Skinfaxi - 01.05.1943, Page 55
SKINFAXI
57
Hermann Jónasson, fyrrv. for- Björn Jakobsson, skólastjóri
sœtisráðherra, upphafsmaður og stofnandi iþróttakennara-
íþróttalaganna. Hann skipaði skólans.
milliþinganefnd i íþróttamál-
um 13. apríl 1938.
Niðurlag.
Tæpast er hægt að ljúka svo frásögninni af Hvanneyrar-
mótinu, að ekki sé minnzt íþróttaskóla Björns Jakobssonar og
íþróttalaganna, sem öðru fremur hefur stuðlað að því, hversu
glæsilegt mótið var.
íþróttaskólinn hefur á siðari árum sérmenntað fjölda manna,
sem verið liafa i þjónustu U.M.F.Í. og átt sinn þátt í að hefja
þá íþróttavakningu, sem landsmótið bar svo greinilega vott um.
Með íþróttalögunum fær U.M.F.Í. stóraukið fjármagn til
íþróttastarfa, og er með þvi gert kleift að hafa marga íþrótta-
kennara i þjónustu sinni og einstök Umf. eru styrkt til marg-
víslegra íþróttamannvirkja, og með framkvæmd laganna hefst
starf íþróttafulltrúans, sem e.r mjög mikilsvert fyrir íþrótta-
starfsemina í landinu. Enda beindi síðasta sambandsþing
U.M.F.Í. þakklæti sínu til Hermanns Jónassonar fyrrv. for-
sætisráðherra og milliþinganefndar í íþróttamálum fyrir setn-
ingu íþróttalaganna, og íþróttanefndar rikisins og íþróttafull-
trúa fyrir ágætt samstarf um framkvæmd þeirra.