Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 38
ANNA Sigga Lúðvíksdóttir hefur
nám í heilbrigðisverkfræði í Há-
skólanum í Reykjavík á
vorönn. Anna Sigga,
sem er 25 ára, klárar
frumgreinadeildina um
áramótin en hún hóf
nám í deildinni haustið
2007. Hún er á svoköll-
uðum forsetalista skól-
ans, sem þýðir að hún er
á meðal bestu nemenda
hans. Hún er ennfremur
með sveinspróf í hár-
snyrtiiðn en það fékk
hún árið 2003.
Spurð af hverju hún
hafi áhuga á heilbrigð-
isverkfræði segist hún
hafa sérstakan áhuga á hönnun
gervilima og -líffæra. „Mig langaði
Gott að þurfa
ekki að taka hlé
Morgunblaðið/Kristinn
líka alltaf í meira nám en hafði beð-
ið með það. Svo sá ég námið hjá
HR, grunnnám fyr-
ir þá sem eru ekki
með stúdentspróf,
og ákvað að skella
mér. Þetta er búið
að vera rosalega
skemmtilegt,“ segir
hún.
Anna Sigga er
mjög fegin að geta
hafið háskólanámið
um áramótin. „Það
verður ekki mikla
vinnu að fá eftir
áramót og því kom
sér rosalega vel að
þurfa ekki að taka
hlé á námi heldur geta haldið beint
áfram. Ég veit að þetta kemur sér
‘‘VIÐ KOMUM ÚRSTERKU NÁMIEFTIR FIMM ÁRÞEGAR ÞETTA
VERÐUR ALLT
LIÐIÐ HJÁ
mjög vel fyrir alla þá sem eru að
klára frumgreinadeildina núna. Ég
held að flestir sem eru að klára fari
í annaðhvort tækni- eða verkfræði
um áramótin.“
Nemendum HR sem byrja í
verkfræði á vorönn býðst að fara í
sumarskóla. „Við ættum því að
geta byrjað á öðru ári í haust.“
Hún kvíðir ekki framtíðinni. „Við
komum úr sterku námi eftir fimm
ár þegar þetta verður allt liðið hjá!“
Anna Sigga Hún hefur nám í heilbrigðisverkfræði í Háskólanum í Reykja-
vík á vorönn og hefur mestan áhuga á hönnun gervilima og -líffæra.
38 Nám
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
H
áskólarnir gera hvað
þeir geta til að koma til
móts við þá sem vilja
nota tækifærið í erfiðri
stöðu á vinnumarkaði
og bæta við sig námi, sem og þá ís-
lensku námsmenn erlendis sem vilja
halda áfram námi sínu hérna heima.
Til viðbótar við þá sem fara af vinnu-
markaðnum í skóla vegna atvinnu-
leysis eða til að styrkja stöðu sína á
vinnumarkaði er líka algengt að út-
skrifaðir nemendur úr grunnnámi
fari beint í framhaldsnám, þar sem
þeir búast ekki við því að fá störf við
sitt hæfi.
Endanlegar tölur liggja ekki fyrir
um fjölda nemenda í háskólanámi á
vorönn 2009 þar sem umsókn-
arfrestur er ekki liðinn en vissulega
má búast við fjölgun nemenda í há-
skólum landsins.
Háskóli Íslands tekur við umsókn-
um í bæði grunn- og framhaldsnám
til 15. desember. Af þessu tilefni hef-
ur verið opnaður sérstakur vefur,
sem ætlaður er fyrir þennan hóp,
saman.hi.is. Rétt er að taka fram að
umsókn felur ekki í sér sjálfkrafa að-
gang en nauðsynlegt er að tryggja
hag þeirra nemenda sem þegar eru í
námi við skólann. „Það er gífurlega
mikið spurt og mikið sótt um,“ segir
Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ,
sem sér fram á fjölgun nemenda við
skólann. „Við reiknum með að ný-
nemar um áramótin verði vel á ann-
að þúsund,“ segir hún og er það tölu-
verð fjölgun.
Ennfremur má benda á að Náms-
og starfsráðgjöf HÍ veitir margs-
konar stuðning og þjónustu eins og
áhugasviðspróf og ráðgjöf um náms-
val, úrræði vegna fötlunar eða höml-
unar sem og starfsráðgjöf.
Mikilvægi rannsókna
„Við lítum svo á að árangur í rann-
sóknum sé mikilvæg forsenda ný-
sköpunar og kveikjan að einkaleyf-
um og stofnun sprotafyrirtækja,“
segir Kristín. „Starfsfólk okkar er
skráð fyrir 85 einkaleyfum í dag. Við
teljum mjög mikilvægt að við höld-
um þessari áherslu sem hefur verið
á vísindi innan skólans sem forsendu
nýsköpunar. Við leggjum meiri
áherslu en áður á nýsköpunarverk-
efni á öllum sviðum skólans, ekki síð-
ur í hug- og félagsvísindum en raun-
og heilbrigðisvísindum.“ Markmiðið
er að skólinn geti ungað út hug-
myndum, verkefnum og sprotafyr-
irtækjum, sem verði nýr þáttur í at-
vinnulífinu.
Kristín bendir á að skólinn hafi
aukið framboð á opnun fyrirlestrum,
málþingum og umræðufundum.
