Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 16
18
SKINFAXI
Benedikt Sveinsson, fyrrv. alþm.;
Endurreisn lýðveldisins
og Ungmennafélögin.
(Benedikt Sveinsson, fyrrv. alþm. hefir gert Skinfaxa þá
sæmd að skrifa eftirfarandi grein um sjálfstæSismálið, en
hann hélt allra þingmanna fastast á rétti íslendinga um langt
árabil af miklum skörungsskap, eins og kunnugt er. Ritstj.)
Ungmennafélögin vórn
fyrst stofnuð á íslandi
l'JOö. Þá var mikil þjóð-
leg vakning og frelsis-
alda risin í landinu, sem
vaxið liafði og þróazt sið-
uslu árin. Á næsla vori,
1907, var háður hinn
nafnkunni og fjölmenni
Þingvallafundur við Öx-
ará, þar sem íslenzki
fáninn var lielgaður að
Löghergi og samþykkt
var að hefja skilnaðar-
baráttu, ef elcki fengist
framgengt viðhlítandi
réttarkröfum eftir þeim
mælikvarða, sem þá þótti mega við una að sinni.
Ungmennafélögin stofnuðu landsamband sín í milli
og héldu fyrsta samitandsþing sitt á Þingvöllum siðar
um sumarið, í sama mund er Friðrik konungur 8.
kom þangað með föruneyti sínu. Höfðu félögin þá
eigið tjald inni á Völlunum og blakti þar hið „unga
íslands merki“ við hún, — eitt þeirra þriggja, er sá-
ust þá á Þingvöllum.