Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 12

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 12
12 FréttaskýringBANKAHRUNIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is L jóst er að því hefur farið víðsfjarri að góðir og virtir viðskiptahættir hafi verið í hávegum hafðir innan Glitnis (Ís- landsbanka áður), að minnsta kosti síðustu starfsár bankans, hvort sem var í forstjóratíð Bjarna Ármanns- sonar eða Lárusar Welding. Hér verður stiklað á stóru, hvernig Glitnir hagaði sér í lánveitingum til FL Gro- up, langstærsta hluthafans í Glitni og tengdra aðila, eftir að ljóst var orðið að ekkert nema þrot blasti við FL Group fyrir tæpu ári. Blaðamaður hefur undir höndum gögn úr lánabókum Glitnis sem sýna fram á óeðlilegar lánafyrirgreiðslur frá bankanum til stærstu hluthafa FL Group upp á marga tugi millj- arða, þegar ljóst mátti vera að ekki var króna í aukinni lánagreiðslu til hluthafanna á vetur setjandi. Annað sem gögnin sýna fram á með óyggjandi hætti er að Glitnir sjálfur var bullandi meðvirkur þátt- takandi í laumuspili með helstu eig- endum FL Group sem gekk út á við- skipti með bréf í FL Group þar sem Glitnir var seljandi og laumufélag, FS37 ehf. með leynieigendur á veg- um stærstu hluthafanna var kaup- andi. Fram til 15. nóvember í fyrra hafði Glitnir verið að kaupa öll bréf í FL Group sem voru á markaði til þess að reyna að halda uppi gengi bréfa í FL Group og þegar FS37 ehf. keypti 4,11% í FL Group var Glitnir banki kominn með 3,59% hlut í FL. Ótrúleg vinnubrögð Allt var gert til þess að halda uppi hríðfallandi verði á bréfum í FL Gro- up og viðskiptin áttu sér stað í vik- unni 15. nóvember í fyrra til 22. nóv- ember í fyrra, nánar tiltekið hinn 16. nóvember 2007. Það er raunar svo yfirgengilegt hvernig menn í Glitni höguðu sér í viðskiptum með bréf í FL Group og lánveitingum þeim tengdum, að óhjá- kvæmilegt virðist að ný stjórn og skilanefnd Glitnis krefjist opinberrar rannsóknar á þessum viðskiptum. Til þess að skýra málið og setja í samhengi er rétt að rifja upp hvernig listinn yfir stærstu hluthafa í FL Gro- up var samansettur hinn 15. nóv- ember fyrir ári og aftur hvernig hann var samansettur einni viku síðar, hinn 22. nóvember 2007. 15. nóvember 2007 voru 10 stærstu hluthafarnir í FL Group þessir: 1. Oddaflug B.V. (í eigu Hannesar Smára- sonar) 20,52% 2. Gnúpur fjárfestingafélag (í eigu Krist- ins Björnssonar og fjölskyldu, Magnúsar Kristinssonar og Þórðar Más Jóhann- essonar) 17,24% 3. BG Capital ehf. (í eigu Baugs Group hf.) 15,85% 4. Materia Invest ehf. (í eigu Magnúsar Ármann) 9,23% 5. GLB Hedge (í eigu Glitnis) 5,66% 6. Sund ehf. (í eigu Jóns Kristjánssonar o.fl.) 4,76% 7. Glitnir banki hf. (almenningshlutafélag í eigu rúmlega 11 þúsund hluthafa) 3,59% 8. Kristinn ehf. (félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu)) 2,05% 9. LI-Hedge (í eigu Landsbanka Íslands) 2,01% 10. Icebank hf. (í eigu sparisjóða og fleiri) 1,50% Og 10 stærstu hluthafarnir í FL Group hinn 22. nóvember 2007 voru þessir: 1. Oddaflug B.V. 20,52% 2. Gnúpur fjárfestingafélag hf. 17,27% 3. BG Capital ehf. 15,85% 4. Materia Invest ehf. 9,23% 5. GLB Hedge 4,76% (eignarhluturinn hefur minnkað um 0,9 prósentustig á einni viku) 6. Sund ehf. 4,76% 7. FS37 ehf (leynifélag þar sem einu upplýsingarnar um félagið hjá lán- ardrottninum Glitni eru þær að stjórn- andi og prókúruhafi sé Jakob Valgeir Flosason, forstjóri Jakobs Valgeirs í Bol- ungarvík!) 4,11%. 8. Kristinn ehf. 2,05% 9. LI-Hedge 1,87% 10. Icebank hf. 1,57% Glitnir hrapar í 19. sæti Glitnir sem viku áður var í 7. sæti á hluthafalista FL Group er nú kominn niður í 19. sæti hluthafalistans, með 0,67% hlut og hlutur bankans hefur því minnkað um 2,92 prósentustig. Þegar þeim hlut er bætt við þann sem GLB Hedge minnkaði á þessari sömu viku, 0,9 prósentustig þá er prósent- an 3,82% og þau 0,29 prósentustig sem vantar upp á til þess að fylla í 4,11% hlut hins nýja leynifélags, FS37 ehf. virðast samkvæmt hlut- hafaskrá hafa komið frá Gnúpi, Ice- bank, LI Hedge og Gildi lífeyrissjóði. Hinn 31. janúar á þessu ári voru heildarskuldir innlendra fyrirtækja og félaga við Glitni samtals rúmir 686 milljarðar króna, samkvæmt yfirliti bankans um eftirstöðvar lána úr fyr- irtækjahluta lánabókar þar sem Guð- mundur Hjaltason var fram- kvæmdastjóri (EVP