Morgunblaðið - 23.11.2008, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.11.2008, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Enn ein röddin bættist við í sjón-varpsfréttum á fimmtudag til notkunar í deilunni endalausu um það hvernig íslenskum sjávarútvegi muni reiða af komi til samninga um aðild að Evrópusambandinu.     Þar sagðist Olli Rehn, fram-kvæmdastjóri stækkunarmála hjá ESB, búast við að sjávarútveg- urinn yrði erf- iðastur við- ureignar í aðildarvið- ræðum.     Hann sagði: „Ísjávar- útvegsstefnunni eins og á öðrum sviðum höfum við takmarkaða heimild fyrir tilslakan- ir; það þýðir að þjóð fer að sameig- inlegri stefnu. Það eru til leiðir til að auðvelda aðlögunina en meg- inreglan er að þjóð eins og Íslend- ingar skuli fara að almennum reglum.“     Hans Martens hjá European Po-licy Centre sagði í sömu frétt að Íslendingar gætu ekki vænst þess að breyta fiskveiðistefnu ESB utan frá, það yrði að gerast innan frá.     Nú er að vænta endurskoðunar áEvrópustefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Leiði hún til stuðnings flokkanna við aðildar- viðræður og jafnvel inngöngu verð- ur umræðan um ESB einsleitari á Ís- landi. Háværasta andstaðan mun koma frá Vinstri grænum.     Aðild að ESB var ekki til umræðu íaðdraganda síðustu alþingis- kosninga. Hún var á stefnuskrá Samfylkingarinnar, en í andrúms- lofti góðærisins fór harla lítið fyrir ESB í málflutningi flokksins.     Í svo mikilvægu máli má umræðanhins vegar ekki vera í mónó, hún verður að endurspegla allar hliðar. Olli Rehn Sjávarútvegur og ESB                            ! " #$    %&'  ( )                   * (! +  ,- . / 0     + -                    !   !          "  # 12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   %   %"   !   !    !   !    %"        !   ! :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? !   !   $! !      !  ! $! ! ! ! ! &!                          *$BCD              !"     #   $      %       &  ! "! ' (  )       *! $$ B *!   '( ) "  ( "     #"* # <2  <!  <2  <!  <2  '")  + , -% #.  DE!-                      *"  '       % + ! 6  2  +  '  $  %  ,   -     .   B  . ("  '  (  / )    0    )-      #  "           1 /0  #11  #"   2 #  %# +  3 !     ! ! isstjórnina] milliliðalaust. Gunnar Sigurðsson leikstjóri krefst þess að ríkisstjórn Íslands mæti á boðaðan borgarafund. Mér er það ljóst að sú sátt innan Fram- sóknarflokksins sem nauðsynleg er fyr- ir endurreisn hans muni ekki skapast án breytinga í forystu flokksins. Guðni Ágústsson í bréfi til þingmanna Framsóknarflokksins eftir að hann sagði af sér þingmennsku og sem formaður flokksins. En ég er ekki frá því að síðustu vikurnar hafi Seðlabanki Íslands og forystan þar verið í toppsæti á sökudólgalistanum og það er eiginlega ekki hægt annað en að dást svolítið að því, að það hafi gengið svona lengi, svo langsótt sem það er. Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Það er greinilegt að Davíð Odds- son fyrirlítur forsetann. Guðjón Friðriksson, sagnfræð- ingur, sem ritaði bók um forseta- tíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Þetta er ekki þjóðfélag heldur þjóffélag. Sverrir Stormsker, tónlistarmaður og rithöfundur, í grein í Morgunblaðinu. Ummæli ’ Nei, ég held ekki að neitt slíkt hafi komið fram um- fram það sem allur al- menningur gat getið sér til um. Geir H. Haarde um hvort Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri hafi fengið upplýsingar um erfiða stöðu Landsbankans á fundi í London. Ég sé ekki fram á annað en góða jóla- verslun. Ólafur Benediktsson, verslunareigandi á Laugaveginum. Ég hef vonda tilfinningu fyrir þessu og ég segi bara að lengi getur vont versn- að í því hvernig ríkisstjórnin heldur á þessum málum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, um samkomulagið vegna Icesave- reikninga Landsbankans. Við munum ekki hætta fyrr en seðla- bankastjóri er farinn og búið er að skipta um stjórn Fjármálaeftirlitsins. Hörður Torfason, skipuleggjandi mótmælafunda á Austurvelli. Íslenskir bankar hafa ekk- ert meira að svara fyrir en okkar eigin snillingar sem keyptu verðlausa pappíra frá Bandaríkj- unum í von um stór- gróða. Íslandsvinurinn Tom Burnhan sem lengi hef- ur stundað viðskipti með íslenskum fyrir- tækjum í Bretlandi. Fólkið vill tala við hana [rík- Ég veit ekki betur en að krónan verði sett á flot á allra næstu dögum. Geir H. Haarde, forsætis- ráðherra, á Alþingi. Bubbi Morthens söng eitt sinn skemmtilegan slagara þar sem inntak textans var að fría sig ábyrgð. Mér hafa oft komið upphafsorð textans í hug síðustu vik- urnar: „Ekki benda á mig, segir varðstjórinn. Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn. Spyrjið þann sem var á vakt. Ég ábyrgist hann muni segja satt.“ Svo er það. Hver var á vakt? Hver segir satt? Hver trúir því að vakthafandi segi satt? Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, flutti magn- aða ræðu á fundi Viðskiptaráðs á þriðjudag og gerðist enn eina ferðina senuþjófur og dag- skrárstjóri. Frá þriðjudeginum hefur vart ann- að verið á dagskrá en ræða Davíðs, svör þeirra sem hann beindi spjótum sínum að og enda- lausar vangaveltur í spjallþáttum, umræðu- þáttum, aðsendum greinum og fréttaskýr- ingum. Davíð hefur engu gleymt. Ég hefði að vísu kosið að Davíð, sem kvartaði sáran undan því að almenningi væri haldið óupplýstum, hefði notað þetta tækifæri til þess að upp- lýsa okkur um hvers vegna Bretar beittu hryðjuverkalögunum á okkur, en hann hélt því fram að hann þekkti ástæður þess mun betur en við hin. Þetta vafðist ekkert fyrir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sem var svo sem ekkert að mótmæla því að Seðlabankinn hefði oft lýst áhyggj- um af stærð bankanna á fundum með ráðherrum ríkisstjórnarinnar. En hann sagði líka að í kjölfar slíkra funda með Seðlabanka hefðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar fundað með bankastjórum við- skiptabankanna og fengið þá mynd að „staðan væri betri en hún var“. Með öðrum orðum: Geir var beinlínis að gefa til kynna að ríkis- stjórnin hefði betur tekið mark á varnaðarorðum Seðlabanka í tíma, í stað þess að trúa bankastjór- um viðskiptabankanna eins og nýju neti. Samfylkingin á hinn bóginn þurfti að halda heila tvo þingflokksfundi á þriðjudag til þess að reyna að samhæfa afstöðu þingflokks og ráðherra flokksins til ræðu Davíðs. Seinni þingflokksfundur Samfylkingarinnar stóð í lið- lega tvo og hálfan tíma. Fjallið tók jóðsótt og lítil mús fæddist. Allir áttu von á stórtíðindum eftir seinni þing- flokksfundinn, jafnvel stjórnarslitum, en hvað sagði for- maður flokksins og utanríkisráðherra í kjölfar fund- arins? Jú, hún var búin að kúvenda og sagði að þess misskilnings hefði gætt í ræðu Davíðs að verið væri að ásaka hann fyrir einhverjar misgerð- ir í starfi. „Vandamálið er trúverðugleikinn,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bíðum nú við. Er þetta ekki formaðurinn í þeim ríkisstjórnarflokki sem án afláts hefur beitt þingmönnum og ráðherr- um sínum til árása á Davíð Oddsson? Hefur Davíð Oddsson ekki ver- ið helsta skotmark Sam- fylkingarinnar frá því löngu fyrir bankahrun? Bókaði Samfylkingin það ekki á ríkisstjórnarfundi fyrir nokkr- um vikum, að Davíð Oddsson sæti ekki í Seðlabanka með stuðningi hennar? Við, sauðsvartur almúginn, höfum vitað frá því í októberbyrjun að viðskiptabankarnir kenna Seðlabanka og ríkisstjórn um bankahrunið; Seðlabankinn kennir bönkunum og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar um að svo fór sem fór; Fjármálaeftirlitið kennir viðskipta- bönkum og Seðlabanka um, en er aðallega í felum og í því að segja ekki neitt, eða bara að málin séu í athug- un. Við vitum flest að allir ofangreindir eiga einhverja sök, en erum ekki endilega búin að raða sökudólgum í röð, eftir því hversu mikla sök hver ber. Höfum enda mjög misjafnar skoðanir á því hver eða hverjir eigi að vera í efsta sæti á sökudólgalistanum. Flest okkar vilja einnig að Alþingi axli sinn hluta ábyrgðarinnar, því reglugerðarverkið sem starfað var eftir, allar götur frá einkavæðingu bankanna, virðist, þrátt fyrir evrópskan uppruna, vera meingallað fyrir svo lítið hagkerfi sem það íslenska. Þetta hefðu einhverjir spekingar úr hópi alþingismanna átt að koma auga á og leggja til breyt- ingar. Fyrrverandi útrásarvíkingar hafa einkum sakað rík- isstjórnina um að illa fór, en ekki minnist ég þess að nokkrir þeirra hafi litið í eigin barm og viðurkennt að þeir hafi verið allt of stórtækir og gírugir í eigin skuld- setningu. Verða þeir ekki að axla sinn hluta af ábyrgð- inni á því að svo fór sem fór? Jafnvel stærsta hlutann? Loks er það ábyrgð okkar sjálfra. Getum við horft fram hjá henni? Eru stjórnvöld í lýðfrjálsu landi eitt- hvað annað en spegilmynd þjóðarinnar? Skotspónn Það er svo einfalt og auðvelt að gera einn mann að blóraböggli fyrir öllu heimsins böli og þar með bankahruni. Davíð Oddsson hefur gert fullt af mistökum, eins og þeim að lækka bindiskylduna, en ... Joðsótt Fjallið tók joðsótt.... Agnes segir … Ekki bend’ á mig! Morgunblaðið/Ómar Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.