Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 26

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 26
122 SKINFAXI og fyrir fslendinginn, sem alinn er upp viö skógleysi, er þægilegt að hvíla augun á skógíáusum, grænum rjóðr- unum, inn á milli. Vatnið glampar í kvöldsólinni, i mörgum litum. Lestin heldur áfram, framhjá Rottne- ros, Ekeby í sögu Gösta Berlings. Eg hefi ásett mér að dvelja nokkra daga i Sunne, eða þar i grenndinni, en í kvöld held eg samt áfram alla leið til Torsby. Þaðan ætla eg mér svo aftur til Sunne, með skipi, eftir Fryken- vatninu. Sunne er dálítill bær við sundið, er sameinar F.fra og Neðra Frvkenvatnið. Það er Broby í sögu Gösta Berlings, þar sem Brobypresturinn ágjarni átti lieima og dóttirin hans, og þar stendur enn gistihúsið, þar sem majorsfrúin talaði um fyrir Gösta, svo að hann kaus að lifa áfram. Þarna ris Gurlita-klettur úr vatninu, þar sem bjarndýrið hafðist við, er djákninn fátæki skaut með silfurkúlu, og fann siðan fimm hundruð rikisdali í kjafti undraskepnunnar, og gat svo gifzt sfúlkunni, sem hann unni. — Eg átta mig varla, fyrr en lestin staðnæmist í Torsby, er liggur við nyrðri enda vatnsins; nú er aðeins skammt til norsku landamær- anna. Eg gef mér engan tíma til að lilast um, því að eg er dauðþreylt og svöng. Þarna stendur „Torsby Pensio- nat“ með stórum stöfum utan á livítu, snotru húsi. Það er rétt lijá járnbrautarstöðinni. Eg flýti mér þang- að, bið um gistingu, og það verður úr, að eg ræð af að gista þarna i þrjár nætur. Eg þarf að hvila mig, og það er dýrt að gista aðeins eina nótt í stað. Eg fæ laglega stofu til íbúðar, en loftið þar inni er nokkuð þungt; það er svo heitt og mollulegt í veðri. Eg sé, að nægar hækur liggja á borðinu, og húsfreyjan segir mér, að baðströnd- in sé skammt frá. — Það er víst allt í bezta lagi. Eg snæði kvöldverðinn; bann er dágóður, en þó ekki líkt því eins og eg hefi átt að venjast, bæði i Stokkhólmi og í Dölunum. — Hér flóir kannske ekki allt út í hnaus- þvkkum rjóma, eins og þar. — Daginn eftir er sami

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.