Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 38
134
SIvINFAXI
Richard Beck:
Brautryðjendar.
(Tileinkað íslenzkum landnemum i Vesturheimi).
Þeir sigldu höf, sem kjölur klauf ei fyrri,
og knúðu árar, brygðist hagstætt leiði;
við skin af stjörnum þungan barning þreyttu
til þrautar, móti stormi’ og sæ í reiði.
Þeir héldu beint á hrjóstur eyðifjalla
og hræddust hvorki ís né brunasanda;
við hungurvofur horfðust djarft í augu;
þeir heyrðu lúður nýja tímans gjalla.
Þeir námu álfur, breyttu auðn í akra,
og urð í laufprúð tré, sem gróðri skýla;
en landskuld sína greiddu í trega og tárum;
í týndum gröfum þessar hetjur hvila.
I týndum gröfum? — Morgun-leiftur ljóma
frá legstað þeirra, huldum grænum sverði.
Þeir unnu meira röðulrisi en kveldi,
og raddir slíkra gegnum eilífð hljóma.
Þeim pílagrímum allra landa og alda,
sem eldi fóru jörð að báðum skautum,
í hreinu gulli hjarta-prýði og dáða
ber hraustra sonum erfðafé að gjalda.