Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 39

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 39
39 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 stað í mánuðinum með Sprotann - atvinnusmiðju en tilgangurinn er að efla alla nýja hugsun hvað varðar at- vinnutækifæri á Íslandi. Um er að ræða vettvang starfsfólks og nem- enda LbhÍ, atvinnulífs og samstarfs- stofnana á sviði matvælaframleiðslu, þjónustu, landbúnaðar, nátt- úrufræða og umhverfismála til at- vinnusköpunar. Á vegum Sprotans verða málþing og vinnufundir og að- staða fyrir einstaklinga og hópa í hugmyndavinnu. Aðstaðan getur falist í öllu frá skrifstofuað- stöðu yfir í skóga, gróð- urhús eða verk- stæði. Til viðbótar býr mikil þekking innan skólans og eru rannsóknir að sögn Ágústs 60% af heildarumsvifum skólans. Listkennaranám á vorönn Listaháskóli Íslands tekur inn nemendur í kennaranám á vorönn í fyrsta sinn á næsta ári. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Skólinn hefur ekki aðra möguleika til að taka nemendur inn á vorönn, þar sem langflestar brautir eru nú þegar yfirfullar og langtum færri umsækj- endur komust að en sóttu um, að sögn Hjálmars H. Ragnarssonar, rektors skólans. LHÍ hefur aðrar leiðir til að bregðast við fyrirséðu atvinnu- ástandi, að sögn Hjálmars. „Skólinn er með áætlanir um nýjar náms- brautir sem tækju til starfa haustið 2009, en óvíst er hvort af stofnun þeirra get- ur orðið þar sem ekki er ljóst hver nemendaframlög frá ríkinu verða.“ Alls eru 10 námsbrautir á meistarastigi í undirbúningi. Verði af uppsetningu brautanna verða teknir inn nemendur á fjór- ar þeirra næsta haust. Til viðbótar er leitast við að greiða úr vandræðum nemenda sem hófu listnám á erlendri grund í haust en óska nú eftir að fá sig færða til vegna aðstæðn- anna. Hjálmar segir þennan hóp ekki vera stóran en ein- hverjir hafi leitað til þeirra. Tekið er á máli hvers einstaklings fyrir sig. Listaháskólinn er með þrjú verkefni í undirbúningi í sam- vinnu við aðra há- skóla. PRISMA/ Ljósbrot er námskarfa í samvinnu við Bifröst. Um er að ræða tveggja mánaða nám á sviði heimspeki, listfræði, skapandi vinnu og markaðsfræði sem hleypt verður af stokk- unum á næsta ári. Hjálmar telur að eftirspurn sé eftir stuttum náms- leiðum sem þessum því ekki séu allir tilbúnir að fara í lengra nám. „Það verður aukin ásókn í skólana og ekki endilega í þær greinar sem hingað til hafa verið eftirsóttastar,“ spáir Hjálmar, sem býst við aukinni aðsókn í listnám þó það fari einnig eftir því hvort skólanum takist að auka námsframboð sitt. Tvö verkefni eru í samstarfi við HR. Annað er vefsvæði fyrir gras- rótarfrumkvæði sem ber nafnið „I am Innovation“ og kallar Hjálmar þetta „stefnumótasíðu fyrir hug- myndir“. „Fólk þarf að hafa aðstöðu og stuðning við að koma hug- myndum sínum á framfæri.“ Hugmyndahús verður opnað Hitt er Hugmyndahús, vett- vangur fyrir frumkvöðla og þekking- arvinnu. „Við erum líklega komin með húsnæði og það eru allir tilbúnir að rétta okkur hjálparhönd. Við er- um þakklát fyrir hvað við höfum fengið frábærar undirtektir og sjáum fram á að geta opnað húsið strax í janúar,“ segir Svafa Grönfeldt, rektor Háskól- ans í Reykjavík. Unnið er að því að koma á fót um 250 milljóna króna sjóði og stefnt er að því að innan næstu 18 mánaða verði búið að stofna meira en 50 fyrirtæki fyrir til- stilli þessa verkefnis. Að þeim koma væntanlega um 500 manns, en þar fyrir utan er stefnt að því að um 3000 manns nýti sér aðstöðuna eða njóti góðs af henni á einn eða annan hátt. Tilgangur verkefnisins er að skapa ný störf og verðmæti með því að nýta hæfileika fólks sem vill og þarf að leita nýrra og skapandi leiða í samfélaginu. Stærsta verkefni HR sem stendur er samstarfsverkefni við Babson College og London Business School um samstarf. „Fulltrúar skólanna koma hingað til lands núna í desem- ber til að skrifa undir samning. Við munum leiða 44 landa rannsókn- arverkefni. Það á að þróa nýtt nám fyrir frumkvöðla og prófa það hér á Íslandi.