Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 32
128
SKINFAXl
sig LagerIöf,forfeður Selmu Lagerlöf.En á 17.öld keypti
hann maður að nafni Johan Erssen Ek. Kona hans var
dóttir majórsfrúarinnar Samselius að Ekeby, sem
heimsfræg er orðin úr sögu Lagerlöf. í byrjun 19. aldar
keypti Öli ríki Helgeby. Var kona hans, Karen, af liinni
frægu Ingimaraætt, er getur um i sögunni Jerúsalem.
— Og liér bjó Marianne Sinclaire — segir frú Hákan-
son, er liún hefir lokið við að fræða mig um eigendui
og sögu Helgabæjar. — Hún bjó hér, eftir að hún gift-
ist. Það er undarlegt, að þetla fólk, er maður þekkir
svo vel úr skáldsögum, skuli i raun og veru hafa verið
til. — Já, ]iað er vissulega eitthvað töfrandi, finnst mér,
er eg lít út um gluggann minn um kvöldið og liorfi yfir
skóginn og vatnið og sé rósirnar og runnana i garðin
um, sem umlykur húsið, að hér hefir hin drambláta
Marianne átt heima. Hún hefir ef til vill sofið liér i
lierberginu. Hún hefir reikað um þessa skóga, og þelta
cru rósirnar í garði hennar.
f
Eg ferðaðist töluvert um þessa daga og skoðaði ýmsa
fagra og merka staði. Til dæmis dvaldi eg part úr degi
að Ekeby, höfuðbólinu fagra. Hefi eg fáa staði fegurri
séð. Útsýnið yfir vatnið, garðurinn og skógurinn í kring,
var hvað öðru dásamlegra, og sjálf byggingin ljómandi
fögur. Þarna slendur bygging enn i dag, sem sagt er
að sé frá dögum majórsfrúarinnar og kavaléranna. Eg
kom einnig að Borg, sem nú er prestssetur. Þar átti
greifinnan unga, Elísabet Dohna, lieima, og hin elsku-
lega Ebba. Eitt lierbergið þar í liúsinu er nefnt „bláa
herbergið“. Er mælt, að þar hafi Ebba Dolma látizt.
Niðri við vatnið er gamall trébekkur. — Þarna sat
Gústi Berling, þegar hann var kennari greifadótturinn-
ar. Þarna sátu þau og horfðu yfir vatnið og skóginn, —
segir leiðsögumaðurinn. Og þótt eitthvað kunni nú að
vera fært í stílinn, af þvi, sem leiðsögumenn segja, til
]iess að heilla ferðamanninn, þá þarf þess tæplega til.