Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 49
Bókarkafli 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
L
ögreglumaðurinn, rokkdansarinn
og besti vinur Bobby Fischer, Sæ-
mundur Pálsson, er nú kominn á
bók. Ingólfur Margeirsson rithöf-
undur hefur skrifað sögu Sæma. Í
bókinni, sem heitir Sæmi rokk, Lífsdans
Sæmundar Pálssonar, er farið yfir ævi Sæ-
mundar og margar skemmtilegar sögur
raktar.
Sæmundur var löngu landsþekktur rokk-
dansari þegar hann gekk til liðs við lögregl-
una. Hæfni hans á dansgólfinu kom honum
þar til góða. Í einum kafla bókarinnar, sem
heitir Löggurokkarinn með neftóbaks-
punginn, segir af slíku:
Oftar en einu sinni lenti Sæmundur í því
að leysa snúin mál með mýkri og talsvert
frjálslegri hætti en algengt taldist. Eitt sinn
var hópur lögreglumanna kallaður að húsi
við Rauðalæk.
Þar var verið að halda fertugsafmæli en
nú var svo komið að allt logaði í slags-
málum innandyra. Útlit var fyrir að blóðug
átök biðu lögreglumanna við að koma þeim
óðustu í járn. Félagi Sæmundar neitaði að
hreyfa sig úr lögreglubílnum fyrr en liðs-
auki bærist. Hann kallaði því í talstöðina
eftir frekari hjálp og mannskap.
Sæmundur segir frá: „Ég sagði félaga
mínum að bíða í bílnum. Svo fór ég og
bankaði upp á. Mér var strax hleypt inn.
Ég gekk til stofu þar sem lætin voru sem
verst. Ég tók upp flautuna mína og blístraði
hátt svo að allir hrukku við. Svo sagði ég
hátt og greinilega að húsið væri umkringt
lögreglumönnum og best væri að hætta
þessum látum. Menn
hættu að slást í skyndi
og eftir stutta stund
var hægt að sætta
menn. Við yfirgáfum
afmælisboðið. Málið var
leyst á staðnum.“
Sæmi kann aðra
sögu: „Einhvern tím-
ann kannaðist einhver
við mig í stjórnlausri
veislu og spurði hvort
ég væri kominn til að dansa? Ég greip
tækifærið og sagði að það væri allt í lagi ef
menn yrðu rólegir og settust þegjandi í
stóla. Það gerðu menn. Síðan var sett á
rokkplata og ég tók sporið. Ég passaði mig
á að dansa ekki af fullum krafti því ég vissi
að ég fengi orð í eyra fyrir það. Við dans-
sýninguna róuðust menn svo mikið að ég
gat kvatt brosandi og sallarólegan mann-
skapinn. En ég hef aldrei heyrt um neinn
annan lögregluþjón sem dansaði niður
ólæti.“
Dansinn var ekki eina sálfræðibrella Sæ-
mundar: „Ég bauð oft ofstopamönnum í nef-
ið. Stundum var pungurinn orðinn tómur.
En ég bauð mönnum samt og þeir þáðu
tómið. Og róuðust oftast fyrir bragðið og
urðu hinir ljúfustu í umgengni. Ég sagði
líka stundum við þá að pungurinn minn
væri tómur eða að ég hefði gleymt honum
heima; hvort þeir ættu ekki í nefið? Stund-
um áttu þeir það, stundum ekki. Þá mynd-
aðist næði fyrir rólegri vangaveltur og
spjall sem skakkaði leikinn án átaka og sló
á æsinginn. Það þarf ekki alltaf krafta til að
róa menn niður.“
Bókin um Sæma rokk er gefin út af
Bókaútgáfunni Æskunni ehf./Almennu út-
gáfunni.
Dansaði niður ólæti
Lögreglumaðurinn, rokk-
dansarinn og besti vinur
Bobby Fischer, Sæmundur
Pálsson, er nú kominn á bók.
Ingólfur Margeirsson rithöf-
undur hefur skrifað sögu
Sæma. Í bókinni, sem heitir
Sæmi rokk, Lífsdans Sæ-
mundar Pálssonar, er farið yfir
ævi Sæmundar og margar
skemmtilegar sögur raktar.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Rokk og ról Sæmundur Pálsson, eða Sæmi Rokk, í sveiflu í Silfurtunglinu um 1960.
Lýstu upp skammdegið með góðri
hugmynd á Vetrarhátíð
Vetrarhátíð í Reykjavík verður haldin dagana 13. – 14. febrúar 2009.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að gæða borgina fjölbreyttu og leikandi lífi
til að senda inn hugmyndir og tillögur að dagskráratriðum fyrir Vetrarhátíð 2009.
Hugmyndir sendist á Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Guðríður Inga Ingólfsdóttir og Skúli Gautason
gudridur.inga.ingolfsdottir@reykjavik.is, skuli.gautason@reykjavik.is
www.vetrarhatid.is