„Þúsundir koma vikulega í skólann
til að taka þátt í viðburðum af ýmsu
tagi.“
HÍ stefnir að því að auka sam-
starfið við atvinnulífið. „Við höfum
haft frumkvæði að skapandi sam-
starfi við íslensk fyrirtæki og ræðum
líka við aðra háskóla um aukna sam-
vinnu.“
Meira staðnám á Bifröst
Háskólinn á Bifröst tekur nú inn
nýnema á vorönn í fyrsta skipti en
umsóknarfrestur er til 10. desem-
ber. „Í október opnuðum við einnig
fyrir nám í frumgreinadeild. Þetta
var þegar Samtök atvinnulífsins
sendu frá sér yfirlýsingu um að nú
þyrftum við öll að bregðast við,“
svarar Kristín Ólafsdóttir, markaðs-
stjóri skólans. „Við erum líka að
taka inn í allar deildir skólans um
áramótin en við höfum aldrei gert
það áður. Við bjóðum upp á fleiri
kúrsa í staðnámi eins og meist-
aranám í alþjóðaviðskiptum, lögum,
menningarstjórnun og Evr-
ópufræðum,“ segir hún en hingað til
hefur þetta nám byggst meira á fjar-
námi og alltaf byrjað að sumri til.
„Viðtökurnar hafa verið sér-
staklega góðar,“ segir hún og bætir
við að margir sæki einnig um sí-
menntunarnámskeið en m.a. er boð-
ið upp á námskeiðin Máttur kvenna
og Rekstur smærri fyrirtækja. Um-
sóknirnar dreifast nokkuð jafnt á
deildir, segir Kristín, sem hefur orð-
ið vör við að gamlir Bifrestingar
sæki nú í framhaldsnám við skólann.
„Svo má búast við enn frekari að-
sókn í skólana í haust,“ ályktar hún.
Ágúst Einarsson, rektor Háskól-
ans á Bifröst, bendir einnig á að sett
hafi verið á stofn fjármálaráðgjöf
innan skólans með sérhæfðum ráð-
gjafa fyrir nemendur og starfsfólk.
Ennfremur er verið að skoða marg-
ar viðskiptahugmyndir sem hafa
vaknað á undanförnum misserum
innan skólans til að setja þær í frek-
ari farveg nýsköpunar og frum-
kvöðlastarfs.
Sérhæfður og sérstakur
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum
hefur opnað fyrir skráningu ný-
nema, sem myndu hefja nám um
áramót. Frestur til að sækja um
skólavist rennur út 10. desember og
er opið fyrir umsóknir í allt
nám nema í hesta-
fræðideild en þar reyndist
ekki unnt að bæta við nem-
endum fyrr en á næsta skólaári.
„Við erum mjög sérhæfður og
frekar lítill skóli. Okkar sérhæfing
er á sviðum sem eru mjög gjaldeyr-
isskapandi eins og ferðamálafræði
og fiskeldi, sem er auðvitað nátengt
matvælaframleiðslu,“ segir Skúli
sem segir skólann m.a. skapa tæki-
færi til rannsókna og nýsköpunar í
matvælaiðnaði og ýmiss konar
menningartengdri ferðaþjónustu, til
dæmis tengdri hestamennsku.
Skólinn er ennfremur með áætl-
anir um byggja um styttri diplóma-
námsleiðir og að efla það meist-
aranám sem hann býður upp á.
Háskóli fólksins
Annar skóli fyrir norðan, Háskól-
inn á Akureyri, tekur einnig við um-
sóknum um innritun í nám á vor-
misseri í meira mæli en áður.
Umsóknarfrestur um bæði grunn-
nám og nám á meistarastigi er til 1.
desember.
Myndaður hefur verið starfshópur
innan HA um velferð og nýsköpun.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
rektors skólans, hafa þegar komið
fram góðar hugmyndir jafnt á sviði
velferðar og ný-
sköpunar sem nú
er unnið úr. Þar
á meðal er verk-
efnið Há-
skóli fólksins en það á að stuðla að
því að sérfræðingar HA séu að-
gengilegir almenningi til ráðgjafar
og fræðslu. Áætlað er að vefur þessu
tengdur verði opnaður í næstu viku.
Ennfremur hefur skólinn ásamt
Vinnumálastofnun Norðurlands
eystra lýst yfir vilja um samstarf um
ráðningu allt að 5-10 háskólamennt-
aðra einstaklinga, sem eru án at-
vinnu og hafa skráð sig á atvinnu-
leysisskrá. Um verður að ræða
tímabundið hlutastarf við rannsókn-
arvinnu á vegum háskólans. Ráðið
verður í störf sem skapast innan HA
í tengslum við rannsóknarverkefni
sem háskólakennarar hafa umsjón
með.
Atvinnusmiðja á Hvanneyri
Ágúst Sigurðsson, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri, segir að starfsfólk hafi fengið
fjölda fyrirspurna um námið. „Í kjöl-
farið ákváðum við að opna fyrir um-
sóknir á vormisseri en það höfum við
aldrei gert áður. Við vildum opna
skólann eins og hægt er til að bregð-
ast við aðstæðum. Það er opið fyrir
nám við allar námsbrautir með fyr-
irvara um að þetta sé hafið nám,“
segir hann og bætir við að það þurfi
að leysa úr ýmsum vandamálum
hvað varðar aðfararkúrsa og fleira
slíkt. „Reyndar tókum við inn fólk
fyrr í haust sem sóttist eftir að kom-
ast að eftir að önnin var hafin,“ segir
hann og bendir á að við skólann sé
ennfremur öflug endurmennt-
unardeild og líka sé hægt að taka
einstök námskeið.
LbhÍ fer enn-
fremur af
Nám er besta
Háskólar landsins hafa brugðist við kreppunni með sveigjanleika og sprota-
hugsun, með því að opna fyrir umsóknir í meira nám en áður hefur tíðkast á
vorönn og lengja umsóknarfrest enda streymir fólk í nám. Áherslan er á
rannsóknir og nýsköpun og búast má við aukinni samvinnu háskólanna.