Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 45
SKINFAXI
47
á undan mótinu. Skólapiltarnir bjuggu um sig í kennslustofu
þessa daga.
Landsmótið mun þó hafa oröiö enn fjólsóttara, ef veður-
horfur hefðu verið skrárri um þessa helgi, rættist þó betur
úr en á horfðist. Á laugardaginn var austan strekkingur,
fremur kalt og rigndi síðari hluta dagsins. Á sunnudaginn
var veður lygnara og hlýrra, einkum eftir hádegið og að
mestu úrkomulaust, og mátti veður teljast sæmilegt, þótt sól-
ar nyti lítið.
Mótið fór á allan hátt prýðilega fram og varð óreglu litið
vart. Er það lofsverður vitnisburður um jafn fjölsótta sam-
komu og verður það Umf. til sérstakrar ánægju.
Undirbúningur og stjórn.
Undirbúningur landsmótsins stóð yfir i langan tima af hálfu
stjórnar Ungmennafélags íslands og íþróttakennara þess víðs-
yegar um landið. En aðalundirbúning á mótstaðnum og fram-
kvæmd annaðist stjórn Ungmennasambands Borgarfjarðar, en
hana skipa: Þorgils Guðsmundsson kennari í Reykholti, for-
maður, Ingimundur Ásgeirsson bóndi að Hæli í Flókadal og
Ásmundur Jónsson bóndi í Geirshlíðarkoti í Flókadal. Þá vann
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi mikið með stjórninni að
undirbúningi og framkvæmd mótsins og ýmsir fleiri lögðu
þar hönd að. Allur þessi undirbúningur, svo og stjórn móts-
ins, var leystur af hendi með ágætum, og var borgfirzkum ung-
mennafélögum til sérstaks sóma.
Hýanneyri reyndist liinn ákjósanlegasti staður fyrir jafn um-
svifamikinn mannfagnað, og á skólastjórinn, Runólfur Sveins-
son óskiptar þalckir allra íslenzkra ungmennafélaga fyrir fram-
úrskarandi myndarlegan viðbúnað og að lána þennan glæsi-
lega slað fyrir mótið. Sá h'ann um fæði handa rúmlega 200
manns þessa daga, sem sambandsþingið og landsmótið var háð.
Var það gert með þeim höfðingsskap og snyrtimennsku að
til var tekið. Enda er það einróma álit allra, sem að lands-
mótinu unnu og þátttakendanna í því, að Runólfur skóla-
stjóri og starfsfóllc hans, liafi leyzt sinn vanda, eins og bezt
var á kosið.
Síðan 1930 hefur engin samkoma farið fram hér á landi
jafn fjölmenn og með slíkum myndarbrag, sem landsmót
U.M.F.Í. að Hvanneyri. Mun þess ætið minnzt sem merkasta
iþróttaviðburðarins 1943 og jafnframt er það stórmerkur þátt-
ur í félagslifi þjóðarinnar. Æskan gat sér þar góðan orðstir
með framkomu sin«ni. Keppendur i einstökum iþróttagrein-