Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 56
152
SKINFAXl
Veggskildir effir 12—14 ára drengi.
Reykjavik. Er þar hreinasta gullnáma af fyrirmyndum
fyrir þá hagleiksmenn, sem stunda vilja þessa fögru og
skemmtilegu, íslenzku alþýðulist.
Ritstjóri Skinfaxa er kennari við stærsta barnaskóla
landsins, Austurbæjarskólann i Reykjavík, og kennir
þar einkum stálpuðum drengjum, og m. a. handavinnu.
Hefir hann gerl tilraun til að laka tréskurð eftir göml-
um, íslenzkum fyrirmyndum upp sem skólavinnu, og
hefir það hep]inazl mjög vel, vakið áliuga nemenda og
athygli útávið.
Þar scm sama og engar vinnuteikningar af íslenzk-
um tréskurði eru til, lél kennarinn nemendur sina gera
sér teikningar sjálfa, eftir fyrirmyndum í Þjóðmenja-
safninu. Fór liann með drengina í safnið, og þar teikn-
uðu þeir upp þær skurðargerðir, sem nothæfastar virt-
ust. Nokkrar af vinnuteikningum þessum fjölrituðu
drengirnir, og eru þær seldar í snoturri möppu, 11 lilöð
með einum 35 teikningum á eina krónu. Aðalútsala er
hjó Bókaverzluninni Mimir og hjá ritstj. Skinfaxa.