Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 44
44 Hvað varð um | David Cassidy MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Með hliðsjón af ástandi efnahagsmála vill Húsafriðunarnefnd taka fram eftirfarandi: Áskorun til sveitarfélaga og arkitekta Bæta má manngert umhverfi með fleiru en ný- byggingum einum saman. Í byggingararfi þjóð- arinnar eru fólgin verðmæti úr fortíðinni, bæði menningarsöguleg og listræn, sem nýtast vel menningartengdri ferðaþjónustu. Þá er það löngu viðurkennt að það sé vitnisburður um menningarstig hverrar þjóðar, hvernig hún umgengst byggingararfinn. Með vandaðri húsa- könnun er lagður grunnur að mati á varðveislu- gildi einstakra húsa, húsasamstæðna, byggða- mynsturs, götumynda og hverfa. Þótt mörg sveitarfélög hafi á undanförnum áratugum látið kanna varðveislugildi eldri byggðar í því skyni að auðvelda vinnu við skipulag og ákvarðana- töku þar að lútandi, eru mörg þéttbýlissvæði sem enn bíða úrlausnar hvað þetta varðar. Núgildandi lög um húsafriðun kveða á um að öll hús, sem reist eru fyrir 1850, skuli vera friðuð. Verði frumvarp til laga um menningarminjar, sem menntamálaráðherra ráðgerir að leggja fyrir Alþingi á næstunni, að lögum, mun friðuðum húsum fjölga verulega, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að öll mannvirki, sem byggð voru fyrir 1900, verði friðuð. Af þessum sökum er enn brýnna en áður að ráðast í gerð húsakannana. Um leið og Húsafriðunarnefnd skorar á sveitar- félög og arkitekta að beina sjónum sínum að þessum málaflokki, tekur nefndin fram: • Húsafriðunarnefnd hefur látið taka saman leiðbeiningar um gerð húsakannana og gefið út á prenti. Ráðgert er að innan tíðar verði leiðbeiningar þessar í endurskoðaðri útgáfu aðgengilegar á heimasíðu nefndarinnar. • Þegar kemur að úthlutun styrkja úr húsa- friðunarsjóði 2009 mun nefndin láta um- sóknir um styrki til húsakannana hafa for- gang og styrkja gerð þeirra eins og framast er kostur og fjárhagur sjóðsins leyfir. Húsafriðunarnefnd | sími 570 1300 | husafridun@husafridun.is | husafridun.is Fyrsta málverkið sem seldist á opn- unarsýningu Opera-gallerísins í Dúbaí á dögunum er eftir Óla G. Jó- hannsson. Seldist það áður en sýn- ingin var formlega opnuð og var nýtt hengt upp í staðinn, líkt og tíðkast á sýningum gallerísins. Við opnunina seldist það líka. „Ég er mjög ánægður með þetta en á sýningunni er þverskurður af því sem galleríið telur harðast í skúlptúr og málverki í dag. Ron English á þarna verk, líka Lita Cabellut og nokkrir sjóðheitir Kínverjar,“ segir Óli en aðeins er eitt verk eftir hvern listamann uppi í einu. Óli var viðstaddur opnunina og segir stemninguna hafa verið góða. „Það mættu um sjö hundruð manns. Þetta var mikill hvirfilvindur og íburðurinn mikill. Ég var við opnun í Mónakó á sínum tíma og það fölnar í samanburðinum. Ég segi bara eins og Kristján Jóhannsson sagði eitt sinn í samtali við mig: Hér glóir allt sem gull!“ Talandi um Kristján þá er Óli ný- kominn frá Ítalíu þar sem hann vann að list sinni í 17. aldar kastala í Val- policella. „Það er með ólíkindum hvað Jóhannsson-nafnið er þekkt á Ítalíu og ég var margoft spurður hvort ég væri skyldur Kristjáni, jafnvel bróðir hans. Ekki gat ég gengist við því enda þótt við séum frá sama bæ og höfum þekkst í áratugi en þetta bjó tvímælalaust í haginn fyrir mig.“ Í mörg hús að venda Óli lét hendur standa fram úr erm- um á Ítalíu. Öll málverkin sem litu dagsins ljós eru komin til Opera- gallerísins í Lundúnum, utan eitt sem fór til Franciacorta á Ítalíu. „Merk aðalsætt er þarna með vínekrur og listasafn og vildi fá eina mynd eftir mig. Þau hafa líka lýst áhuga á því að sýna verkin mín, auk þess að bjóða mér vinnuaðstöðu í þrjá mánuði á næsta ári. Vel kemur til greina að þiggja það boð.“ Óli ætti ekki að fara á mis við sól og hita næstu misserin því hann hefur fest kaup á íbúð í San Miguel á Spáni og er að koma sér þar upp vinnuað- stöðu. Svo er hann auðvitað alltaf með annan fótinn á Akureyri. orri@mbl.is „Þetta var mikill Huggulegt Hið nýja gallerí Opera-keðjunnar í Dubai. ÓLI G. JÓHANNSSON SELUR MÁLVERK SÍN Í DÚBAÍ E inu sinni þótti pilturinn David Cassidy bera af öðrum. Hann var snoppufríður og söng léttfreyðandi popplög veikri röddu, heldur lágvaxinn og pervisinn, en kjörinn í draumaheim unglingsstúlkna. Pilturinn er ekki orðinn stór og röddin er enn heldur veik, en hann er orðinn eldri og áreiðanlega þroskaðri. Aðdáendur hans hafa líka elst, en þeir hafa alls ekki sleppt takinu af draumaprinsi ung- lingsáranna. David Cassidy hefur nefnilega enn nóg að gera, ferðast vítt og breitt um heiminn og treður upp á tónleikum fyrir fullu húsi hvar sem hann kemur. Eða svo seg- ir að minnsta kosti á heimasíðu kappans. Um síðustu helgi, 14., 15. og 16. nóvember, gátu áhugasamir farið á tónleika hans í Glasgow, Manchester eða London. Með á nótunum David Cassidy fylgist með þróun- inni, þótt þess sjái kannski ekki stað í tónlist hans. En hann er með MySpace síðu, eins og allir sem eru með á nótunum. Þar ávarpar hann aðdáendur sína: „Velkomin á opinberu DAVID CASSIDY MySpace síðuna. Já, þetta er í raun og veru ég. Eftir að svo margar aðdáendasíður skutu upp kollinum hér ákvað ég að tími væri til kominn að ég stykki sjálfur fram á völlinn svo aðdáendur mínir hefðu vettvang til að ræða saman. Ég reyni að koma hér við eins oft og ég get og ég þakka hönn- unarteymi mínu, Sabre Design, kærlega fyrir að halda ykkur upp- lýstum um það sem gerist í lífi mínu og fyrir að hjálpa mér með allt þetta tölvu-dæmi.“ Þarna kom kappinn upp um sig. Yngri notendur MySpace þurfa enga aðstoð hönnunarteymis í tölvumálum! Ekkjan og börnin fimm Áður en lengra er haldið er ástæða til að rifja upp mesta blóma- skeið kappans. Hann lék í nokkrum sjónvarps- þáttum í Bandaríkjunum forðum daga, en sló svo rækilega í gegn í þáttunum um Partridge- fjölskylduna, afskaplega söng- elska og lagvissa fjölskyldu, sem var jafnframt léttleikandi hljóm- sveit. Móður Davids í þáttunum lék stjúpmóðir hans í raunveruleik- anum, Shirley Jones. Susan Dey lék systur hans, en sú leikkona sló síðar í gegn sem lögfræðingur í sjónvarpsþáttunum L.A. Law. Ungur og vinsæll að eilífu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.