Morgunblaðið - 23.11.2008, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.11.2008, Qupperneq 34
Sigling með stærsta skemmtiferðaskipi heims fyrir tvo í Karíbahafinu. Skipið er hið fljótandi 5 stjörnu lúxushótel, „Freedom of the Seas“. Fararstjóri verður Lilja Jónsdóttir. Frá 24. apríl – 6. maí 2009 Moggaklúbburinn er nýjung fyrir áskrifendur Morgunblaðs- ins. Félagar í Moggaklúbbnum njóta margskonar fríðinda og ávinnings. Í hverjum mánuði fá áskrifendur frábær til- boð um margskonar vörur, þjónustu og afþreyingu á mjög hagkvæmum kjörum auk þess sem dreginn er út glæsilegur ferðavinningur. Með Moggaklúbbnum í Karíbahafið – meira fyrir áskrifendur Nóvembervinningur: Skemmtisigling í Karíbahafinu fyrir tvo að verðmæti 699.768 kr. Innifalið í verði ferðar: • Flug til og frá Orlando • Gisting á hótel Florida Mall í 2 nætur • Gisting á hótel Embassy Suites í 3 nætur • Skemmtisigling í 7 nætur með fullu fæði og afþreyingu • Þjórfé um borð í skipinu • Allar ferðir milli flugvalla, hótela og skips Ekki innifalið: • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins Moggaklúbburinn Allir skráðir áskrifendur eru félagar í Moggaklúbbnum og njóta þar með tilboða um góð kjör á ýmiss konar afþreyingu; bíómiðum, listviðburðum, bókum og hljómdiskum, auk þess sem dreginn er út glæsilegur ferðavinningur mánaðarlega.Fáðu þér áskrift ámbl.is/askrift eða í síma 569 1122 F í t o n / S Í A F I 0 2 7 3 3 6 mbl.is/moggaklubburinn MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Fögnuður Ástralska leikkonan Nicole Kidman réð sér vart fyrir fögnuði þegar hún fékk stjörnu árið 2001. Hugmyndasmiður og hönnuður Frægðarstígsinssvokallaða, eða Walk of Fame, í Hollywood erOliver Weismuller, listamaður frá Suður-Kaliforníu. Los Angeles-borg réði hann til að fegra ásjónu Hollywood árið 1953 og var stígurinn frægi liður í þeirri áætlun. Hafist var handa fimm árum síðar og þótt hann væri aðeins brot af þeirri andlitslyftingu, sem Weismuller var ætlað að gera á þessum borgarhluta næstu árin, er hann tvímælalaust sú frægasta – eins og vera ber. Hugmyndin gekk út á að greypa 2.500 fimm arma stjörnur í gangstéttar beggja vegna Hollywood- breiðstrætis, frá Gower til La Brea, og einnig beggja vegna Vine-strætis, frá Yucca til Sunset-breiðstrætis. Stjörnurnar eru úr bleikum marmara með gylltum könt- um og í þær var meiningin að greypa nöfn þeirra sem við- skiptaráð Hollywood vildi heiðra fyrir framlag sitt til skemmtanaiðnaðarins jafnt í kvikmyndum, útvarpi og sjónvarpi sem og tónlist. „Virðingarvottur við þá, sem lagt hafa hönd á plóg til að gera Hollywood að „landi draumanna“,“ sagði Weismuller. Fyrsta stjarnan Sextán mánuði tók að fullgera verkið og var þá ekkert að vanbúnaði að heiðra fyrstu stjörnuna. Leikkonan Joanne Wo- odward þótti vel að heiðrinum komin og var nafn hennar greypt í stjörnu við hátíðlega athöfn 9. febrúar 1960. Stjörnugjöfin var býsna rífleg næstu tvö árin, hátt í sextán hundruð manns fengu sína stjörnu, en þá var ákveðið að heiðra að hámarki tvo á ári. Árið 1994 voru útfylltar stjörnur orðnar ríflega 2.000 og var þá ákveðið að bæta við fleiri stjörnum. Enn eru því tiltækar stjörnur fyrir margar framtíðarstjörnur draumaverksmiðjunnar. Þær þurfa þó ekki endilega að vera af holdi og blóði, enda hafa þegar nokkrar teikni- myndahetjur kvikmyndanna verið heiðraðar með þessum hætti, t.d. sú frægasta allra tíma, Mikki mús, á fimmtugs- afmæli sínu, 18. nóvember 1978 – sama ár og borg- arstjórnin lýsti frægðarstíginn opinbert menningar- Stjörnur í Stjarna númer 2.243 Britney Spears varð annar yngsti söngvarinn til að fá stjörnu 2003, aðeins 21 árs. Re ute rs Öldungur Mikki mús, sem fagnaði áttræðisafmæli sínu nýverið, fékk stjörnu þegar hann varð fimmtugur, 18. nóvember 1978, fyrstur teiknimyndahetja. sögulegt kennileiti. Sem er rökrétt ákvörðun í ljósi þess að stígurinn var frá upphafi stolt borgarbúa og helsta að- dráttarafl ferðamanna. Frægðarljóminn Sögusjóður Hollywood hefur umsjón með frægð- arstígnum, sem sagður er jafnt minnisvarði fortíðar sem nútíðar. Að eiga sér þar sína eigin stjörnu þykir álíka eft- irsóknarvert og að hreppa Óskarinn eða Emmy-, Golden Globe- og BAFTA-verðlaunin og mikið er um dýrðir í hvert sinn sem nýtt nafn bætist í stjörnufansinn. Auk nafns heiðurshafans er greypt í stjörnurnar tákn þess sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.