Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 42
138
SKINFAXl
laust sinn þátt í þeim anda, sem rikt liefir á Núpi og
breiðzl þaðan um Yestfirði. Sá andi er þróttmikill og
ríkur, og allir munu ]ieir liafa skapað liann í samein-
ingu og með ágætri samvinnu, hinir þjóðkunnu Núp-
verjar þrír, séra Sigtryggur, Björn skólastjóri og Krist-
inn bóndi.
Núpsskólinn og ungmennafélögin á Vestfjörðum
liafa átt bina ánægjulégustu samvinnu, alla þá stund
sem bæði hafa lifað. Félögin hafa stutt skóla héraðs
sins eftir mætti og aflað honum ríflegs fjár, þegar
bann þurfti þess mest við, i nýja búsið. Þó hefir skól-
inn tvímælalaust gert miklu meira fyrir félögin, með
því að efla þeim forystumenn — vera eins konar hjarta
i æðakerfi þeirra og senda þeim sinýja blóðstrauma,
menn og mál. — Mér er eigi kunnugt, livort séra Sig-
tryggur befir verið virkur þátttakandi í ungmennafé-
lagsskapnum. En allt starf bans hefir verið i anda fé-
laganna og öll áhrif hans gengið í lið með stefnu þeirra.
En Björn Guðmundsson hefir alla tíð verið meðal öt-
ulustu forvigismanna félaganna, lengstaf formaður,
bæði i Ums. Vestfjarða og Umf. Mýrabrepps, sem er
fjölmennasta félag Vesturlands. Hann er persónugerð
bugsjón ungmennafélaganna, og fyrir honum hal'a
skólinn og félögin jafnan verið tvær greinar á einum
meiði, samvirkar í þjónustu einnar hugsjónar. Mér,
sem síðustu árin hefi haft yfirsýn yfir ungmennafé-
lagsskapinn um alll land, er það vafalaust manna Ijós-
ast, bve afarmikið Núpsskólans gætir i lífi og starfi
vestfirzku félaganna — bæði beinna álirifa frá skólan-
um og B. G. á félögin, og gegn um þá félagsmenn, sem
stundað bafa nám að Núiii. Eg er l. d. ekki í efa um
það, að það er mikið Núpsskólanum og kennurum lians
að þakka, að Vestfirðir eru sterkasta og eindregnasta
bindindisliérað landsins. Þá er vert að geta þess að
lokum, að í Núpsskóla starfar ungmennafélag, Umf.
Gróandi, og er það eina skólafélagið, sem er í U. M. F. í.