Corporate Bank var starfsheiti hans á ensku). Stærsti einstaki skuldarinn var FL Group með lán upp á samtals 26,6 milljarða króna. Þegar lánveitingar Glitnis til FL Group eru greindar kemur eftirfarandi í ljós: Glitnir lán- aði félaginu hinn 15. nóvember í fyrra rúma 4,8 milljarða króna með liðlega 10% breytilegum vöxtum auk verð- tryggingar; hinn 20. nóvember í fyrra lánaði Glitnir aftur til FL Group rétt tæpa 6 milljarða króna á nánast sömu vaxtakjörum og einnig með verð- tryggingu og loks lánaði Glitnir félag- inu tæpa 15,9 milljarða króna hinn 27. desember 2007, enn á mjög svipuðum kjörum, einnig verðtryggt. Álagið á lán til FL Group var 275 punktar, eða 2,75%, fjármagnskostnaður í nóv- emberlánunum var 0,45% en 1% í stóra láninu í desember. Þetta vekur athygli, ekki síst vegna þess að Glitn- ir glímdi þá þegar við hækkandi fjár- magnskostnað. Vitanlega lifir Glitnir, eins og aðrir bankar, á því að vera með hærra álag til viðskiptavinar en bankinn borgar sjálfur á sín lán. Þegar um er að ræða lán með breytilegum vöxtum þá eru bankinn og viðskiptavinir hans í raun ekki að semja um vextina sem slíka, heldur að semja um hvað álag ofan á þessa breytilegu vexti á að vera. Síð- an ætti álagið að vera þeim mun hærra eftir því sem áhættan við út- lánið vex og sömuleiðis ættu trygg- ingar vera auknar í samræmi við aukna áhættu. Þótt allar lánveitingarnar veki at- hygli í ljósi þess hver staða FL Group var þegar um miðjan nóvember í fyrra, hlýtur síðasta lánveitingin, hinn 27. desember, að vekja sýnu mesta athygli. Glitnir, sem var þá vitaskuld almenningshlutafélag, í eigu rúmlega 11 þúsund hluthafa, var að taka ákvörðun um að lána fyr- irtæki, sem var svo gott sem komið í greiðsluþrot þar sem lausafé var upp- urið og félagið hætt að greiða reikn- inga, stórkostlega fjármuni til við- bótar við þá tæpu 11 milljarða sem lánaðir voru um og upp úr miðjum nóvember, til síns stærsta eiganda. Hvað var þarna í gangi? Væntanlega geta viðskiptastjóri þessarar lánveitingar og lánastjóri veitt upplýsingar um það á hvaða fag- legu forsendum ákvörðun um lánveit- inguna var tekin! Nei, vitanlega geta þau það ekki, því lánveitingin var ákveðin á bak við tjöldin, án þess að þau kæmu þar að málum og þau sáu einungis um að framkvæma ákvörðun fulltrúa stærsta hluthafans í Glitni og banka- ráðsformanns, forstjóra og fram- kvæmdastjóra Glitnis. Þar komu við sögu, samkvæmt heimildum, Jón Ás- geir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, Þorsteinn M. Jónsson, þá for- maður bankaráðs Glitnis, Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og Guð- mundur Hjaltason, framkvæmda- stjóri hjá Glitni yfir fyrirtækjasviði sem ávallt var nefnt í Glitni „Corpo- rate Banking“. Ekki mikil áhersla lögð á íslenska tungu þar á bæ! Í „Corporate Banking“ felst fyr- irtækjaþjónusta bankans á alþjóð- legum mörkuðum, meðal annars til viðskiptavina af heimamarkaði, sem og skuldsett fjármögnun. Exista var 31. janúar sl. annar stærsti skuldari við Glitni, með skuld Sjónarspil og sýndar- leikir Glitnis og FL  Baktjaldamakk, þar sem tugir milljarða voru lánaðir úr Glitni til FL, hluthafa og leynifélags, var með ólíkindum  Glitnir banki hf. var látinn taka skell upp á tugi milljarða króna í útlánasukki Glitnis til sérvalinna viðskiptavina Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason höfðu í fyrra- haust frumkvæði að því að leynifélagið FS37 væri stofnað, sem síðar var breytt í Stím ehf. með það fyrir augum að halda uppi hríðfallandi gengi á bréfum í FL Group. Þeir fengu Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmann frá Bolungarvík, til þess að ljá félaginu nafn sitt sem stjórnarformaður og eini stjórnandinn. Jón Ásgeir Jóhannesson Jakob Valgeir Flosason Hannes Smárason Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorsteinn M. Jónsson, Lárus Weld- ing og Guðmundur Hjaltason ákváðu í desemberlok í fyrra að Glitnir lánaði FL Group 15,9 milljarða króna. FL Group var þeg- ar þetta var komið í greiðsluþrot. Lánveitingar í bankanum til valinna viðskiptavina ollu miklum kurr meðal starfsmanna Glitnis, sem margir hverjir gerðu sér grein fyrir alvöru málsins. Jón Ásgeir Jóhannesson Lárus Welding Þorsteinn M. Jónsson Guðmundur Hjaltason Stofnuðu leynifélag Lánabók Glitnis opnuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.