Morgunblaðið - 23.11.2008, Qupperneq 64
64 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
7 5 2 6
9 8 2 1 4
2 6 4 8 1
3 1 7
7 1 3 8 4
1 3 5
4 6 1 3 5
7 9 5 1 4
5 1 4 8
8 1 7
7 4 2 3
2 7 8 9
1 6 2
2 5
5 4 8
4 3 6 1
3 8 2 6
6 4 3
4 3 1
1 4 3
1 6 5 2
3 7 2 9
1 9 6
7 8 9 6
8 7 6 3
5 6 4
7 3 9
2 4 1 8 3 9 5 6 7
7 3 9 1 6 5 4 2 8
8 6 5 7 2 4 3 9 1
4 5 8 9 7 6 2 1 3
1 2 7 5 8 3 9 4 6
6 9 3 2 4 1 8 7 5
9 8 6 3 1 2 7 5 4
3 1 2 4 5 7 6 8 9
5 7 4 6 9 8 1 3 2
5 9 4 3 1 7 6 8 2
3 1 7 8 2 6 5 4 9
2 6 8 9 4 5 7 3 1
9 3 6 7 5 1 4 2 8
4 2 1 6 8 9 3 7 5
7 8 5 2 3 4 1 9 6
6 7 3 1 9 8 2 5 4
1 5 9 4 7 2 8 6 3
8 4 2 5 6 3 9 1 7
8 3 5 4 1 9 6 7 2
2 6 4 8 3 7 9 1 5
9 7 1 6 2 5 4 3 8
6 4 3 7 9 8 5 2 1
7 5 9 2 6 1 8 4 3
1 8 2 3 5 4 7 6 9
5 9 6 1 4 3 2 8 7
3 2 8 5 7 6 1 9 4
4 1 7 9 8 2 3 5 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 23. nóvember,
328. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji fagnar því mjög að saganum Pollýönnu hefur verið gefin
út aftur. Víkverji á margar fallegar
minningar um Pollýönnu frá æsku
sinni. Þá meðtók hann heimspeki
Pollýönnu af mikilli gleði enda á
móttækilegum aldri. Svo villtist Vík-
verji af vegi bjartsýninnar um tíma
og gerðist bölsýnn af því það var í
tísku. Svo læknaðist hann. Það er
nefnilega svo leiðinlegt að lifa sig inn
í gáfulegan bölmóð. Víkverji hefur
því síðustu árin kosið að halda í
barnslega bjartsýni. Hún er nefni-
lega svo skemmtileg. Alveg eins og
Pollýanna. Og heimspeki Pollýönnu
á alltaf við, ekki síst á erfiðum
krepputímum.
x x x
Víkverji hefur verið að velta fyrirsér hlutskipti tónlistarmanna.
Víkverja finnst eins og þeir séu allt-
af að gefa vinnu sína. Í því botnar
Víkverji ekki. Hann er ekki eð-
alkapítalisti en hefur samt þá skoð-
un að menn eigi ekki að vinna kaup-
laust. Víkverja þykja peningar
nefnilega alveg ágætir.
x x x
Víkverji er alltaf að heyra um tón-listarmenn sem gefa vinnu sína
í þágu þessa og hins málefnis. Það er
göfugt upp að vissu marki en verða
tónlistarmenn ekki að lifa eins og
aðrir? Eða ætla þeir kannski bara að
fá laun sín á himnum? Það getur orð-
ið nokkuð löng bið.
x x x
Víkverji þekkir dágóðan hóp rit-höfunda. Honum finnst nokkuð
skorta á að rithöfundar sýni öðrum
rithöfundum nægilegt örlæti. Það er
eins og þeir geti aldrei hrósað bók-
um annarra rithöfunda nema við-
komandi sé annaðhvort dauður eða
útlendingur. Þetta finnst Víkverja
ekki gott. Reyndar er þessi skortur
á örlæti í garð annarra ekki bara
einkenni á rithöfundum – það er að
segja þeim sem Víkverji þekkir
–heldur er þetta almennur galli. Það
eru ekki nógu margir sem eru reiðu-
búnir að hrósa öðrum, þakka þeim
og viðurkenna framlag þeirra. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 mikill snjór, 8
hreinar, 9 kliður, 10 fara
til fiskjar, 11 lúra, 13
glæsileiki, 15 kút, 18 rit-
höfundur, 21 tíðum, 22
ófullkomið, 23 eldstæði,
24 skipshlið.
