Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 1
Krónan magnaðist mikið upp áður en
menn áttuðu sig á því að von væri á
reiðarslagi utan frá, segir Bjarni Bragi
Jónsson hagfræðingur.
„Það var nánast sama hvað menn
gerðu, menn gátu ekki gert neitt við
því. Hagkerfið opnaði sig í trausti þess
að við værum að reyna á verðbólgu-
markmið og vaxtastjórn, menn fengu
sjálfstraust út úr því, og gáðu varla að
sér. Og svo er eins og menn hafi
treyst hver á annan að passa
upp á innstæður í öðrum
löndum; það var von að
við héldum að eftirlitið
með því félli undir bankaeftirlit hlut-
aðeigandi ríkja.“
Hvað varðar að setja krónuna á flot
segir hann ekkert annað að gera en
þreifa sig áfram og gæta þess að setja
sig ekki í neyðarsnöru. „Ef við setjum
okkur ákveðin markmið, og reynum að
halda genginu við það, þá vekur það ill-
viðráðanlegar hreyfingar í spákaup-
mennsku. Þá geta menn séð veilur
í því, hvort við ráðum við það,
búið til skortstöður og svo
framvegis.“
Hann staldrar við.
„Yfirleitt er það þannig,
að peningaheimurinn ytra snýst gegn
hvatvísum brottrekstri seðlabanka-
stjóra. Hvort seðlabankastjóri ráði einn
eða einhver stakur spekingur er hálf-
gert rugl af eftirgreindum ástæðum, því
seðlabankavinna er alls staðar teym-
isvinna, hvar sem er í heiminum. Jafn-
vel þar sem aðeins einn seðlabanka-
stjóri er skipaður er hann fyrst og
fremst fundarstjóri á báða bóga og
leiðir menn síðan saman. Hann hefur
kannski úrslitavald í stóru málunum, en
það nær ekki mjög langt, ef það er búið
að fara í gegnum sigti í ráðum innan
bankans.“
Ekki að setja sig í neyðarsnöru
2 3. N Ó V E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
321. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
HÁLFAR
SYSTUR
SAMBANDI
Í HEILU
Rásuðu út saman á
sokkabandsárunum
TENGSL:HELGA BRAGA
OG INGVELDUR ÝR SJÓRÁN
FYRR
OG NÚ
SÁLIN og áhrifin á
sálarástand Íslendinga
SUNNUDAGUR
NICOLAS ANELKA»8KRÓNAN»14
Fótboltakappinn Nicolas Anelka hefur
gefið mótlætinu undanfarið langt nef
og raðar nú inn mörkum fyrir Chelsea.
Hann hefur leikið
með átta liðum á
ellefu árum, þar af í
tvígang fyrir eitt
þeirra.
Ekki er
því
hægt að
fullyrða að
hann skjóti rótum
hjá Chelsea.
Loksins á
skotskónum
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„STUÐNINGUR forystunnar við
innrásina í Írak var flokknum erf-
iður og fór illa í bæði flokksmenn og
almenning. Náið samstarf Halldórs
Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar
var óvinsælt þar sem flokksmenn
töldu sig ekki standa forystu flokks-
ins nógu nærri. Ég held, eftir á að
hyggja, að það atriði hafi verið einna
áhrifaríkast í öllu flokksstarfi því
Framsóknarflokkurinn er í eðli sínu
grasrótarflokkur sem byggist á sam-
vinnu flokksmanna og félags-
hyggju,“ segir Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi formaður
Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn tekst á við
vandamál sem virðist honum ofviða;
það er leitin að tilverugrundvelli.
Fylgishrun, úr fjórðungsfylgi niður í
undir tíu prósent á rúmum áratug,
segir sína sögu um erfiðleikana.
Árið 2008 hefur verið Framsókn-
arflokknum afar erfitt. Björn Ingi
Hrafnsson borgarfulltrúi hætti
störfum fyrir flokkinn eftir snarpar
deilur við flokksmenn, Bjarni Harð-
arson sagði af sér þingmennsku á
dögunum og átök á miðstjórnarfundi
enduðu með að Guðni Ágústsson
sagði af sér þingmennsku og hætti
sem formaður flokksins.
Innanflokksátökin hafa verið
hörðust í starfi flokksins á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar hefur kraumað
óánægja meðal flokksmanna um
nokkurra ára skeið sem ekki verður
séð að verði leyst nema með róttæk-
um aðgerðum. | 4
Hver er
tilgangur
flokksins?
Framsóknarflokkur
í tilvistarkreppu
Morgunblaðið/Golli
Farinn Guðni Ágústsson er hættur.
Helstu stjórnendur Glitnis ásamt fulltrúum
stærsta hluthafans í Glitni, FL Group, brutu
allar verklagsreglur við lánveitingar í nokkr-
um tilvikum í fyrrahaust. Lánveitingar upp á
marga tugi milljarða króna voru ákveðnar af
örfáum mönnum án þess að áhættumat færi
fram eða að um þær væri fjallað í lánveitinga-
nefnd bankans. Líklegt er talið að krafist
verði opinberrar rannsóknar á viðskiptunum.
FRÉTTASKÝRING eftir
Agnesi Bragadóttur »12
LÁNABÓK OPNUÐ