Skinfaxi - 01.05.1943, Page 79
SKINFAXI
81
Bækur.
Skinfaxa hafa verið sendar þessar bækur og rit, og skal
lesendum hans gefinn nokkur kostur á að kynnast efni þeirra.
Ársrit Skógræktarfélags íslands 1943.
Þetta rit er 9 arkir aS stærð og frágangur aliur liinn vand-
aðasti. Flytur það margar gagnmerkar greinar um skógrækt
og íslenzkan gróður.
Hefst það á stórfróðlegri grein eftir Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóra, er nefnist: Um ræktun erlendra trjátegunda.
Fyigja henni margar heilsíðu myndir af trjágróðiri hér og
frá stofnun félagsins. Margar ræður voru fluttar og bárust
félaginu ýmsar gjafir við þetta tækifæri. En Umf. Trausti
gaf kr. 1000,00 til væntanlegs heimavistarbarnaskóla í Vestur-
Eyjafjallahreppi í tilefni afmælisins.
Félagið ó stórt og vandað samkomuhús að Heimalandi og
hefir rekið þar hina fjölhreyttustu starfsemi, enda hefir fé-
lagið oft verið með starfsömustu Umf. austan fjalls. Aðal-
stofnandi þess er Sigmundur Þorgilsson, skólastjóri Ásólfs-
skála, og var hann lengi formaður félagsins og vann því mik-
ið gagn. Núverandi formaður er Ólafur Kristjánsson, Selja-
landi. Félagsmenn eru rúmlega 60.
Hörmulegt slys.
Sú sorgarfregn barst, í sama mund og Skinfaxi var að fara
í prentun, að vélbáturinn Hilmir frá Þingeyri hefði farizt
á leið til Arnarstapa (26. nóv.) og með honum 11 manns. Með-
a) þeirra var Anton Björnsson, i þróttakennari. Var hann að
fara til Umf. Trausta i Breiðuvík til íþróttakennslu.
Anton var fæddur í Reykjavík og var rúmlega tvítugur að
aldri. Dvaldi hann í íþróttaskólanum á L'augarvatni veturinn
1942—43, en hafði áður lokið bakaranámi. Anton var fjölhæf-
ur íþróttamaður, dugandi íþróttakennari og ágætur dreng-
ur, sem mikils mátti vænta af.
Ungmennafélagar!
Skinfaxi verður framvegis aðeins sendur til áskrifenda og
kostar næsti árgangur, sem verður 10 arkir að stærð, kr. 5,00
til ungmennafélaga, en bókhlöðuverð er kr. 10,00. Stjórnum
Umf. um land allt hafa verið sendir áskriftarlistar. Gerizt
áskrifendur hjá þeim sem fyrst. Næsta hefti kemur út í marz.
Enginn Umf. má vera án Skinfaxa.
Sendið honum stuttar greinar um áhugamál ykkar.
D. Á.