Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1927, Qupperneq 21

Skinfaxi - 01.09.1927, Qupperneq 21
SKINFAXI 85 sjálfsögöu starfa félaganna, sem er einkum fólgin í fundahöldum ug útgáfu blaða, haí'a mörg félög á síð- ustu árum haft iðnaðarnámskeið í ýmsum greinum, starfrækja spunavélar og prjónavélar, vinna að vega- gerð og ýmiskonar jarðrækt, liafa sláttumót, eiga hey- forðal)úr, sem oft hafa komið að góðu liði. Flest eða öll ungmennafél. lialda skemtanir, einu sinni eða oftar á ári hverju, sem almenningi er heimilt að sækja. Helstu skemtanir félaganna er söngur, dans, leiksýningar og iþróttir. Oft hafa ungm.fél. hlaupið undir hagga með fátækum mönnum, er þeir liafa einliverra liluta vegna sérstaklega þurft liðs við. Starfræksla bókasafna er meðal þess merkasta er félögin vinna að. Um hina andlegu mehtun og uppeldisgildi ungm.fél. mætti margt segja, en ekki verður það gert hér frekar en orðið er, því aldrei verður því lýst til hlítar, og síst tölum talið, þó það sé og þurfi um allan aldur að vera kjarni ungmennafélagshreyfingarinnar. Eg vil að eins minna á að margir af þjóðnýtustu mönnum landsins hafa sagt að ungm.fél. hafi reynst þeim betur en nokk- ui' skóli. Að lokum þakka eg stjórn U. M. F. í. fyrir ágæta og ánægjulega samvinnu undanfarin ár, og tel mér skylt að geta þess að stjórnin hefir ekki einungis unnið alveg endurgjaldslaust að stjórnarstörfum sín- um, lieldur einnig farið ferðir, og lagt fram beina pen- inga, vegna sambandsins, sem hún mun ekki telja til reiknings. þá vil eg og þakka öllum ungm.fél., sem eg hefi heimsótt, fyrir alúðarviðtökur, sem eg hefi alstaðar mætt, óska eg þess að ungm.fél. beri gæfu til að vinna sem lengst og best samkvæmt kjörorði sinu: 1 s 1 a n d i a 1 t.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.