Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 53

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 53
Umræðan 53 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Skipalón 16-20 á Hvaleyrarholti 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir á frábærum stað. www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is ÍS L E N S K A S IA .I S M O T 41 95 0 04 .2 00 8 Söluaðili: > Glæsilegar íbúðir, fyrir 50 ára og eldri, í Hafnarfirði Hvaleyrarholti Sölusýning í dag kl. 14:00 – 16:00 Skipalón • Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu. Ótrúlegt útsýni. • Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi inn af hjónaherbergi. • Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu íbúðunum. • 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og minniháttar tilefni). • Þvottastæði í bílageymslu. • Golfvöllur í göngufæri. Verðdæmi: • 2ja herb. m/ bílskýli frá 18.500.000 kr. • 3ja herb. m/ bílskýli frá 24.500.000 kr. • 4ra herb. m/ bílskýli frá 29.000.000 kr. BÚTAN er sjálf- stætt konungsríki með um 600 þúsund íbúa í suðurhlíðum Himala- yafjalla. Landið er á stærð við Sviss og á landamæri að Tíbet (Kína) í norðri en er að öðru leyti umlukt Indlandi. Bútan hefur aldr- ei verið nýlenda neins ríkis og þar hefur sama konungsættin ráðið ríkjum síðan 1907. Sem einvaldur konungur hefur nú ríkt þar í 36 ár hans hátign Jigme Dorji Wangchuck. Hann á fjórar eiginkonur, allar systur, og 10 börn. Krónprinsinn Jigme Khesar Namgyel Wangchuck var krýndur konungur nú 6. nóvember þegar faðir hans dregur sig í hlé. Verður þá kátt í höllinni og standa aðalhátíðahöldin yfir í þrjá daga. Krónprinsinn hefur hlotið háskóla- menntun bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, er 28 ára og ókvæntur enn sem komið er. Hefur hann á síðustu tveimur árum þegar tekið við helstu embættisstörfum föður síns þótt formleg krýning fari ekki fram fyrr en nú, en dag- setning krýningarinnar var valin af æðstu munkum landsins með trúarlegu tilliti. Bútan er eitt af fátækustu lönd- um heims mælt í peningum sem heildarþjóðarframleiðsla á hvern íbúa en eitt af auðugustu löndum heims mælt á hamingjuvogina. Bútanar eru ein hamingjusamasta þjóð veraldar og hafa þeir alla tíð lifað í sátt og samlyndi við guð sinn, landið og náttúruna. Bútan hefur alveg fram á síðustu ár verið því sem næst lokað land og þjóðin hefur lifað í friði við sjálfsþurft- arbúskap og trúariðkun gegnum aldirnar. Trúarbrögðin og iðkun þeirra eru að mörgu leyti sambæri- leg í Bútan og Tíbet, búddatrú er alls ráðandi og þúsundir búdda- munka má sjá hvarvetna í klaustr- um, bæjum og þorpum. Þjófnaðir, ofbeldi og aðrir glæpir eru nær óþekktir í Bútan því búddatrú boð- ar endurholdgun í ýmsum lífs- myndum og býður mönnum því að gera engri lifandi veru mein, hvorki mönnum né dýrum. Ennþá er ýmsum vandkvæðum bundið að heimsækja Bútan. Ein- ungis er leyft að koma þangað flugleiðis með bútanska flugfélag- inu DRUKAIR frá Delhi eða Bangkok. Erlendir ferðamenn verða að fá vegabréfsáritun áður en þeir koma til Bútans, greiða 200 Bandaríkjadali á dag fyrirfram fyr- ir fæði, gistingu og kynnisferðir í 14 daga og er síðan gert að yf- irgefa landið. Árið 2000 komu inn- an við tvö þúsund