Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 20

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 20
20 Ópera MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Til að geta sungið þennanljóðaflokk þarf hann aðásækja þig,“ sagði þýskamessósópransöngkonan Elena Gerhardt einhverju sinni um Vetrarferðina, eitt helsta meist- araverk Franz Schuberts. Í verkinu, sem samið er við ljóð Wilhelms Müll- ers, sér inn í opna kviku manns sem elskar heitt án þess að ást hans sé endurgoldin. Er hægt að hugsa sér voðalegra hlutskipti í lífinu? Þrauta- göngu hans er lýst gegnum allt tilfinningarófið, frá gleði minning- anna að örvæntingu höfnunarinnar. Og órætt afl reynir að vísa honum veginn gegnum veturinn – skyldi það vera sjálfur dauðinn? Jóhann Smári Sævarsson bassa- söngvari mun spreyta sig á þessum annálaða ljóðaflokki í leikinni upp- færslu í Íslensku óperunni í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20. Við slaghörp- una verður Kurt Kopecky en hlut- verk píanistans þykir síst minna krefjandi en hlutverk söngvarans. Jóhann Smári er ekki að glíma við Vetrarferðina í fyrsta sinn. Hann frumflutti ljóðaflokkinn í leikinni sviðsetningu við óperuna í Regens- burg árið 2004 í leikstjórn Doris Buske. Sýningin féll strax í frjóa jörð. „Fyrst ætluðum við bara að hafa eina sýningu, svo var þeim fjölgað í þrjár og á endanum urðu sýningarnar þrettán fyrir fullu húsi. Þetta voru mjög ánægjulegar viðtökur,“ segir söngvarinn. Færir verkið nær áhorfendum Jóhann Smári kveðst hafa fundið á fólki að það var hrifið af forminu, ein- lægninni og nálægðinni. „Venjulega eru ljóðaflokkar af þessu tagi fluttir af smókingklæddum söngvara sem gerir í mesta lagi svona milli laga,“ útskýrir hann og strýkur hönd mjúk- lega yfir hökuna. „Það að gera þetta í búningi með leikrænum tilburðum færir verkið miklu nær áhorfendum. Eins og það á skilið.“ Um það leyti sem hann frumflutti Vetrarferðina í Regensburg færði Jó- hann Smári það í tal við Bjarna Daní- elsson, þáverandi óperustjóra Ís- lensku óperunnar, að setja uppfærsluna upp hér heima líka. „Hann tók því strax vel og hafði meira að segja áhuga á því að gera þetta á íslensku en pabbi hans Bjarna mun hafa íslenskað textann á sínum tíma. Ekki gafst þó tími til að hrinda þessum áformum í framkvæmd þá. En nú er loksins komið að þessu. Í grunninn er þetta uppfærslan frá Re- gensburg en Stefán Baldursson að- stoðar okkur við útfærsluna.“ Vetrarferðin hefur margoft verið flutt hérlendis en aldrei áður í leik- inni sviðssetningu. „Flestar af dekkri röddunum, bassar og barítonar, hafa reynt sig við þennan flokk enda er hann eitt af meistaraverkum tónbók- menntanna.“ Byrjaði smátt Jóhann Smári hefur staðið á óp- erusviðum víðsvegar um Evrópu í sautján ár. Fyrir þrettán árum skrif- aði hann undir samning við eitt fræg- asta óperuhús álfunnar, Kölnaróper- una. „Ég byrjaði smátt, eins og gengur. Á ég að syngja fyrsta hlut- verkið mitt fyrir þig?“ Ha, segi ég undrandi. Jóhann Smári syngur þá eina setn- ingu, þrjú orð. „Þetta var fyrsta hlut- verkið,“ segir hann og glottir. „Og fyrst ég er byrjaður get ég alveg tek- ið annað hlutverkið líka.“ Hann syngur eilítið lengri setn- ingu. „Þetta krafðist ekki mikils und- irbúnings,“ segir hann hlæjandi. Fljótlega var honum þó treyst fyrir stærri hlutverkum, svo sem Kóng- inum í Aïdu og Don Alfonso í Cosi fan tutte. Hin síðari ár hefur Jóhann Smári einkum sungið aðalhlutverk í hinum ýmsu óperum við hús í Þýska- landi, Austurríki, Englandi og víðar. Alls á hann að baki um fimmtíu hlut- verk, þeirra á meðal Filippo II í Don Carlo, Baron Ochs í Rósariddaranum og Sarasto í Töfraflautunni. „Ég hef verið ákaflega heppinn. Hef þegar náð því að syngja svo til öll draumahlutverkin á sviði.