Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
23. nóvember 1954 komst í sögu-
bækurnar í viðskiptalífinu, því þá
náði Dow Jones-hlutabréfa-
vísitalan í fyrsta sinn að klifra upp
fyrir það mark sem hún náði rétt
fyrir efnahagshrunið mikla árið
1929.
Vísitalan var fyrst birt árið 1896
og þá miðaðist hún við gengi tólf
öflugra, bandarískra fyrirtækja.
Þetta voru olíu-, gas- og önnur
orkufyrirtæki, sem og mat-
vælaframleiðendur og stórfyr-
irtæki í iðnaði. Vísitalan var 40,94
stig og var fundin með því að
leggja saman virði bréfa í fyr-
irtækjunum tólf og deila í með
fjölda bréfanna.
Vísitalan stóð í 381,17 stigum í
september 1929, áður en allt
hrundi.
Og það tók 25 ár að ná sömu
hæðum á ný.
Á ÞESSUM DEGI 23. NÓVEMBER 1954
„Heilsuborgir eru bara byrjunin.
Markmið okkar er að skapa
heilsusamlegt England,“ sagði Al-
an Johnson, heilbrigðisráðherra
Bretlands, þegar verkefninu
Heilsuborgir var hleypt af stokk-
unum.
Markmiðið er að berjast gegn
offitu, sem helst ógnar heilsu
manna um þessar mundir. Því er
framtakið talið mikil áskorun fyrir
„heilsuborgirnar“ níu, sem þátt
taka í verkefninu í byrjun.
Annars vegar er um að ræða
borgarhluta eins og Tower Ham-
lets í London og Thetford í Nor-
folk og hins vegar borgirnar Dud-
ley, Halifax, Sheffield,
Middlesbrough, Manchester, Tew-
kesbury og Portmouth, sem deila
með sér 30 milljónum punda til að
fylgja hver sinni áætlun eftir.
Áherslurnar eru mismunandi.
Þær felast til að mynda í að
breyta almenningsgörðum í sér-
stök heilsusvæði fyrir fjölskyldur,
hvetja fólk til að rækta eigið
grænmeti og ávexti, einnig til að
hjóla meira og er meiningin jafn-
framt að bjóða upp á aðstoð við að
viðhalda hjólunum, verðlaun fyrir
líkamsrækt og til handa fyr-
irtækjum, sem selja heilsufæði, og
gera borgirnar þannig að fólk fetti
ekki fingur út í þótt mæður gefi
börnum brjóst á almannafæri.
Allar borgirnar/svæðin hafa
komið fram með hver sína að-
gerðaáætlun gegn offitu, sem í
stórum dráttum ganga út á hjól-
reiðar, göngur, heilsufæði og græn
svæði.
Ekki fylgir sögunni hvort boðið
verði upp á árskort í ræktina –
sem væri til fyrirmyndar og eft-
irbreytni.
AP
Offita mesta heilsuváin Helstu vopnin gegn vaxandi offitu fólks er aukin hreyfing og hollt mataræði.
Betri heilsa
í boði hins
opinbera
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni