Skinfaxi - 01.02.1934, Síða 10
10
SKINFAXI
Í3Ú að Austurey í Laugardal vorið 1912, fluttu síðar
að Kjóastöðum í Biskupstungum, og þaðan til Reykja-
víkur vorið 1930. Þau hafa eignazt 5 börn, og lifa
4 þeirra; tvær dætur, uppkomnar, og tveir synir,
annar 15 ára, en liinn á barnsaldri.
Sigríður er kona glaðlynd og fjörmikil, fljól til
svars og orðheppin, sem
margt af hennar fólki. Hún
er góð eiginkona og móðir,
og trygg vinkona. Dugleg
þykir hún til allra starfa og
óvenju áhugasöm um allt
það, er hún annars lætur sig
nokkru skipta. Drenglyndi
og áreiðanleika ann hún
mcst allra dyggða.
Þorstcinn og Guðriður eru
fædd 5. septemher 1888, tví-
burar. Fór snennna orð af
því, að þau væri vel gefin,
ekki síður en hin eldri syst-
kini, o'g ennþá meira bar á námslöngun lijá þcim. Þau
gengu bæði í Unglingaf elagið á stofndegi, og urðu
þegar með allra duglegustu og áhugasömustu félög-
um. Á fyrsta fundi eftir stofnfund höfðu þau fram-
sögu sitt í hvoru máli, og fórst það ágællega. Voru
þau þá 18 ára unglingar og höfðu aldrei fyrri kynnzt
þessháttar félagsstarfsemi.
Þau systkini stunduðu nám við Flensborgarskóla
veturna 1907—1910, Þorsteinn tvo vetur, en Guðríð-
ur einn. Gátu þau sér þar hinn bezla orðstir fyrir
námíysi og dugnað, og tóku mikinn þátt i félagslífi
nemenda, einkum Þorsteinn. Að loknu námi hurfu
þau lieim aftur, studdu bú móður sinnar, meðan
liún lifði, og tóku við því cr hún andaðist, liaust-
ið 1912.