Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
A
T
A
R
N
A
Á INGÓLFSTORGI
mánudaginn 24. nóvember kl. 16.30
VERJUM
VELFERÐINA
Launþegar!
Í efnahagserfiðleikum verður almenningur
að geta treyst á öflugt velferðarkerfi.
Látum ekki eyðileggja grunnþjónustu
samfélagsins. Verjum velferðina.
Fjölmennum öll á útifund BSRB,
Öryrkjabandalags Íslands,
Landssamtakanna Þroskahjálpar og
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Útifundur
STARFSMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKURBORGAR PÓSTMANNAFÉLAG ÍSLANDS
„Ég þurfti að vinna fyrir mér og
skapa mér tækifæri. En mér tókst
það! Ekki sitja og bíða eftir að
tækifærin komi upp í hendurnar á
þér. Gríptu þau og nýttu þau!“
Svo mælti C.J. Walker, fyrsta
blökkukonan í Bandaríkjunum sem
náði því að verða milljónamæringur
árið 1914. Líf hennar hafði ekki
alltaf verið dans á rósum og þaðan
af síður tilbreytingarlaust. Hún
fæddist 23. desember 1887 í Delta,
Louisiana, fékk nafnið Sarah, og
var dóttir fyrrverandi þræla, sem
síðan unnu sem landbúnaðarverka-
menn, en létust þegar Sarah var
barn að aldri.
Sjö ára fluttist hún til systur
sinnar og eiginmanns hennar, en
strauk þaðan eftir að hafa sætt
misnotkun af hans hálfu. Hún var
aðeins fjórtán ára þegar hún giftist
Moses McWilliams, sem var myrtur
í kynþáttaóeirðum tveimur árum
eftir að þeim fæddist dóttirin Leilia
1885.
Lán í óláni
Eftir þann harmleik fluttust
mæðgurnar til St. Louis, Missouri,
þar sem Sarah þrælaði sér út við
eldamennsku og þrif. Stritið tók
sinn toll því smám saman fór hárlos
að hrjá hana í svo miklum mæli að
hún gat ekki á heilli sér tekið. Alls
konar hármeðul höfðu ekki dugað
hót, þegar Sarah varð fyrir því láni
í óláninu að hana dreymdi draum,
sem átti eftir að breyta lífi hennar:
„Stór svartur maður birtist mér
og sagði mér hvaða efnum ég ætti
að blanda saman og nota í hárið.
Sum hjálparmeðulin eru ræktuð í
Afríku, en ég sendi eftir þeim, lét
þau í hárið, og eftir nokkrar vikur
óx það hraðar en það hafði dottið
af,“ sagði Madame C.J. Walker,
eins og hún kallaði sig eftir að hún
giftist Charles Joseph Walker,
blaðamanni og snjöllum markaðs-
manni. Þau kynntust þegar Sarah
var nýflutt til mágkonu sinnar í
Denver, Colorado, með aðeins tvo
dollara í vasanum.
Þar vann hún sem kokkur, en
framleiddi hársnyrtivörur í hjá-
verkum samkvæmt formúlunni sem
sá stóri hafði laumað að henni í
draumi og hún hafði prófað á vin-
um sínum. Hún hafði líka veitt því
athygli að engar slíkar voru á
markaðnum fyrir krullað hár
blökkufólks og sá sér því ekkert að
vanbúnaði að stofna ásamt manni
sínum framleiðslufyrirtækið C.J.
Walker.
Hús úr húsi
Þau settu auglýsingar í dagblöð
fyrir blökkumenn um öll Bandarík-
in, en gátu ekki komið sér almenni-
lega saman um hvort og hvernig
fyrirtækið ætti að færa út kvíarnar.
Frúin var meira stórhuga og skildi
við mann sinn því hún vildi helga
fyrirtækinu krafta sína óskipta.
Eftir þrotlausa vinnu, sem m.a.
fólst í að ganga hús úr húsi og
bjóða vöruna til sölu, vænkaðist
hagurinn töluvert og dóttir hennar
kom inn í reksturinn sem fram-
kvæmdastjóri. Hún fór í söluferðir
um landið þvert og endilangt,
markaðssetti vörurnar á nýjan hátt
og réð konur fremur en karla til
starfa í fyrirtækinu.
Árið 1910 voru hársnyrtivörur
C.J. Walker seldar í eitt þúsund
verslunum og sama ár flutti hún
höfuðstöðvarnar til Indianapolis.
Afurðirnar voru allt frá hárnæringu
til andlitskrema og sérhannaðrar
greiðu til að slétta hrokkið hár.
C.J. Walker lést 25. maí 1919,
fimm árum eftir að hún varð fyrst
blökkukvenna til að verða millj-
ónamæringur í Bandaríkjunum.
Allt vegna hugmyndar sem birtist
henni í draumi.
Dreymi ykkur vel!
Frá örbirgð
til auðæfa
Milljónamæringur Madame C.J. Walker hagnaðist á að framleiða hár-
snyrtivörur fyrir blökkufólk.
@
Fréttir
á SMS