Skinfaxi - 01.05.1943, Page 62
64
SKINFAXI
Þskj. VI.
„Sambandsþing U.M.F.Í. ... leggur til, að héraðssamb. stefni
að þvi að hafa fasta íþróttakennara á vegum sinum, sem
kenni ungmennafélögum og skólum eftir því sem ástæður leyfa.
Starfsemi þeirra sé 10 mán. Stjórn U.M.F.Í. sé falið að út-
vcga kennara eftir beiðni sambandanna.“
Þskj. VII.
„14. þing U.M.F.Í. ... leggur til, að næsta landsmót U.M.F.Í.
verði haldið i Norðurlandi árið 1946.“
Þskj. VIII.
„Þingið samþykkir, að fela stj. U.M.F.Í. og íþróttafulltrúa
að ákveða í hverjum íþróttum verði keppt ó næsta landsmóti,
og auglýsa það fyrir árslolc 1944.“
Þskj. IX.
„14. þing U.M.F.Í. ... telur Skinfaxa nauðsynlegan til þess
að túllca málefni og hugsjónir ungmennafélaganna og vera
tengilið milli liinna einstöku félaga, skal hann koma út tvisvar
á ári og minnst 10 arkir alls. Ráða skal ritstjóra, en útsend-
ingu og afgreiðslu annast væntanlegur framkv.stj. U.M.F.Í.
Leita skal áskrifenda gegnum héráðssamböndin og skulu all-
ir skuldlausir félagar eiga kost á ritinu fyrir hálfl útsöluverð.
Að öðru leyti sé ritið til sölu á frjálsum markaði.“
Þskj. X.
„14. þing U.M.F.Í. . . . lítur svo á, að íslenzk funga sé dýr-
mætasli menningararfur þjóðarinnar, og telur verndun móð-
urmálsins þýðingarmesta atriðið i varðveizlu sjálfstæðisins og
þjóðareinkenna. Þingið skorar því á ungmennafélaga, og alla
landsmenn, að standa vel á verði gegn hverskonar málspjöll-
um, og þeim margvíslegu hættum, sem núverandi ástand skap-
ar tungunni.“
Þskj. XI.
„14. þing U.M.F.Í. . .. heimilar samb.stj. að kaupa kvik-
myndavél. Leggur þingið áherzlu á, að unnið sé að því, að
hvert héraðssamb. eigi kvikmyndavél, annaðhvort einstakt eða
í sambandi við skóla á félagssvæðinu. Einnig, að samb.stj.
hlutist til um, að tekriar verði kvikmyndir af íþróttalífi, at-
vinnuháttum og öðru því í lífi og starfi þjóðarinnar, sem
mikils er um vert.“