Morgunblaðið - 09.08.2008, Page 22
22 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
STEINUNN Sigurðardóttir verður
ekki áfram á meðal höfunda Forlags-
ins, en í rúman áratug hafa bækur
hennar komið út hjá Máli og menn-
ingu, sem er undir hatti Forlagsins.
Steinunn vildi ekkert tjá sig um mál-
ið en Jóhann Páll Valdimarsson stað-
festi að hann hefði haft frumkvæði að
því að slíta samstarfinu, en hefði ekki
meira um málið að segja. „Almennt
get ég þó sagt að eftir sameiningu
JPV og bókahluta Eddu eru gríð-
arlega margir íslenskir höfundar
undir hatti Forlagsins og ég hef mín-
ar efasemdir um að rétt sé að þeir
séu svona margir. Það er lykilatriði
að sinna þeim höfundum vel sem við
gefum út og það liggur í augum uppi
að ef þeir eru of margir getum við
ekki sinnt þeim eins vel og ella. Þess
utan er líka eðlilegt að skapa rúm
fyrir nýja höfunda,“ segir Jóhann
Páll og bætir við: „Ég hef reyndar
alltaf verið þeirrar skoðunar að æski-
legt sé að samband höfundar og út-
gefanda sé langtímasamband en á
því geta verið undantekningar sem
henta báðum. Ef samband útgefanda
og höfundar gengur stirðlega fyrir
sig og báðir aðilar hafa jafnvel efa-
semdir um heilindi hvor annars þá er
best fyrir báða aðila að slíta sam-
bandinu. Útgefandi getur ekki gert
höfundi meiri óleik en að gefa út
bækur hans ef hann hefur tapað trú
og áhuga á þeim.“
Steinunn
hætt hjá
Forlaginu
Efist aðilar um
heilindi hvor annars
er best að hætta,
segir Jóhann Páll
Farin Steinunn Sigurðardóttir
Í DAG kl. 14 verður opnuð
sýningin H O L E UP í Lista-
sal Mosfellsbæjar. Jóna Hlíf
Halldórsdóttir sýnir sam-
nefnda innsetningu sem er
mynduð úr skúlptúr og hljóð-
verki. „H O L E UP er loka-
hnykkur á innsetningum þar
sem ég hef verið að prófa mig
áfram með ljós og efni til að
kveikja hughrif í rýmum,“
segir Jóna Hlíf. „Áður hef ég
verið með einkasýningu á
Akureyri og tekið þátt í samsýningu í Portúgal
þar sem ég nota rýmið í bland við ákveðna grunn-
þætti til að búa til nokkurs konar hella eða hreið-
ur. Lokaniðurstaðan er ólík í hvert skipti.“
Myndlist
Hughrif kveikt í
Listasal Mosó
Af verki Jónu Hlífar.
ORGANISTINN „á
Strikinu“, Hans Ole
Thers, er gestur Al-
þjóðlegs orgelsumars í
Hallgrímskirkju nú
um helgina. Hans Ole
er organisti Kirkju
heilags anda (Hellig-
åndskirken) sem er við Amagertorg á Strikinu í
Kaupmannahöfn en auk þess kennir hann org-
elleik við Konunglega danska tónlistarháskólann.
Hans Ole Thers kemur fram á tvennum tón-
leikum, kl. 12 á hádegi í dag, er hann leikur bar-
okk og franska tónlist, og kl. 20 annað kvöld, en þá
spilar hann 5. orgelsinfóníu Widors, orgelverk eft-
ir Danina Buxtehude og Hartmann og frönsk verk
eftir Messiaen og Duruflé.
Tónlist
Organistinn á
Strikinu spilar hér
Hans Ole Thers
NÝJASTA sýningin í röð-
inni Sjónheyrn í menning-
armiðstöðinni Skaftfelli
opnar í dag klukkan 16.
Hún ber nafnið Höfuðtón-
skáld Austfirðinga og þar
leggja Birta Guðjónsdóttir
og Berglind María Tóm-
asdóttir út af sameiginlegri
hrifningu sinni á tón-
smíðum, ferli og sögu Inga
T. Lárussonar tónskálds.
Birta vann með sönglagið
„Ó blessuð vertu sumarsól“ í vídeó-hljóðverki í
samstarfi við Jempie Vermeulen. Hljóðverk
Berglindar Maríu samanstendur af tónlist Inga
og viðtölum við Austfirðinga af eldri kynslóðinni.
Myndlist
Höfuðtónskáld
Austfirðinga
Berglind María
Tómasdóttir
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
HJÓNIN Gunnar
Dungal og Þórdís
Alda Sigurðar-
dóttir gerðu sl.
þriðjudag sam-
komulag við
bókaútgáfuna
Crymogeu um út-
gáfu á ritröð um
íslenska mynd-
listarmenn.
„Við Þórdís höfum verið með lista-
sjóð síðan 1992, fyrst Pennans sem
við stofnuðum og eftir að við seldum
Pennann, þá listasjóð Dungal. Þar
höfum við verið að styrkja ungt fólk
sem er að stíga sín fyrstu skref og
koma sér á framfæri, en svo
ákváðum við að bæta þessu við,“
segir Gunnar Dungal.
Reyndir listamenn
Bækurnar verða að minnsta kosti
fimm talsins og fjalla um íslenska
samtímalistamenn sem eiga þegar
nokkurn feril að baki. „Það er viss
æskudýrkun í gangi og við tökum
þátt í henni, en það er fleira fólk sem
við höfum mikið álit á og við byrjum
á Guðrúnu Einarsdóttur sem hefur
unnið að myndlist í áratugi,“ segir
Gunnar.