Lóðrétt | 2 mánuður, 3
gabba, 4 lýkur, 5 far-
sæld, 6 bakhluti, 7 hug-
boð, 12 þreyta, 14 tré, 15
amboð, 16 grámóða, 17
bogin, 18 framendi, 19
héldu, 20 látni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áfall, 4 frost, 7 andóf, 8 úlfúð, 9 nær, 11 inni, 13
enda, 14 látún, 15 spöl, 17 nekt, 20 ári, 22 rílum, 23
lukka, 24 kamar, 25 tunga.
Lóðrétt: 1 ávani, 2 aldin, 3 Lofn, 4 frúr, 5 orfin, 6 tuðra,
10 æstur, 12 ill, 13 enn, 15 sprek, 16 öflum, 18 eikin, 19
trana, 20 ámur, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. d3 Rc6 3. f4 d5 4. Be2 e6
5. Rf3 Bd6 6. O-O Rge7 7. c3 O-O 8.
Ra3 c4 9. Rc2 cxd3 10. Bxd3 dxe4
11. Bxe4 Dc7 12. Rfd4 Bd7 13. Rb5
Db6+ 14. Be3 Bc5
Staðan kom upp fyrir skömmu í
þýsku deildakeppninni. Stórmeist-
arinn Igor Glek (2512) frá Þýska-
landi hafði hvítt gegn kollega sínum
Petar Popovic (2489) frá Serbíu. 15.
Bxh7+! Kh8 16. Dh5 hvítur fórnar
nú manni fyrir sókn. 16…Bxe3+ 17.
Kh1 Rg8 18. Bxg8+ Kxg8 19. Rxe3
Dxe3 20. Hf3! De2 21. c4 g6 22. Dh6
Dxb2 23. Hd1 Had8 24. Rc3! Bc8 25.
Hg1 e5 26. Re4 exf4 27. Hc3 Hd6 og
svartur gafst upp um leið þar sem
hann yrði óverjandi mát eftir 28.
Rg5.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Spurning um útspil.
Norður
♠105
♥KD1092
♦KG84
♣Á7
Vestur Austur
♠97542 ♠ÁKDG63
♥753 ♥Á8
♦D ♦10
♣DG42 ♣K1053
Suður
♠--
♥G64
♦Á976532
♣986
Suður spilar 6♦.
Aðeins fimm þjóðir tóku þátt í úr-
slitakeppni HM árið 1967: Ítalía, Banda-
ríkin, Frakkland, Taíland og Venesúela.
Fyrst spiluðu þjóðirnar þrefalda umferð
innbyrðis, síðan kepptu tvær efstu til úr-
slita. Spilið að ofan er frá viðureign
Bandaríkjamanna og Taílendinga. A-V
eiga mikinn spaðastyrk og geta tekið
þar tíu slagi, en N-S komust inn á sagnir
á báðum borðum og „fórnuðu“ í 6♦ yfir
5♠. Slemman veltur á útspili. Taílend-
ingurinn kom út með spaða og þá gat
sagnhafi fríað hjartað og hent niður
tveimur laufum. Hinum megin hitti Eric
Murray á ♣D út og náði spilinu einn nið-
ur.
Annað mál: Hvað á austur að segja
við opnun norðurs á 1♥? Báðir aust-
mennirnir dobluðu og hleyptu þannig
suðri inn á ódýrri tígulsögn. En hvað
gerir suður ef austur stekkur beint í 4♠?
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Örlæti er eitt, að spreða er annað.
Kaupin þín verða ekki af verra taginu þar
sem þú hefur mikla hæfileika til að kaupa
ódýrt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fljótfærni getur komið þér í koll.
Ekki hika við að halda hugmyndum þín-
um á lofti því að aðrir munu verða hrifnir
af þeim.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert kraftmikill og kemst yfir
allar hindranir sem á vegi þínum verða.