“ Jóhann Smári bjó hér heima um tíma í upphafi aldarinnar en und- anfarin ár hefur hann búið í Regens- burg í Þýskalandi. Mikil breyting varð á hans högum fyrir fjórum árum þegar hann skildi við eiginkonu sína sem í kjölfarið flutti heim til Íslands með börn þeirra tvö. „Upp frá því fór ég að hugsa minn gang. Endurskoða forgangsröðina. Á tímabili fór hver einasta evra hjá mér í að fljúga heim til barnanna eða fá þau út til mín. Ég saknaði barnanna mjög mikið. Mér varð því ljóst að fyrr en síðar vildi ég snúa heim til Íslands.“ Verða bæði föðurbetrungar Sjaldan fellur eplið langt frá eik- inni segir máltækið og ekki kemur á óvart að bæði börn Jóhanns Smára, Sævar Helgi, fjórtán ára, og Gunn- hildur Ólöf, tíu ára, séu á bólakafi í söng. „Sævar Helgi á eftir að slá mér við. Hann er þegar vaxinn mér yfir höfuð, með ennþá dýpri rödd og syngur eins og engill. Gunnhildur syngur líka mjög vel og er m.a. að syngja inn á sína fyrstu geislaplötu með barnakórnum Gospelgleði í Keflavík. Það er ljóst að þau verða bæði föðurbetrungar.“ Pabbinn hefur þó ekki ýtt þeim út í sönginn. „Þvert á móti. Ég hef gegn- um árin reynt að sannfæra þau um annað, svo sem að gerast banka- starfsmenn eða arkitektar. Í ljósi síð- ustu tíðinda í þjóðfélaginu hef ég hins vegar skipt um skoðun. Söngurinn er fínn,“ segir hann hlæjandi. Jóhann Smári segir þá staðreynd Að gleyma áhygg Jóhann Smári Sæv- arsson bassasöngvari ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst- ur í Íslensku óperunni í kvöld, glímir við sjálfa Vetrarferðina eftir Schubert. Sjálfur er söngvarinn nýfluttur til landsins frá Þýskalandi og stóð í þeirri mein- ingu að hann væri að koma heim í góðærið. Það fór á annan veg. Engan bilbug er þó á honum að finna enda blómstrar listin aldrei betur en í kreppu. Morgunblaðið/Ómar Unnustan Jóhann Smári ásamt unnustu sinni, Jelenu Raschke, sem flutti með honum frá Þýskalandi í „góðærið“ á Íslandi. Jelena er talmeinafræðingur og talar fimm tungumál. Íslenskan er á góðri leið með að verða það sjötta. ‘‘VINIR MÍNIR HAFA VER-IÐ AÐ BYGGJA VIÐ HÚS-IN SÍN Á UNDANFÖRN-UM ÁRUM OG KAUPA SÉR JEPPA. ÉG SÁ ÞETTA Í HILLINGUM. Jóhann Smári Sævarsson hefur fundið lausnina á efnahagsörðugleikum þjóðarinnar – Feng shui. „Ég hafði ekki mikla trú á þessu í fyrstu en þetta svínvirkar. Ég get fullvissað menn um það,“ segir hann dularfullur á svip. „Þannig er mál með vexti að ég fór að ráðlegg- ingum Feng shui og kom málmskál með smámynt fyrir í suðausturhorninu á húsinu mínu. Tekið var fram að hornið yrði að vera hreint og fínt. Skemmst er frá því að segja að eftir að ég gerði þetta fór allt að ganga að óskum. Bæði í fjármálum og öðru.“ Síðan þurfti Jóhann Smári að færa skálina milli herbergja vegna framkvæmda. „Það skipti engum togum að allt fór að fara úrskeiðis. Ég fór að fá rukkanir vegna hluta sem ég hafði ekki pantað, hlut- ir fóru að bila og um tíma leit út fyrir að hætta þyrfti við jólatónleikana sem ég átti að syngja á fyr- ir norðan. Þá uppgötvaði ég að skálin var í röngu herbergi og rauk auðvitað með hana aftur á sinn stað.“ Það var eins og við manninn mælt. „Allt fór að ganga vel á ný, samningurinn vegna tónleikanna datt inn um lúguna og þar fram eftir götunum. Ég voga mér ekki að færa skálina aftur.“ Bassasöngvarinn er sannfærður um að þetta geti virkað hjá fleirum. „Ég hvet þjóðina til að láta á þetta reyna. Hverju hafa menn að tapa? Og bless- aður láttu Davíð og Geir vita af þessu líka, þetta er mun ódýrari og skynsamlegri leið en lán frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum.“ Lausn á fjármálakreppunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.