Valið á listamönnunum sem fjallað
verður um í ritröðinni er í höndum
þeirra hjóna, eða eins og hann segir
sjálfur: „Það er alfarið okkar sér-
viska sem ræður því.“
Útgáfufyrirtækið Crymogea er í
eigu þeirra Kristjáns B. Jónassonar,
formanns Félags íslenskra bókaút-
gefenda, og Snæbjörns Arngríms-
sonar, sem jafnan er kenndur við
bókaforlagið Bjart.
„Við sjáum um þessa útgáfu, en
þau standa á bak við hana og fjár-
magna hana,“ segir Kristján. „Þetta
eru kannski ekki endilega neinar
metsölubækur, en þetta er það sem
við viljum gera í Crymogeu. Fyrsta
bókin kemur út núna í nóvember.“
Næstur á eftir Guðrúnu í röðinni er
Kristinn E. Hrafnsson á næsta ári,
en síðan er óákveðið hverjir taka við.
Fengnir verða fræðimenn sem
sérstaklega þekkja til viðkomandi
listamanns til þess að skrifa textann
í hverja bók, en hann verður ekki
eingöngu á íslensku. „Listaverka-
bókaútgáfa er mikið notuð til kynn-
ingar á listamönnum í hinum al-
þjóðlega listaheimi og það er líka
hugsunin að koma bókunum í dreif-
ingu annars staðar. Það skiptir máli
fyrir galleríin og fagfólk í kringum
kynningu á samtímalist að það sé
greiður aðgangur að upplýsingum.
Miðað við hvað það er til mikið af
frambærilegum listamönnum á Ís-
landi hefur útgáfuhliðin kannski ver-
ið vanrækt,“ segir Kristján.
Listasjóður Dungal ræðst í bókaútgáfu um íslenska myndlistarmenn
Fimm bækur í bígerð
xxx
Fyrsta bókin í ritröðinni kemur út í
nóvember og fjallar um myndlist-
armanninn Guðrúnu Einarsdóttur.
Hún lauk námi við Mynd- og
handíðaskóla Íslands árið 1989 og
hefur síðan haldið fjölmargar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum bæði hér á landi og er-
lendis.
Samhliða útgáfu bókarinnar
verður haldin sýning á verkum Guð-
rúnar í I8 galleríi. „Það er nauðsyn-
legt að listamenn hafi yfirlitsrit
þegar kemur á ákveðinn stað á ferl-
inum,“ segir Hildigunnur Birg-
isdóttir hjá I8. „Erlendis tíðkast
þetta jafnvel enn fyrr og þetta hef-
ur vantað mikið hér á Íslandi. Það
eru til svona bækur um suma ís-
lenska myndlistarmenn og þær not-
um við óspart.“
Yfirlitsritin
nauðsynleg
Morgunblaðið/Sverrir
Ríður á vaðið Fyrsta bókin fjallar um Guðrúnu Einarsdóttur.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
Í DAG verður myndlistarsýningin Handan
hugans opnuð í Skaftfelli í fyrsta sinn en síðan
er ætlunin að hún breytist og þróist næsta
mánuðinn og ný verk taki við. Bjargey Ólafs-
dóttir myndlistarmaður átti frumkvæðið að
sýningunni og fékk þær Ásdísi Sif Gunn-
arsdóttur, Ingibjörgu Magnadóttur og Krist-
ínu Eiríksdóttur í lið með sér, auk þess sem
ætlunin er að fá fleiri gesti úr öðrum geirum
menningarlífsins, t.d. heimspekinga eða tón-
listarmenn, til þátttöku.
„Þetta er tækifæri til þess að tilraunast,“
segir Bjargey. „Það er oft þannig þegar maður
er að vinna fyrir sýningar að þá gerir maður
eitthvað sem er alveg skothelt. En það er líka
gott að vera svolítið á brúninni og gera hluti
sem maður er ekki alveg viss með.“
Fyrst upp á veggi verða verk eftir Bjarg-
eyju og Kristínu, en síðan bætast fleiri við og
sýningin tekur stakkaskiptum. Allir lista-
mennirnir ætla að sýna verk sem byggjast á
teikningum.
mikið. Ég ákvað að verða myndlistarmaður
þegar ég var átta ára og ætlaði þá að búa í Par-
ís og teikna og mála og hanga með vinum mín-
um. Núna er ég hérna á Seyðisfirði að teikna
og mála og hanga með vinum mínum.“
teikna og það þróaðist út í myndlist. Við
ákváðum þess vegna að hafa þennan fókus og
ég er til dæmis búin að vera að teikna mjög
„Við vildum fara aftur í upprunann,“ segir
Bjargey. „Flestir myndlistarmenn koma úr
teikningu, við vorum börn sem vorum alltaf að
Aftur í upprunann í teikningunni
Samsýningin Handan hugans verður opnuð í menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði í dag
Tekur sífelldum breytingum eftir því sem fleiri listamenn bætast í hópinn
Teiknari Bjargey Ólafsdóttir átti frumkvæðið að sýningunni þar sem teikningar ráða.
Í HNOTSKURN
»Í Skaftfelli er rekin listamiðstöð meðveitingasölu, netkaffi, bókasafni,
stórum sýningarsal og gestaíbúð fyrir
myndlistar- og fræðimenn.
»Skaftfell hefur starfað sem sjálfs-eignarstofnun frá árinu 1998, en
hefur þegið styrki frá ríki og bæ. List-
rænn stjórnandi Skaftfells er Björn
Roth.
»Sýningin Handan hugans verðuropnuð klukkan 16 í dag og verður
síðan opin frá 13 til 17 alla daga til 7.
september.
Gunnar Dungal