ferðamenn til Bútans og árið 2005 var fjöldinn kominn í fimm þúsund. Ennþá er fjöldi ferðamanna til Bútans innan við tíu þúsund árlega og fer ein- ungis hægt fjölgandi því ráðamenn landsins vilja fara varlega í að opna landið fyrir útlendingum með öllu því sem því fylgir, til góðs eða ills. Hótelum og góðum gistirýmum fer smám saman fjölgandi, matur er góður og læknisþjónusta er fá- anleg. Konungurinn sem nú segir af sér er dáður og elskaður af þjóð- inni. Honum er treyst og lands- menn telja hann alveg einfæran um að sjá um hag þeirra og velferð og vildu helst ekkert hafa með lýð- ræði, kosningar og slík fyrirbrigði að gera. En þegar konungurinn ákvað að nú skyldi Bútan verða lýðræðisríki, þingbundið konungs- ríki í líkingu við konungsríki Evr- ópu, þá hlýddu þegnarnir einvaldi sínum þótt tregir væru. Fyrstu þingkosningarnar í sögu Bútans fóru svo fram um síðustu áramót og þingið tók svo til starfa fyrri hluta ársins í ár. Til þess að kynna lands- mönnum þetta fyr- irbrigði sem frjálsar kosningar eru, þá voru í fyrra haldnar „gervi- kosningar“ með ímynduðum fjórum stjórnmálaflokkum og var kosið í öllu landinu í júní 2007. Þetta var eins konar æfing sem gekk vel og þegar svo alvöru kosningarnar voru haldnar sex mán- uðum seinna gekk allt eins og í sögu. Kosningarnar voru algerlega frjálsar, allir gátu neytt atkvæð- isréttar síns og ekkert fór úrskeiðis eins og svo oft vill verða jafnvel í þróuðum lýðræðisríkjum. Bútan er hægt og sígandi að taka sinn sess í samfélagi þjóða heims svo sem í Sameinuðu þjóð- unum og Alþjóðlegu flugmálastofn- uninni, ICAO. Í Bútan er einungis einn flugvöllur með einni flugbraut í bænum Paro um 50 km frá höf- uðborginni Thimphu. Aðstæður til flugs eru erfiðar í hrikalegum hlíð- um Himalayafjalla og fátt um lend- ingarstaði fyrir flugvélar. Sænska þróunarhjálpin SIDA hefur veitt Bútan þróunaraðstoð til þess að bæta öryggi og flugsamgöngur og hefur undirritaður starfað á vegum SIDA að uppbyggingu flugörygg- ismála í Bútan síðustu tvö árin. Sér nú brátt fyrir endann á því og von- ir standa til að allar aðstæður til flugs batni og flugumferð til lands- ins og frá því geti aukist til hags- bóta fyrir land og þjóð. Í Bútan eru litlar náttúru- auðlindir en á sama hátt og á Ís- landi eru vatnsföll stór og miklir möguleikar á að virkja þau. Nú þegar eru nokkrar virkjanir í land- inu, samanlagt á stærð við virkj- anirnar í Þjórsá. Indverjar hafa byggt þessar virkjanir fyrir Bútana og kaupa svo af þeim rafmagnið. Hugsanlega geta Íslendingar með alla sína sérþekkingu á þessu sviði komið að virkjanamálum í Bútan sem þróunar- eða útrásarverkefni. Bútan er eitt af síðustu ríkjum heims með háþróaða eigin menn- ingu sem ennþá hefur ekki stigið skrefið inn í nútímann til fulls, eins konar Shangri La í viðsjárverðum heimi. Get ég mælt með heimsókn til Bútans fyrir alla, unga sem aldna, það er einstök upplifun. Konungskrýning í Bútan Grétar H. Ósk- arsson segir frá smáríkinu Bútan í Himalayafjöllum er þar verður krýndur nýr konungur á morgun » Sem einvaldur konungur hefur nú ríkt þar í 36 ár hans hátign Jigme Dorji Wangchuck. Hann á fjórar eiginkonur, allar systur, og 10 börn. Grétar H. Óskarsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.