“ HR hefur ennfremur ákveðið að taka á móti eins mörgum nýnemum og mögulegt er um næstu áramót. Umsóknarfrestur er almennt til 5. desember næskomandi nema til 28. nóvember í meistaranám í tækni- og verkfræðideild. Einnig býður Opni háskólinn í HR upp á ýmsa mögu- leika fyrir fólk til að sækja styttri námsleiðir og námskeið. „Okkar hlutverk núna er að skapa störf og auka bjartsýni,“ segir Svafa en hún segir HR vera „nýsköp- unarskóla með mikinn frum- kvöðlaanda. Við leiðum saman ólík svið, viðskiptafræði-, lögfræði-, lýð- heilsufræði-, tækni- og verkfræði- menntun.“ HR tekur líka inn nemendur á frumgreinasvið um áramót, sem er kjörin leið fyrir iðnaðarmenn og aðra úr atvinnulífinu, sem þurfa á frekari undirbúningi að halda til áframhaldandi náms á háskólastigi, einkum í tæknifræði og verkfræði. Samvinna háskóla mikilvæg „Ég held að það skipti öllu máli að háskólarnir vinni saman sem einn og taki skref til að auðvelda flæði nem- enda og vísindamanna milli skóla, þannig að þeir geti unnið saman á milli stofnana en ekki aðeins innan þeirra,“ segir Svafa. „Ég finn það á rektorunum að það er gríðarlegur hugur í öllum háskól- unum. Það vilja allir leggja sitt af mörkum. Við erum meðal best menntuðu þjóða í heimi og munum þar af leiðandi ná okkur hraðar upp- úr þessari holu því við höfum þekk- inguna og sköpunarkraftinn til þess.“ vörnin Morgunblaðið/Árni Sæberg VIGDÍS Hlíf Sigurðardóttir byrj- ar í kennaranámi við Listahá- skóla Íslands eftir áramót. Vígdís, sem er 23 ára, útskrif- aðist með BA-gráðu í grafískri hönnun frá LHÍ vorið 2007. „Það er verið að lengja kenn- aranámið í tvö ár en ef ég byrja um ára- mótin næ ég þessu á þremur önnum. Mig langaði alltaf til þess að fara í þetta nám en var ekki bú- in að ákveða hve- nær. Núna finnst mér góður tími til að byrja í náminu.“ Hún hefur áhuga á að kenna myndlist og hönnun í framhaldsskóla eða í eldri bekkjum grunnskóla. Frá útskrift hefur Vigdís verið að vinna í lausa- mennsku. „Ég ætlaði að fara í starfsnám á auglýsingastofu í New York í vetur en það er dottið upp- fyrir út af krepp- unni. Það er líka slæmt ástand þar,“ segir Vígdís sem hef- ur því þurft að laga sig að breyttum að- stæðum. Eina sem hún hef- ur áhyggjur af er að þurfa að lifa einvörð- ungu af námslán- unum og hefur hún því hug á að nota að- stöðuna í skólanum og reyna að vinna eitthvað með náminu. Góður tími til að byrja Morgunblaðið/Ómar Vigdís Hlíf Hún er útskrifaður grafískur hönnuður og byrjar í kenn- aranámi við Listaháskóla Íslands eftir áramót. ‘‘ÉG ÆTLAÐI AÐFARA Í STARFS-NÁM Á AUGLÝS-INGASTOFU Í NEW YORK Í VET- UR EN ÞAÐ ER DOTTIÐ UPP- FYRIR ÚT AF KREPPUNNI. ARNAR Snær Pétursson hefur meistaranám í alþjóðlegum við- skiptum við Háskólann á Bifröst um áramótin. „Ég byrja í stað- námi núna í janúar, flyt upp á Bifröst sem er æð- islegt,“ segir Arnar sem útskrifaðist sem viðskiptafræð- ingur frá skólanum í febrúar á þessu ári og þekkir því vel til. „Háskólinn á Bif- röst býður upp á mjög spennandi nám. Ég hlakka bara til og hef bara góðar sögur að segja af Bifröst. Meginástæða þess að ég er að fara aft- ur uppeftir er að ég hef svo góða reynslu af skólanum,“ segir Arnar sem vonast til að ljúka námi seinnipart ársins 2010. Arnar, sem er 24 ára, starfar sem sölustjóri hjá fyrirtæki í Kópavogi. Þótt hann hafi vinnu segist hann samt vera að bregð- ast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu með því að fara í nám. „Maður veit ekkert hvað verður. Besta vörnin er að halda áfram að mennta sig og næla sér í ennþá meiri þekkingu,“ segir hann. „Ég er í sambúð en flyt einn upp- eftir. Það er styttra í bæinn en fólk gerir sér grein fyrir. Mað- ur er bara klukku- tíma og korter að keyra þetta,“ segir Arnar, sem er já- kvæður. „Ég er alltaf bjartsýnn! Maður kemst lítið án jákvæðn- innar.“ Kemst lítið án jákvæðninnar Morgunblaðið/Valdís Thor Arnar Snær Hann hlakkar mikið til að hefja meistaranám í alþjóð- legum viðskiptum við Háskólann á Bifröst um áramótin. ‘‘BESTA VÖRNINER AÐ HALDAÁFRAM AÐMENNTA SIG OG NÆLA SÉR Í ENNÞÁ MEIRI ÞEKKINGU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.