Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 5

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 5
SKINFAXI 101 2. Aö athuga möguleika fyrir samvinnu við Búnaöar- félag íslands, þannig, aö B. í. styðji jarðræktar- og land- námsstarfsemi U.M.F. 3. Að beita sér fyrir nýrri vakningu og aukinni út- breiðslu ungmennafélagsskaparins, til umbóta lífsskilyrð- um i sveitum landsins. 4. Að koma á félagsbundinni ræktunar- og landbún- aðarstarfsemi drengja og stúlkna, líka því, sem gerist i Bandarikjunum og i ýmsum löndum Evrópu, ef til þess fæst stuðningur sá, sem um getur í 1. og 2. lið þessarar samþyklctar.“ Þegar eftir þingið sneri sambandsstjóri sér til land- búnaðarráðherra, Hermanns Jónassonar forsætis- ráðherra, og fór fram á við hann, að ríkisstjórnin fæli sendiráði íslands í Kaupmannahöfn að rann- saka, hvort kostur væri á að fá styrk frá Inter- national Education Board eða Rockefellerstofnuninni, eins og kunnugt er, að æskulýðsfélög ýmsra landa Evrópu liafa fengið, þar á meðal Danmörk, Finnland og Sviþjóð. Ráðherrann tók málaleitun sambandsstjóra rneð áhuga og vinsemd og lét þegar skrifa sendiráðinu um málið. Nú hefir sambandsstjóra borizt bréf frá ráðherranum, ásamt afriti af svari sendiherra um mál- ið. Hafa eftirgrejinslanir sendiherrans leitt í ljós, að framangreindar stofnanir eru hættar að veita styrki tit jarðræktarstarfsemi æskulýðsfélaga. Eru þar með brostnar þær vonir, sem á slikum styrk voru reistar. Þá hefir sambandsstjóri rætt við búnaðarmálastjóra um væntanlega landbúnaðarstarfsemi ungmennafélaga og samvinnu við Búnaðarfélag íslands, og fengið mjög vinsamlegar undirtektir. Mun sambandsstjórnin leggja erindi um samvinnu og stuðning fyrir búnaðarþing á vetri komanda. Einnig mun verða leitað til næsta Alþingis um aukinn styrk til að hrinda af stað vakn- ingu í þessu efni. En jafnframt þvi, sem Umf. snúa sér sérstaklega að umbótamálum landhúnaðarins, verða þau, bæði ein-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.