Skinfaxi - 01.10.1936, Side 53
SKINFAXI
149
Ég svaninn elska, er syngur dátt
um sigur lífsins, dýrð og mátt.
Hann syngur glatt um sumardag
um sól og gleði og unaðshag.
Ég elska fák, sem fer um land,
sem fjúki mjöll um eyðisand,
og ber mig marga bæjarleið
um bjartan dag og kvöldin heið.
Ég elska mál, er mælir þjóð
og móðir börnum lcennir góð.
Ég elska fánann, Islands tákn,
er yfir gnæfir húsabákn.
Ég tilbið guð, er gaf oss jól,
þann guð, er skapti jörð og sól,
þann guð, er stjarna- stýrir her
og styrk sinn aumu og smáu lér.
Hann gefur birtu og blessað vor
og býður: sýnið dug og þor,
og erjið jörð, þá ávöxt ber
hún öllum, rétt sem beita sér.
Hann sér, er lýðinn sorgir þjá.
Hann sér, er tárin væta brá.
Og allt megnandi máttur hans
af miskunn bætir þarfir manns.
Hann heyrir þjáðra harma-vein.
Hann heyrir sinna barna kvein.
Hann heyrir bærast hjörtun klökk.
Hann heyrir vora bæn bæn og þökk.