Skinfaxi - 01.09.1927, Blaðsíða 14
78
SKINFAXI
jneðal allra ungmennafélaga í Rángárþingi. L'111 miðjan
marsniánuð 1927 íor starfsmaðurinn norður til Eyja-
fjarðar, sat á Iiéraðsþingi Eyfirðinga og flutti erindi
fyrir ungmennafélög héraðsins. Heimsótti Laugaskól-
ann. Gafst þá kostur á að tala við lielstu ungmenna-
félaga norður þar. Veturinn lí)25 fór porsteinn Guð-
mundsson frá Skálpastöðum í Borgarfirði i fræðslu-
ferð um Vestfirði fyrir L. M. F. í. Veturinrf 1925—G
starl’aði Sigurður Greipsson féhirðir sambandsins að
íþróttakenslu og fræðsluferðum fyrir U. M. F. í. í nóv-
ember og desember það ár bafði hann fjögur námskeið
í Árnes- og Rangárvallasýslum. Voru námskeiðin f.jöl-
sótt. í hyrjun febrúar fór hann til Vestfjarða, liélt
íþróttanámskeið á Isafirði, Suðureyri og Flateyri. Nám-
skeiðin stóðu yfir 2—3 vikur á hverjum stað. I sam-
bandi við námskeiðin l'Iutti liann fyrirlestra. pessu
næst ferðaðist hann til Akureyrar, flutti erindi meðal
ýmsra ungmennafélaga norður þar. A þessum ferðum
gafst honum kostur á að ræða itarlega við stjórnarfé-
laga sína um félagsmál.
Frekari starfsemi vegna íþrótta. Veturinn 1924—5
hélt í. S. t. íþróttanámskeið í Rvik. Aðalkennari var
Jón porsteinsson. Varð þá að ráði að íþróttaflokkur
skyldi fara til Noregs og sýna þar íslenska glimu. J?eir
sem fóru, voru valdir af námskeiðinu. U. M. F. í.
styrkti þessa ferð með 800 kr. Var förin farin i nafni
ungmennasambands íslands. Var það gert að skilyrði
að glímumennirnir allir væru ungmennafélagar. Áður
en flokkurinn fór að heiman, hélt liann glímusýningu
í Revkjavík á Eyrarbakka og Stokkseyri. í Noregi
dvöldu þeir félagar um mánaðar lima. Fóru víða um
bæði austan fjalls og vestan. Höfðu 30 glimusýningar.
Förin var rómuð hið hesta í blöðum, bæði hér og i
Noregi. Sigurður Greipsson hefir skrifað ítarlega um
þessa ferð. Hefir ritgerð hans verið birl í Skinfaxa.
Veturinn 1926—7 var að tilhlutun U. M. F. í. og í. S. í.