Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.09.1927, Side 30

Skinfaxi - 01.09.1927, Side 30
94 SKINJAXI sveilum landsins, ruddur dálitill götuslóði; þá mun al- ment verða runnið í slóðina. Vel má vera, að svo verði litið á, að þetta sé ungmennafélögunuin ofællun. En jeg Iiefi áður getið þess, að það sé æskunnar að ryðja brautina fyrir því nýja og nytsama. Og aðstaðan er ekki annarsstaðar betri, en innan vébanda ungmenná- félaganna. En jafnvel þó að það verði ekki hlutskifti ungmennaíélaganna að vera frömuðir aukinnar rækt- unar og bættra búsbátta á landi hér, þá geta þau þó altaf baft nokkrar tekjur af vel ræktuðum túnbletti. Sá gróði getur a. m. k. ekki talist illa fenginn, sem tekinn er iir skauti jarðar. Ættu ungmennafélögin vel að at- huga þetta mál. íslenska æska! Skilur þú blutverk þitt? Fimnir þú þína helgu köllun? pú hefir fjöregg framtíðarinnar í bendi þér. Ifráðum tekur þú við forráðum af feðrum þínum og ábyrgðin bvílir á baki þinu. pvi ber þér að þroska þig sem best, svo að framtíðin sé óbult í hendi þér. — Ef þú rennir augunum í kring um þig, muntu alstaðar sjá óræktuð lönd. Fósturjörðin „mænir nú hljóð gegn ungrar aldar skini. Á bún þar von á lengi þráðum vini?“ Vinurinn er æska íslands. Eg befi löngum ljóðelskur verið. Hrifnastur er eg ætið af þróttmiklum söguljóðum og bjartsýnum, fram- sýnum, örfandi ætljarðarkvæðum. Ábrifin af guðaveig- um, sem teygaðar eru úr Mímisbrunni íslenkrar brag- listar eru varanleg. Ef að þér, lesari minn, verður ein- hverntíma vant áhuga, afls og vilja, til að koma bug- sjónum þinum í framkvæmd, þá bergðu á þeim l)ikar og þú munt finna örfun og viljastrengir þínir munu stillast til starfs og dáða. Eg ætla svo ekki að vera margorðari að þessu sinni, en vil enda þessar línur mínar með einni perlunni úr ljóðheiminum. Minnumst þess, allir ungmennafélagar, að:

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.