Skinfaxi - 01.05.1943, Blaðsíða 76
78
SKINFAXI
Hverjir eru þjóðkunnir?
Það vakti mikla athygli, að kveðjuathöfn Aðalsteins Sig-
mundssonar skyldi ekki vera útvarpað 29. apríl s.l., en stjórn
U.M.F.Í., Samband íslenzkra barnakennara og fræðslumála-
stjóri höfðu sent útvarpsráði eindregin tilmæli um það. Út-
varpsráð neitaði með þeim forsendum, að Aðalsteinn hefði
ekki verið þjóðkunnur maður. Þeir, sem tóku þessa eftir-
minnilegu ákvörðun voru: Magnús Jónsson prófessor, Páll
Steingrimsson fyrv. ritstjóri, Einar Olgeirsson ritstjóri og Sig-
urður Einarsson dósent. Fimmti maðurinn var ekki búinn
að taka sæti i ráðinu.
Hvað þeir kalla þjóðkunna menn er ekki full-Ijóst, en svo
virðist sem háskólapróf sé eitt af óhjákvæmilegum skilyrð-
um til þess að hljóta þá nafnbót. Sennilega fer almennings-
álitið eftir öðrum reglum í dómum sínum. Og eitt er vist,
að Aðalsteinn Sigmundsson átti öðrum fremur mjög ahnenn
persónuleg ítök sem ungmennafélagi, kennari, skáti og síðast
sem námsstjóri á Vesturlandi, auk þess sem liann var lands-
kunnur af störfum sínum sem kennari, félagsmálaleiðtogi og
rithöfundur. Ákvörðun útvarpsráðs verður þvi furðuleg og
ekki ástæðulaust, þótt hún hafi sætt almennum ámælum.
Bréfaskóli S.Í.S.
Samband íslenzkra samvinnufélaga hefir rekið bréfaskóla
síðan haustið 1940, við vaxandi útbreiðslu og vinsældir með
hverju ári, og eru nemendur hans nú orðnir mjög margir.
Aðalnámsgreinar eru sjö, og er valinn kennari í hverri grein.
Forstöðumaður skólans er Jón Magnússon fil. kand. Hver
námsgrein kostar aðeins 20—50 kr. og vat námsgreina og
námshraði, hverjum nemanda í sjálfsvald selt. Hér er um
tilvalið tómstundanám að ræða, ódýrt og hagnýtt, sem Skin-
faxi vill mjög eindregið benda ungmennafélögum á og öðrum
lesendum sínum.
Meðal flestra menningarþjóða eru bréfaskólarnir fyrirferð-
armikill þáttur í fræðslustarfseminni og nema milljónir manna
á þennan hátt. Það er t. d. mjög algengt nú að háskólanem-
endur í Bandaríkjunum, sem fara i striðið, halda námi sínu
áfram í herhúðunum með lijálp bréfaskólanna og eru þeir
reknir af mörgum víðkunnum háskólum þar í landi. í strjál-
býlustu héröðum Ástralíu cr harnafræðslan að mestu leyti í
höndum bréfaslcólanna. Skinfaxi mun síðar fræða lesendur
sína nánar um þessa merkilegu menningarstarfsemi, sem mun
hér, eins og annarsstaðar, verða menningu þjóðarinnar að
miklu gagni. D. Á.