Forðastu mikilvægar ákvarðanir í dag og
á morgun.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú er rétti tíminn til að finna sér
afdrep til þess að hvíla lúin bein og end-
urnýja krafta sína. Ekki örvænta, gild-
ismat fólks er mismunandi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert að breyta sviðsetningu lífs
þíns. Ef þú veist hvað skiptir máli þá
veistu hvað þú átt að vernda og varðveita.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú getur varla beðið eftir að segja
öðrum frá einhverri uppgötvun sem þú
hefur gert í starfi. Taktu óhrædd(ur) við
aukinni ábyrgð.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Maður þarf ekki alltaf að reyna mjög
mikið á sig. Mundu að maðurinn er það
sem hann neytir. Ekki hafa allir sömu
skoðanir og viðhorf til lífsins og þú.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur ákveðnar hug-
myndir en vinir þínir vilja draga úr fram-
kvæmdagleði þinni. Reyndu að sýna um-
hyggjusemi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það skiptir öllu máli að hafa
hlutina í jafnvægi svo gættu þess að for-
gangsraða rétt til þess að ná árangri. Líf-
ið er enginn leikur og þolinmæðin þrautir
vinnur allar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er kyrrð – sérstaklega
innra með þér – sem leyfir þér að slaka á.
Ef þú segir já verður þetta ógleymanleg
samverustund.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Manneskjan sem þú ert að bíða
eftir er líka að bíða eftir þér! Þú þarft að
brjótast út úr mynstrinu. En þú þarft
ekki að örvænta því með þolinmæðinni
hefst það.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Með hjálp góðra vina tekst þér að
sigla þínum málum í höfn. En það kostar
tíma að skilja kjarnann frá hisminu og
þann tíma þarftu að gefa þér.
Stjörnuspá
Þórunn Pálsdóttir, fyrrverandi
skrifstofumaður og Albert Kemp,
fyrrverandi umdæmisstjóri Sigl-
ingastofunar Íslands á Austurlandi,
og fréttaritari Morgunblaðsins til
fjölda ára, Skólavegi 14 á Fáskrúðs-
firði, eiga fimmtíu ára brúðkaups-
afmæli í dag, sunnudaginn 23. nóv-
ember.
Gullbrúðkaup
Jón Bryntýr
Zoëga Magn-
ússon prentari
er áttræður í
dag, 23. nóv-
ember. Hann
mun verja deg-
inum með börn-
um og barna-
börnum sínum.
80 ára
GLAÐLEGA gengst Herder Anderson við því að
eiga stórafmæli í dag. Árin 75 eru orðin að stað-
reynd. „Ég verð heima framan af deginum og syst-
ir mín og eiginmaður hennar koma frá Svíþjóð og
verða hjá mér mér viku. Um kvöldið förum við svo
öll út að borða með íslensku fjölskyldunni líka,“
segir Herder. Þá verður mikil hátíð „… af því að í
kvöld fæ ég afhent eintak af fyrstu bókinni minni.
Hún heitir Premiär og er fyrsta bókin af þremur.
Þetta er stærsta og skemmtilegasta gjöfin sem ég
hef á ævinni fengið.“ Bókin kemur út í Svíþjóð.
„En svo er ég búinn að skrifa miklu, miklu, miklu
meira,“ segir Herder, „og maðurinn sem sér um þetta fyrir mig hefur
mikinn hug á að halda áfram.“ Premiär segir af ballettdönsurum og
þar eru hæg heimatökin fyrir Herder því hann stundaði ballett í 14 ár.
„Það er mjög létt fyrir mig að skrifa, þetta er ekkert sem ég ber innan
í mér í mörg ár, eins og ég heyri að sum skáld gera. Nei, nei, ég sest
bara niður þetta rennur bara úr mér,“ segir Herder glaðhlakkalega.
Hann hefur mörg járn í eldinum því hann hannar kirkjuklæði og verk
eftir hann eru í ýmsum kirkjum landsins. „Og ég er enn að hanna og
sauma altarisklæði og ég hef svo gaman af því.“ sia@mbl.is
Herder Anderson fatahönnuður 75 ára
Stærsta og besta gjöfin
Jakobína Ósk-
arsdóttir er sex-
tug í dag, 23.
nóvember. Í til-
efni af afmælinu
er hún stödd í
Taílandi ásamt
eiginmanni sín-
um.
60 ára
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Elín Jónsóttir
þjóðbúninga-
saumakennari,
Furugrund 40,
Kópavogi, verð-
ur níræð í dag,
sunnudaginn 23.
nóvember. Í til-
efni dagsins er
opið hús fyrir
vini og vandamenn á afmælisdag-
inn milli kl. 16 og 18 í Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14, Reykjavík. Verið
velkomin.
90 ára