Morgunblaðið - 23.11.2008, Síða 66
66 Menning
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Sálin stofnuð.
Ný sál. Hvar er
draumurinn
kemur út.
Sálin reynir fyrir sér erlendis
undir nafninu Beaten Bishops.
„Rauða” platan
kemur út.
Slagarahátindur þetta sumarið.
Hin tilraunakennda Þessi
þungu högg kemur út.
Bandið leggst í híði.
Platan Sól um
nótt kemur út.
Sálin endurreist á órafmögnuðum
tónleikum í Loftkastalanum.
Plötutvennan Annar
máni/Logandi ljós
kemur út.
Lagið Þú fullkomnar
mig verður ógurlega
vinsælt brúðkaupslag.
Sálin vinnur með
Sinfóníuhljómsveitinni.
Söngleikurinn Sól
og Máni settur upp
í Borgarleikhúsinu.
Aðdáendaklúbburinn Gullna liðið stofnaður.
Platan Undir þínum
áhrifum kemur út.
Sálin og Gospel.
Sálin og Stuðmenn í Kaupmannahöfn.
20 ára afmælistónleikar
í Laugardalshöll,
öskjur og box gefin út.
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
„Tíminn og við“
Stiklað á stóru í
sögu Sálarinnar
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þessi útgáfa er með ólík-indum yfirgripsmikil oghefur greinarhöfundurreyndar aldrei séð annað
eins. Ekki er hægt að segja annað
en umfangið sé þar með í takt við
viðfangsefnið en saga Sálarinnar
hans Jóns míns og staða hennar í
dag innan íslenskrar dægur-
tónlistar er með öllu einstök. Sveit-
in, eða öllu heldur meðlimir, eru
réttnefndir konungar hins íslenska
popps.
Safnið kemur út í þremur mis-
munandi útgáfum. Fyrst ber að
nefna þrefalda hljómdiskaútgáfu
með 45 bestu lögunum og sögu
sveitarinnar í máli og myndum. Þá
er um að ræða tvöfalda mynddiska-
aútgáfu með 25 myndböndum og
heimildarmynd Jóns Egils Berg-
þórssonar um sveitina. Einnig
kemur út sérstök viðhafnarútgáfa í
takmörkuðu upplagi. Auk 92 síðna
bókar sem fjallar um sögu sveit-
arinnar eru þar fjórir geisladiskar,
þrír þeirra með 45 vinsælustu lög-
um sveitarinnar og sá fjórði með
fimmtán tónleikaupptökum. Mynd-
diskar eru þá þrír, einn með 25
myndböndum, annar með 25 tón-
leikaupptökum og þann þriðja
prýðir lengri útgáfa af heimildar-
mynd Jóns Egils. Allar upplýsingar
um laga- og textasmiði, leikstjóra,
hljóðfæraleikara, upptökumenn og
slíkt eru þá afar ítarlegar og skil-
merkilegar.
Sálverjar hafa þannig staðið
myndarlega að hátíðarhöldum á
þessu afmælisári sínu en fyrr á
árinu komu út tvær öskjur undir
heitinu Vatnaskil þar sem öllum
útgefnum hljóðversplötum sveit-
arinnar var safnað saman auk
plötu sem skaut skjólshúsi yfir
munaðarleysingja, þ.e. stök
lög sem höfðu ekki ratað
inn á breiðskífur.
Djörfung
Saga Sálarinnar hans
Jóns míns er fyrir
margra hluta sakir stór-
merkileg. Hér höfum við hljómsveit
sem hóf starfsemi sem hefðbundin
skemmtisveit en þróaðist svo fljót-
lega út í metnaðarfulla poppsveit
sem dældi ægigrípandi, en aldrei
ódýrum, slögurum linnulaust yfir
land og lýð. Sveitinni tókst á til-
tölulega stuttum tíma að byggja
upp gott safn af frumsömdu, al-
íslensku poppi og hefur vegna
þessa setið traust á stalli í
augum yngri tónlistar-
manna sem þreyta sömu
list. Allir vilja þeir und-
antekningarlaust Sálina kveðið
hafa og sporfarar sveitarinnar hafa
verið með helstu poppsveitum
landsins síðustu ár, sveitir eins og
Land og synir, Á móti sól, Írafár
og Í svörtum fötum.
