hefst á síðustu kvöld-
máltíð fyrrverandi forsetafrúar
Bandaríkjanna. Hún deyr á svipleg-
an hátt, hefur verið myrt án þess að
upp komist. Í jarðarför hennar í St.
Patricks- dómkirkjunni í New York
tekur hópur manna viðstadda í gísl-
ingu. Gíslarnir eru frægt og ríkt fólk
sem hefur svo sannarlega ástæðu til
að óttast um líf sitt, eins og kemur í
ljós þegar líða fer á bókina. Lög-
reglumaðurinn Michael Bennett
fæst við lausn þessa erfiða máls.
Áhyggjur eru að sliga hann því ást-
kær eiginkona hans er að deyja úr
krabbameini. Ekki nóg með það
heldur eiga þau hjón tíu ættleidd
börn á aldrinum 3 til 12 ára sem senn
verða móðurlaus. Lögreglumaðurinn
Michael Bennett reynist vera kar-
akterlaus og furðuráðalaus og að-
gerðalítill – en kannski er ekki hægt
að gera miklar kröfur til manns sem
er um það bil að verða ekkill og ein-
stæður faðir tíu barna. Aðrar per-
sónur bókarinnar eru svo jafn litlaus-
ar og óspennandi og aðalpersónan.
Spennuþáttur sögunnar virkar
prýðilega í byrjun. Snemma er ljóst
að óþokkarnir svífast einskis, mjög
reynir á gíslanna og lögreglu-
maðurinn stendur lengi vel ráðþrota
andspænis hugvitsamlegri áætlun.
Því miður glatast spennan þegar líða
tekur á verkið. Yfirgengi-leg tilfinn-
ingasemi tekur völdin og flæðir yfir
síðurnar í lýsingum á fjölskyldu-
harmleik lögreglumannsins.
Höfundarnir missa tökin á verkinu
vegna þess að þeir stefna svo til sam-
tímis í tvær gjörólíkar áttir. Þeir
hefðu betur gert upp við sig áður en
lagt var af stað í hvaða átt skyldi
halda. Í þessu verki kæfir
tilfinningasullið spennuna. Sem er
synd því byrjunin er góð.
Tilfinningasull
kæfir spennu
Step on a Crack eftir James Patterson
og Michael Ledwidge. 407 bls. Kilja.
Headline gefur út.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
RAIMUND Gregorius er kennari í svissneskum
menntaskóla, öðrum fremri í sínu fagi, vinsæll og vel lið-
inn sérfræðingur í „dauðum“ tungumálum, forngrísku og
latínu og að auki sérfróður í fornaldarhebresku, þó að
hann sé óneitanlega hálfmyglaður. Svo hefur hann helg-
að sig fræðunum að hann hefur eiginlega gleymt að lifa
lífinu, gleymt að upplifa hversdagslega hluti eins og fjöl-
skyldu og félagslíf. Víst er hann enginn furðufugl og þó; í
augum nemenda sinna, sem kalla hann Mundus, er hann
stofnun en ekki manneskja.
Morgun einn er hann á leið í vinnuna er hann hittir
fyrir tilviljun portúgalska konu og hrífst svo af henni og
tungumálinu að hann fer og kaupir fyrstu portúgölsku
bókina sem hann kemst yfir hjá fornbókasala og áður en
hann veit af, samdægurs, er hann á leið til Lissabon með
næturlestinni, yfirgaf skólann, og líf sitt allt reyndar, án
þess að kveðja kóng eða prest.
Bókin sem hann keypti var eftir portúgalskan lækni
og ljóðskáld, Amadeu de Prado, og eftir að hafa lesið
bókina verður Gregorius heltekinn af löngun til að fræð-
ast um höfundinn. í Lissabon kemst hann svo að því að
Prado er allur, lést úr heilablæðingu nokkrum dögum áð-
ur, en Gregorius heldur leitinni áfram og smám saman
lýkst upp líf Prados fyrir honum um leið og hann fer að
fleta síðunum í sinni eigin lífsbók.
Þetta er nokkurn veginn lýsing á söguþræðinum á
nýrri bók svissneska heimspekingsins Pascal Merciers
(sem heitir í raun Peter Bieri). Bókin vakti mikla athygli
er hún kom út í Þýskalandi og hefur einnig verið vel tek-
ið víðar, selst í ríflega tveimur milljónum eintaka. Hún
fellur í flokk bóka sem eru á köflum frekar heimspeki-
eða bókmenntalegar hugleiðingar og ná oftar en ekki
milljónasölu; sjá til að mynda verk Umberto Ecos, Ant-
onio Tabucchis, Carlos Ruiz Zafóns og Bernhard
Schlinks.
Í bókum þeirra er atburðarásin og spennan undirliggj-
andi, það gerist fátt á yfirborðinu en undir niðri eru átök;
menn takast á við hinstu rök.
Forvitnilegar bækur: Er hægt að skipta út lífinu fyrir nýtt?
Síðunum flett í lífsbókinni
Tók sér aukasjálf Svissneski heimspekingurinn Peter
Bieri sem tók sér aukasjálfið Pascal Mercier.
ERLENDAR BÆKUR»