Skinfaxi - 01.02.1934, Page 34
34
SKINFAXI
fremur smár, en gæti verið nokkuð viss, þá verða
vextir að vera lágir og lánstími langur.
Allar þessar umbætur eru lofsverðar, og á þeim
verður að ijyggja í framtíðinni. En betur má ef duga
skal. Mistökin ætlu að gefa bendingu til liins rétta.
Hindranirnar æltu að livelja menn lil að sigrast á
þeim. Ef einlægur vilji er til staðar og nægilegt vit
og þrek, mætti svo takast að þessi þjóð, sem telur
rúmlega 100 þús. manns, búsett í gæðalandi, geti
komið þvi skipulagi á atvinnu sína, að hver einstak-
lingur liafi nóg að starfa og nóg að lifa fyrir.
En þvi miður gætir þess enn um of, að stétt er
æst upp gegn stétt. Hver skarar eld að sinni köku,
sveitum og bæjum er sigað saman, kjarni málanna
vafinn í blekkingar. Lúalegustu vopn eru notuð í
þessari samkeppnisbaráttu. fslenzk alþýða er þjök-
uð, ýmist af atvinnuleysi eða erfiði og vonleysi.
Unga fólkið úr sveitunum, sem margt mat meira
tryggð við ástvini og átthaga, lieldur en gleðilíf bæj-
anna, við Iiátt kaup og milda eyðslu, hefir orðið að
yfirgefa bygg'ðina sína, leita hamingjunnar við sjó-
inn. Sú leit hefir oft endað í atvinnuleysi og skorti.
Þannig virðist ætla að fara. Og hver getur svo
dæmt þetta unga fólk fyrir það, að ])að skipi sér í
róttæka flokka? Er það ekki bein afleiðing af því
festu- og skipulagsleysi í atvinnumálunum, og því
öryggisleysi, sem einstaklingarnir verða við að búa
af liálfu þjóðfélagsins?
Þessi æska veit hvað hún vill. Hún vill starfa og
njóta lifsins. Ilún á lieimting á bættum lífsskilyrð-
um, ]>vi með henni býr framtið landbúnaðarins, kjarni
þjóðarinnar.
Hver vill neita henni um menntun, meina lienni
að rækla og byggja, slofna heimili? Vill nokkur í
alvöru ræna þjóðina þeirri fótfestu, sem liún Iiefir
i góðum heimilum. Eða vill nokkur, vitandi vits,