Upp- og niðursveiflur vantar þá
heldur ekki í tilfelli Sálarinnar og
dramatíkin er aldrei langt undan
eins og sannri stórsveit sæmir. Sál-
in hefur þannig átt blómaskeið,
þurrkatíð og endurreisnartímabil.
Hún var vinsælasta sveit landsins í
kringum ’92-’93, lá síðan í nokkurs
Djásn er konungum sæmir
Út er kominn safnkass-
inn Hér er draumurinn
þar sem saga Sálar-
innar hans Jóns míns
er sögð í músík, máli og
myndum. Tilefnið er
tvítugsafmæli þessara
konunga íslensks
popps.
VIÐ spurðum Stefán Hilmarsson út í þá
vinnu sem fór í þessa safnútgáfu.
Við hvað var miðað þegar safndiskarnir
voru settir saman?
„Það var lagt upp með að hafa þetta í
hinu sígilda „greatest hits“ formi. Auðvit-
að kom huglægt mat að einhverju leyti til
en að mestu leyti var sjálfgefið hvaða lög
rötuðu inn. En til mótvægis við vinsælda-
val koma aukaplöturnar með tónleika-
upptökum í viðhafnarútgáfunni, þannig að
það er eitthvert jafnvægi í þessu.“
Einhver fyrirmynd að útgáfunni?
„Nei, ekki beinlínis. Útgáfustjórinn lagði
þó upp með ákveðna fyrirmynd hvað form-
atið varðar. Við erum afar ánægðir með
þann metnað sem Senu-menn hafa lagt í
útgáfu verka okkar á þessu ári. Að baki
liggur gríðarleg vinna á öllum vígstöðvum
við hljóð, myndir, skrif, umbrot og heim-
ildaöflun á víðum grunni.“
Tók það á tilfinningalega að setja saman
þetta safn? Streymdu minningabrotin
fram? Og hvað finnst þér sjálfum um þessi
fyrstu tuttugu ár? Í hverju liggur arfleifð-
in?
„Maður er orðinn nokkuð vanur því að
grúska í gömlu efni, fórum í gegnum svip-
að ferli við útgáfu plötunnar Gullna hliðs-
ins á tíu ára afmælinu og einnig í upphafi
þessa árs þegar gömlu plöturnar voru end-
urútgefnar. En það fylgja öllum skeiðum
einhverjar minningar, sumar góðar, aðrar
síðri, eins og gengur. Það þekkja allir sem
flett hafa í gömlum myndum heima hjá
afa, ömmu, pabba og mömmu. Maður hugs-
ar ekkert út í arfleifð, það er eitthvað sem
aðrir verða að hugsa um eða kryfja þegar
fram líða stundir. Maður lifir bara í núinu
og reynir bæta sig dag frá degi. Kannski
kemst maður að því á ævikvöldinu hvort
eitthvert vit var í öllu þessu stússi. Og
kannski ekki.“
Einhver sérstök plön fyrir næsta ár?
„Við erum rétt að ná okkur eftir vinn-
una sem þessari útgáfu fylgdi og ekki
farnir að huga að framhaldi, þannig að
ekki liggja fyrir nein plön. Ekki frekar en
oft áður. Bandið mun þó leika á nokkrum
stöðum á næstu vikum. En mér finnst lík-
legt að næsta útgáfa, ef einhver verður,
muni verða ný stúdíóplata.“
„Allt eins og það á að vera“
Sálin hans Jóns míns, 2008 Að margra mati ein merkasta dægurlagahljómsveit sem hérlendis hefur starfað.