Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 64

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 64
1 (50 SKIXFAXI kvæm fyrirsögn um söfnun jurta og meðferS jurtasafna. 05 myndir prýða bókina. Þetta er sérlega góð og handhæg bók fyrir unglinga, sem vilja kynnast á eigin spýtur „riki liinnar fögru Flóru“ og leita fróðleiks og ánægjustunda við jurta- söfnun. Vakna þú, Island, söngvar alþýðu, heitir lítil söngbók, sem Karlakór verkamanna í Reykjavík hefir gefið út. Er hún gef- in út til að bæta úr „mjög tilfinnanlegri vöntun á söngbók handa alþýðu, þar sem dregin væru saman i eina heild Ijóð og söngvar, sem til eru orðin í baráttu alþýðunnar og hæf mega kallast til söngs.“ Er þarna margt prýðilegra alþýðu- söngva og hvataljóða, gamalla og nýrra, og líklegt að kver- ið verði vinsælt. En óskaplegur leirburður er líka til innan- um, og þyrfti að yrkja upp fyrir næstu útgáfu annað eins og t. d. „Fram allir verkamenn" (bls. 34) o. fl. Ðvöl kom út sem fylgirit Nýja dagblaðsins í þrjú ár og varð vinsælt rit fyrir vel vahla smásögur o. II. Um s.l. áramót keypti Vigfús Guðmundsson Dvöl og gefur hana út sem sjálf- stætl skemmtirit. Eru átta hefti þegar komin út, og er mikill myndarbragur á ritinu. Dvöl flytur mikið af þýddum smásög- um, eingöngu eftir fræga og ágæta höfunda, kvæði og smá- sögur eftir íslenzk skáld, fræðigreinar, ferðasögur og skrítlur. Ritstjórinn, Vigfús Guðmundsson, sem lengi hefir verið í Borg- arnesi, er alkunnur sem einn vinsælasti veitingamaður lands- ins, og auk ])ess innan ungmennafélaganna sem áhugasamur og óþreytandi félagsmaður. Ef dæma má eftir því, sem hann hefir þegar sent frá sér af Dvöl, er hann allt að því eins sniðugur að stjórna framreiðslu bókmennta eins og matar. Svimjing heitir færeysk kennslubók í sundi, sem kom út í vor, eftir Poul E. Peterscn kennara i Mykinesi og helzta íþróttafrömuð eyjanna. Bókin er mjög skýr og skipulega sam- in, með 100 ágætum, myndum, sumum litprentuðum. Vafalaust gætu íslenzkir sundnemendur haft hennar mikil not, þar sem okkur skortir góða handbók í sundi. Engum er vorkennandi að skilja málið. I'élagsprentsmiðjan.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.