Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1936, Side 6

Skinfaxi - 01.10.1936, Side 6
102 SKINFAXI slök félög og sambandslieildin, að liafa vakandi augu á tækifærum til að „vinriá að því, að næg og lifvænleg atvinna bíði allra unglinga, er vaxa upp í landinu“. Menningarstörf. Sambandsþinginu var það Ijóst, eins og Umf. liefir alltaf verið, að þjóðin Iifir ekki á einum saman mat, lieldur er sjálfslæð, almenn og fjölhliða menning jafn- mikið lífsskilyrði hennar og arðgæf atvinna. Starfsemi Umf. að umbótum í landbúnaði og öðrum atvinnu- greinum Iilýtur því að bafa tvær hliðar: atvinnuhlið og menningarhlið. í menningarstörfunum er tvennt að vinna, og má hvorugt verða útundan: Að hljápa ein- staklingnum lil þroska, aukins manngildis og meiri þekkingar, og að gera umhverfi fólksins og aðbúnað þannig, að það veili sem liollust skilyrði til að lifa menningarlifi. l’m þctla efni samþykkti sambandsþingið eftirfar- andi ályktanir: „Sambandsþing skorar á ungmennafélögin að halda áfram ötulli baráttu fyrir því, að koma upp fastaskól- um — heimavistar- og heimangönguskólum — i sveit- um landsins. Einnig skorar sambandsþingið á sambandsstjórnina að beita sér fyrir því, að flutt verði erindi um barnafræðsl- una og önnur uppeldismál og leiti i því sambandi sam- starfs við stjórn Sambands' ísl. barnakennara og fræðslu- málastjórn.“ „Sambándsþing skorar á sambandsstjórn og hin ein- stöku félög U.M.F.Í. að beita sér fyrir því, að takast megi að skapa þjóðlegri og samræmari stíl i húsgagna- og húsagerð í sveitum landsins, heldur en nú er þar al- mennt að finna.“ Áskoruninni til nngmennafélaganna, i fyrri sam- þykktinni, vil eg láta fylgja þetta: Nýju fræðslulögin, sem gengu í gildi á þessu ári, gera ráð fyrir, að far- skólar sveitanna leggist niður svo fljótt sem auðið er,

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.