Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 59
SKINFAXI
155
gefa út sameiginlegt ársrit, „Nordens Kalender", sem er eitt
af vönduðustu og virðulegustu ritum á Norðurlöndum. Liggur
þegar mjög mikið starf eftir félögin.
Tilgangur Norræna félagsins er að efla vináttu, samúð og
samvinnu milli Norðurlandaþjóðanna um hverskonar fjárhags-
og menningarmál. Þessum tilgangi hyggst félagið að ná með
margliáttaðri kynningar- og fræðslustarfsemi. Félögin hafa til
skiptis mót eða námskeið fyrir skólafólk, stúdenta, kennara,
blaðamenn, bóksala, bókaútgefendur, verkfræðinga, verzlunar-
menn, bændur, verkamenn o. fl., efna til ferðalaga um Norður-
lönd fyrir skólafólk, hafa látið búa til skuggamyndaflokka frá
öllum Norðuriöndum, og sent þá til fjölda skóla. Þá gangast
félögin fyrir fyrirlestrum og rithöfundaheimsóknum. Loks hafa
þau látið endurskoða sögukennslubækur allra Norðurlanda,
gengizl fyrir stofnun viðskiptamátanefndar o. m. fl.
Norræna félagið íslenzka hefir tekið þátt í kynningarstarfinu
eftir mætti. S.l. sumar hélt ])að t. d. námskeið fyrir norrænu-
stúdenta, og tóku 27 erlendir stúdentar ])átt i þvi. Það hefir
sent skólaflokka í kynnisferðir til Noregs og Svíþjóðar, staðið
fyrir söngferð Karlakórs Reykjavikur, og sent fjölda inanns
á ýms námskeið í liinum löndunum. Einkum hefir félagið færzt
i aukana síðustu árin, síðan Guðlaugur Rósinkranz varð ritari
og framkvæmdastjóri þess.